Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Sjúkrakassi
This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Stefanía Guðjónsdóttir 18 years ago.
-
CreatorTopic
-
22.11.2007 at 08:46 #201231
Hvar fær maður fullgildan sjúkrakassa fyrir breyttan bíl, bifreiðaskoðun gerði athugasemd við sjúkrapúðan minn.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.11.2007 at 08:58 #604210
þú færð sjúkrakassa hjá Landsbjörgu og í flestum Apótekum eins sérðu upplýsingar
[url=http://www.f4x4.is/new/misc/default.aspx?file=35/29:31la7ix0][b:31la7ix0]hér[/b:31la7ix0][/url:31la7ix0]
Kveðja Lella
22.11.2007 at 09:08 #604212Takk fyrir , það er frábært að eiga ykkur að!
22.11.2007 at 09:59 #604214við erum flottust

svo er líka hægt að fara í Rúmfatalagerinn og kaupa plastkassa og teppi og fara svo í næsta apótek með listan góða og láta þær týna í hann það sem þarf.
Kveðja Lella
22.11.2007 at 10:42 #604216Segið þið svo að Hjálparsveitin sé ekki snilld….
22.11.2007 at 17:17 #604218Gamli góði Datsun komin með fulla skoðun merkilegt nokk! Takk fyrir.
22.11.2007 at 17:29 #604220Það er auðvitað hægt að kaupa einhvern ódýran kassa í RL og víðar, en ég mæli nú með kössunum frá Landsbjörgu/Hjálparsveit skáta, því þeir þola betur hnjask og verja innihaldið – sem er jú ekki ódýrt – miklu betur en kassar sem eru ekki ætlaðar til að geyma svona hluti. Þetta þarf að vera í lagi ef og þegar þarf að grípa til þess.
kv.
22.11.2007 at 22:30 #604222því þessi kassi frá landsbjörgu inniheldur bara alveg helling sem maður hefur ekkert með að gera, en vantar í hann ýmsa aðra hluti sem væru nytsamlegri.
Svo skiptir það engu máli hversu góðan sjúkrakassa maður er, maður þarf víst að kunna að nota það sem er í honum, hefur þú kæri lesandi farið á námskeið?
Ég held að allir sem eiga breytta bíla sem komast á staði fjarri alfaraleiðum ættu að hugleiða þekkingu sína á fyrstu hjálp og hvort þeir séu í stakk búnir til þess að takast á við slys og óhöpp undir erfiðum aðstæðum.Það kostar jú peninga að fara á námskeið, og tíma, en það er ekki nema brotabrot af því sem margir hverjir setja í bílana sína, og ekki síður mikilvægt;)
bestu kveðjur,
andri
22.11.2007 at 23:23 #604224Já þetta er alveg rétt hjá þér. Maður verður að vita hvað maður á að gera þegar slysin gerast. Ég er nú í nýliða þjálfun hjá FBSR og búinn með Fyrstu hjálp 1.
En í sambandi með þessa sjúkra kassa frá Landsbjörg, vitið hver innihalds munurinn er á VÍS og VAKA.
23.11.2007 at 08:08 #604226Ég held að munurinn innihaldslega sé ekkert gríðarlegur. Hinsvegar er mikil munur á töskunum.
Vaki er meira svona eins og nestisbox…. en Vís, Græðir og Margvís eru ryk og rakaheldar töskur, sem mér finnst allavega alveg nauðsynlegt þegar kemur að svona hlutum í jeppa. Ég ætla að kaupa Vís, svo setur maður bara í hana það sem maður vill.. skiptir út.
23.11.2007 at 20:57 #604228Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta dæmi skyldu sjúkrabúnaður í breytta jeppa. [url=http://www.curioweb.is/webs/frumherji.is/modules/files/file_group_15/BSK/BSK%202504.pdf:11yc3kjw][b:11yc3kjw]Upplýsingar um innihald sjúkrakassa í hópbifreiðir, breyttar bifreiðar og skólabifreiðar[/b:11yc3kjw][/url:11yc3kjw]
Tekið af http://www.frumherji.is
Mér sýnist fljótt á litið að það sem vantar í lista hjálparsveitarinnar er saltvatn og sáraböggull.
Kv. stef…
–
Ps. takið svo eftir að sjúkrakassinn skal vera merktur skráningarnúmeri bifreiðarinnar… geri aðrir betur ;->
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
