FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sigkatlar

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Sigkatlar

This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson Benedikt Sigurgeirsson 21 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.06.2003 at 22:54 #192660
    Profile photo of
    Anonymous

    Er einhver sem þekkir til Gjálpar og þá hvort það sé ekki rétt að þar sé bara smá lægð í jöklinum að vetri, og sprungulaust?.Hvað halda menn um sigketilinn við Pálsfjall, hann virðist vera að stækka og dýpka. Hvað gæti valdið því?.Gæti verið þarna einhver hiti, eða gæti kannski Djúpá átt upptök þarna eða er það kannski alltof langsótt útskýring.

  • Creator
    Topic
Viewing 1 replies (of 1 total)
  • Author
    Replies
  • 18.06.2003 at 23:47 #474336
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Gjálpargosið er líklega stærsta gos í Vatnajökli í a.m.k. 100 ár. Því má lýsa sem allstóru
    gosi undir þykkum jökli og það olli töluverðum breytingum á ísa- og vatnasviðum.
    Gosið myndaði fjallshrygg undir jöklinum, hliðstæðan móbergshryggjum frá
    ísaldartíma. Ís skríður inn að fjallinu og leitast við að fylla dældina sem myndaðist í
    jökulyfirborðið í gosinu. Dældin hefur grynnkað en rúmmál hennar hefur haldist svipað
    frá 1997; jarðhiti í fjallinu virðist vega upp á móti ísskriðinu. Gera má ráð fyrir að ísaog
    vatnaskil komist ekki í það horf sem var fyrir gosið fyrr en eftir allmörg ár.
    Grímsvatnagosið 1998 var mun minna en Gjálpargosið en telst dæmigert fyrir
    Grímsvötn. Ísþykkt var miklu minni en í Gjálp og ísbráðnun aðeins lítið brot af því
    sem þar var. Ekki urðu breytingar á ísa- og vatnasviðum en vök myndaðist í íshellu
    Grímsvatna. Allstór gígur varð til í gosinu og hefur sig hans og aflögun veitt innsýn í
    hvernig eldri gígleifar sem fram koma í mælingum á botni Grímsvatna hafa orðið til.
    Miklar breytingar urðu á jarðhita í Grímsvötnum í kjölfar gossins. Hann jókst mjög
    með allri norðurhlíð Grímsfjalls og náði austur í Grímsvatnaskarð, en þar er sú ísstífla
    sem lokar Grímsvötnum og veldur því að vatn safnist þar fyrir. Hefur jarðhitinn brætt
    rennu gegnum ísstífluna svo hún hefur lækkað um tugi metra frá því sem var fyrir gosið.
    Þessar breytingar hafa valdið því að vatn hefur ekki náð að safnast að ráði í Grímsvötn á
    síðustu misserum.

    Þetta ritaði Hr.Magnús Tumi Guðmundsson, Raunvísindastofnun Háskólans.

    Kv.
    Benni





  • Author
    Replies
Viewing 1 replies (of 1 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.