FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sjálfskipting

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Sjálfskipting

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 03.02.2003 at 18:26 #192107
    Profile photo of
    Anonymous

    Eg er í smá vandræðum sem lýsia sér þannig að 700 sjálfskiptingin fór í Runnernum mínum um helgina. Þetta gerðist þannig að ég ásamt fleirum var á leið á fjöll og fór þá að heira eitthvert leiðindarhljóð og eftir því sem leið á nóttina jókst hljóðið. Síðan fór að bera á að skiptingin var lengi að skipta frá 1 í bakk og einnig milli gíra. síðan fór það svo að efstu gírarnir fóru að detta út og að lokum sá lægsti. á leiðinni var mælt á skiptingunni og var bæði nægilegt olíumagn á henni og ekkert að olíunni að sjá. skiptinginn hafði heldur ekkert heitnað alla leiðina eða 10 klst í rólegum akstri vegna lélegs skignis þannig að þetta þótti mér sem öðrum sem ég hef spurt frekar torkennilegt. Þetta er 95″ á skiptingu orginal við 350 LT1 og tölvu. Hefur eitthver reynslu eða vit á þessu sem vill leggja orð í belg?????
    Kv Elís P. 8229912

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 03.02.2003 at 18:47 #467642
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Pési

    Hættu þessari vitleysu og fáðu þér bara fótstigið ekki þessa hel…. sjálfskiptingu :)

    Kveðja Bjartur í sumarhúsum!!!!!!





    03.02.2003 at 19:18 #467644
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Bjartur eg er búinn að prufa bæði og það sem fæst aukalega með sjálfskiptingunni í viðbót við kostnað og vesen er það mikið að mér mundi ekki detta í hug að fara til baka það væri eins og að skríða aftur inn í moldarkofan eða fá sér patrol eða eitthvað…..





    03.02.2003 at 19:48 #467646
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Að Vísu heitir þessi sjálfskipting 4L60E en er basiklí eins og gamla 700 nema rafstírð





    03.02.2003 at 22:03 #467648
    Profile photo of Halldór Sveinsson
    Halldór Sveinsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1069

    Sæll .
    Það sem mér dettur í hug að í ventlabodyið hafi komist einhver drulla og þá stíflast það að mér skilst.
    það þarf að taka það úr og hreinsa það og jafnvel skipta um það.
    ég lenti einu sinni í þessu á gamalli Ford skiptingu og lýsti það sér svipað.
    Kv.
    Glanni





    03.02.2003 at 23:40 #467650
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll,
    Hvernig lýsti þetta hljóð sér?
    Kom einskonar autt bil milli gíra eða snuðaði
    skiptingin við að skipta?

    Þar sem þetta er rafstýrð skipting er rétt
    að ath hvort ekki séu allar tengingar utan á
    skiptingunni í lagi.

    Eins er möguleiki að drulla sé komin í ventlaboddy,
    það orsakast af sliti á innviðum skiptingar, skífum og
    kúplingum, ef sjaldan er skipt um vökva mettast vökvinn
    af þessari drullu, hversu gamall er vökvinn í km,
    hversu mikið ekin er skiptingin, vökvinn á að vera rauður
    ef hann er rauðbrúnn er hann brunninn og ónýtur.

    Þessi skipting er að miklu leyti rafstýrð og er fjöldi rofa
    í ventlaboddy sem geta bilað og stíflast.
    En miðað við þá lýsingu að ekkert gerist núna bíllinn fer hvorki fram né aftur þá er einnig möguleiki að dælan í skiptingunni hafi bilað, úr hvernig bíl er skiptingin og hvaða árgerð nákvæmlega. Það var recall á 95-96 skiptingum í vissum chevy bílum með þessari skiptingu vegna bilunar í dælu sem lýsti sér þannig að dælan lak og þar með var vökvamagn í henni og lágt til að hún dældi, þar af leiðandi náði skiptingin ekki upp þrýsting.

    Er skiptingin að fá næga kælingu í bílnum hjá þér? í miklu lulli hitna skiptingar mest og síðan í miklum átökum. Hiti skemmir vökva og vökvinn þá skiptinguna.

    Komdu endilega með komment á spurningarnar.

    Kv. Elvar





    03.02.2003 at 23:46 #467652
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll.Ég hef trú á að Forward kúplingin hafi svikið þig eins og svo marga aðra.lýsingin er lík því.Þú verður að fá þér 10 blaða dælu og shiftkit og stífari gorma í dæluna Það eykur þrístinginn.Ljónsstaðarmenn geta hjálpað þér.
    KV HP





    04.02.2003 at 12:32 #467654
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta með vökvan er ekki orsök vegna þess að hann leit mjög vel út og einnig hefur þessi skipting ekki heitnað hjá mér. Það sem stungið var uppá með betra innvols í skiptinguna var allt saman gert þegar firri eigandi steikti hana á drangajökli og var það þá vegna lítillar kælingar sem þá var einnig ráðið bót á með níjum vatnskössum. Það sem fróðir sveinar hafa sagt mér er að það séu miklar líkur til þess að konverterin eða ventlaboxið hjá mér sé eitthvað klikkað vegna þess að skiptingin heitnaði ekki eða litaði olíu sem bendir til þess að ekki hafi neitt verið að brenna inni í henni ss kúplingar. einnig má skoða dæluna þegar trukkurinn verður komin til byggða. mér var einnig sagt að það væri nauðsinlegt að tengja lockupið á skiptingunni svo hún entist en getur eitthver sagt mér hvernig það nákvæmlega virkar…
    Kv Elli P





    04.02.2003 at 20:02 #467656
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    hvað segiði drengir veit eitthver hvernig locupið virkar í svona 700 skiptingu 4L60E og hvernig það er tengt???? og á eitthver svona skiptingu sem vill losna við hana eða innvols í þetta!!!&
    Kv Elli P.





    04.02.2003 at 20:23 #467658
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Elli

    Mikið er þetta líkt því sem gerðist hjá mér í sumar á samskonar skiptingu, hún hafði heldur ekki hitnað og olían var eins og ný. Það sem fór hjá mér var aftasta legan og hún stíflaði dæluna o.s.frv.
    Það var ekkert að gera annað en koma henni í hendurnar á sérfræðingum, t.d. Pétri í Sjálfskiptiþjónustunni á smiðjuvegi eða Ljónsstaðabræðrum, það þurfti að skipta um annsi margt fyrir utan leguna og skera upp convertorin, þeir koma lockuppinu í lag um leið ef það hefur verið óvirkt.

    Kv. Ásgeir
    R-1605





    04.02.2003 at 20:32 #467660
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er alls ekki ólíkleg orsök miðað við hljóðið sem heirðist en eg væri til í að fá kanski bara að hringja í þig ef þér er sama um að fá frekari spurningar ..Vantar nr en annars þökk fyrir ábendinguna.





    04.02.2003 at 21:51 #467662
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er sjálfsagt þú nærð í mig í 863-5444

    Kveðja
    Ásgeir





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.