FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Setrið, það fína rit

by Lárus Rafn Halldórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Setrið, það fína rit

This topic contains 50 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Skúli Haukur Skúlason Skúli Haukur Skúlason 17 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 27.12.2007 at 20:23 #201459
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant

    Nokkuð er um rangfærslur í Setrinu sem mér barst í dag. Skemmtilegt líka að fá fínt klippikort fyrir Regatta með gildistíma 31. desember 2007….. sléttur einn virkur dagur þar til ég get hent því í ruslið ónotuðu.

    Mér finnst líka leiðinlegt að sjá að ellllldgamalli grein um GPS tæknina er skellt í þetta ágæta rit án nokkurra breytinga, en aftarlega í þeirri grein er sagt að ekkert íslandskort sé til fyrir Mapsource hugbúnaðinn. Ég hef nú notað íslandskort með Mapsource og Nroute í nokkur ár svo þetta hlýtur að vera helvíti gömul grein….. hver prófarkales þetta rit? :) hvergi er heldur minnst á ný kerfi í þróun, s.s. Galileo….

    ekki meiri skítur í bili um þetta annars stálfína og góða rit, margar skemmtilegar greinar og viðtöl.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 41 through 50 (of 50 total)
← 1 2 3
  • Author
    Replies
  • 02.01.2008 at 22:41 #607952
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    miðað við það sem þú hefur látið út úr þér við hin ýmsu tækifæri ætturðu stundum að hafa vit á því að þegja
    Kveðja Lella





    02.01.2008 at 23:12 #607954
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta var fínt rit, stórt og veglegt og afsakar nokkurnveginn þær örfáu villur sem í því eru, enda er nokkurnveginn búið að leiðrétta þær hér með á vefnum. Sem er bara gott mál.

    Ég hló nú bara þegar ég sá þennan miða í regatta, rann út sama dag og ég hafði tækifæri til að líta í bleðilinn.

    Og til þín Ofsi, ef þú vilt aðstoð við ferlasöfnunina er ég alltaf til þjónustu reiðubúinn, ef ég kem að einhverjum notum það er að segja.

    kkv, Úlfr á Undanfara II
    E-1851





    03.01.2008 at 02:01 #607956
    Profile photo of Friðfinnur Guðmundsson
    Friðfinnur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 10
    • Svör: 218

    Þá verð ég að segja að blað var alveg frábært og félagatalið alveg undursamlegt. Smásálir eins og ég fá mikið útúr því að sjá nafnið sitt á brenti (ég fletti mér alltaf upp í símaskránni þegar hún kemur út) Greinarnar í blaðinu þvílíkar ritsmíðar að annaðeins hefur bara ekki sést. Hér eru allir að vinna frámært starf og skíturinn og leðjan sem stundum er skrifuð hér á vefinn er bara góð fyrir túnin.

    Að öllu gamni sleptu þá verðum við að gera eitthvað skemmtilegt á 25 ára afmælinu, stóra ferð eða eitthvað álíka.





    03.01.2008 at 08:26 #607958
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    Það sem ég átti við með því að tala um að fela útgáfuna öðrum var ekki að greiða öðrum fyrir verkið, heldur að bjóða öðrum að taka verkið að sér gegn því að þeir hefðu tekjurnar af auglýsingasölunni.
    Það ætti ekki að gera neitt fyrir okkur nema að skapa þægindi.
    Kv. Baddi





    03.01.2008 at 10:28 #607960
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Á sá hinn sami þá líka að bera tapið ef auglýsingasala er undir væntingum? Á hann þá líka að sjá um innheimtu auglýsingatekna sjálfur?
    Að selja auglýsingar og safna styrkjum fyrir klúbbinn er eitt það erfiðasta verkefni sem ég hef lent í. Maður var rétt nýbúinn að selja auglýsingu til fyrirtækis, þá var valtrað yfir fyrirtækið hér á spjallinu og í kjölfarið dró fyrirtækið auglýsingakaupin til baka. Einnig lenti ég í því að svara fyrir skítkast og afhroð sem hin ýmsu fyrirtæki hafa þurft að sitja undir hér á spjallinu í gegnum tíðina.
    þess vegna segi ég að auglýsingasala fyrir þetta Setur fór langt fram úr væntingum og ekki verður hægt að treysta á að sum fyrirtækin kaupi auglýsingar aftur. Þó fer það eftir því hvernig yfirskítkösturum klúbbsins tekst til að drepa mannorð fyrirtækja á þessu ári, en þeim gekk ágætlega til í lok síðasta árs.
    Þar fyrir utan má reikna með að ef einhver aðili hagnast á eða hefur tekjur af útgáfu Seturs þá fái hann virkilega að kenna á skítkösturum klúbbsins sem aldrei fyrr.
    kveðja
    Siggi





    03.01.2008 at 10:56 #607962
    Profile photo of Oddur Örvar Magnússon
    Oddur Örvar Magnússon
    Participant
    • Umræður: 59
    • Svör: 410

    Sælir veriði félagar.

    Ég vil þakka sérstaklega fyrir útgáfuna á þessu Seturs blaði. Blaðið er gott þó að það sé ekki gallalaust. Gagnrýni á blaðið getur verið af hinu góða, og þeir sem það gera ættu umsvifalaust að gefa kost á sér í ritnefnd blaðsins svo hægt sé að bæta úr þeim vanköntum sem þeim finnst vera á blaðinu. Margar hendur vinna létt verk.

    Við sem búum á landsbyggðinni finnst þetta blað alveg ómissandi og það á að vera skylda klúbbsins að gefa það reglulega út því það tengir mjög marga við kúbbinn þó ekki sé það annað en að lesa setrið. Ef útgáfa Setursins yrði hætt mundu margir hætta að borga félagsgjöldin. Hjá mér er setrið við rúmstokkinn og gott að grípa í það til lesturs fyrir svefninn.

    Kveðja Oddur Örvar Húsavík Þ-450





    03.01.2008 at 11:50 #607964
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    sæll Siggi
    Þetta sem Balvin er að stinga upp á er alþekkt dæmi í blaðabransanum hér heima (og væntanlega erlendis líka), hef sjálfur tekið þátt í svona verkefni sem verktaki.
    Verktakinn ber að sjálfsögðu alla fjárhagslega áhættu (tap/gróði) en hann skuldbindur sig til þess að sjá um efnisöflun, safna auglýsingum og gefa blaðið út.
    Það er vonandi að atvinnumenn í auglýsingasöfnun sem myndu vinna þetta sem sitt aðalstarf ættu að geta náð inn meiri tekjum heldur en félagsmenn sem vinna þetta í frítíma sínum.
    Á þessu er líka vankantar eins og gæði á efni í blaðinu, fjöldi auglýsinga, gæði í umbroti og prentun o.sfrv. Hvort þetta er vænleg leið fyrir klúbbinn veit ég svo sem ekki ….
    kveðja
    Agnar





    03.01.2008 at 12:52 #607966
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Mín skoðun er sú að ef að félagsskapur er að standa fyrir því að gefa út félagsrit þá eigi það að vera í höndum félagsmanna.
    –
    Þá langar mig að velta upp smá pælingum í sambandi við þessa útgáfu.
    Það eru fjöldi manns í þessum klúbb sem að eru að vinna hjá fyrirtækjum. Fólk gæti nú hjálpaðst að við að fá auglýsingar og styrki með því að tala við "auglýsingadeildina" í sínu fyrirtæki í samráði við ritnefnd.
    Ég er vissum að ritnefnd myndi þiggja alla hjálp við það.
    Margt smátt gerir eitt stórt … eða ekki.

    kv. stef… ekki sú skarpasta





    03.01.2008 at 13:29 #607968
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Aðferðin sem Agnar vitnar til var notuð þegar bókin Farið var gerð. Ég held að það sé reynsla sem engan langi til að endurtaka.

    Ferðaklúbburinn 4×4 er hagsmunafélag áhugamanna um fjórhjóladrifsbifreiðar. Hann er ekki fyrirtæki, og það er ekki markmið í sjálfu sér að hann velti sem mestum peningum. Hann stendur og fellur með starfi áhugamanna, sem hafa á bak við sig stóran hóp félagsmanna. Svona félag þarf að gefa út fréttabréf reglulega, en það er ekkert sem segir að það þurfi að vera litprentað eða af eitthverri tiltekinni stærð. Í flestum tilfellum er hægt að dreyfa frettabréfinu rafrænt. Í þessum efnum þurfa menn einfaldlega að kunna að sníða sér stakk eftir vexti.

    Það er mjög varasamt þegar félagið verður háð stuðningi utankomandi aðila, hvort sem það eru olíufélög, ríkisstofnanir sem reyna að reka fjarskiptaþjónustu, eða eitthverjir aðrir.
    Það á ekki að skipta við eða gera samninga við aðila sem reyna að ritskoða efni fréttabréfsins eða vefsíðunnar. (Í þessu felst svar við ítrekaðri spurningu Baldvins hér að ofan.)

    -Einar





    03.01.2008 at 14:23 #607970
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Útivist hefur um nokkurra ára skeið fariðl þá leið sem Baldvin varpar upp, þ.e. að fá utanaðkomandi aðila til að sjá um útgáfu tímarits fyrir félagsmenn. Efnið kemur þá frá félagsmönnum en fjárhagsleg ábyrgð og auglýsingasöfnun í höndum verktakans sem er sérhæfður á því sviði. Ef menn vilja gefa út veglegt og flott rit held ég að þetta sé allavega mun raunhæfari leið heldur en sú sem byggir á auglýsingasöfnun ritnefndarmeðlima í frítíma sínum. Þó eitthvað hafi misfarist við útgáfu á Farinu, þá voru það engin ófrávíkjanleg lögmál sem orsakaði það. Það er svo allt annað mál hvort skynsamlegasta leiðin sé að spóla aftur til útgáfu á einföldum og ódýrum bleðli sem menn geta þá annað hvort fengið í pósti eða á tölvupósti. [url=http://www.jorfi.is/frettabr/109_2007-10.pdf:2eoomvj7][b:2eoomvj7]Fréttabréf Jorfí[/b:2eoomvj7][/url:2eoomvj7] stendur t.d. ágætlega fyrir sínu í sínu einfalda formi. Hvorugur þessara möguleika er eitthvað sem hægt er að sópa út af borðinu án íhugunar
    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 41 through 50 (of 50 total)
← 1 2 3

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.