FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Setrið

by Bjarki Logason

Forsíða › Forums › Spjallið › Skálamál › Setrið

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Magnús Guðmundsson Magnús Guðmundsson 15 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.10.2009 at 10:50 #207493
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant

    Spurt var hvort ekki hefði verið meiningin að setja undirstöðurnar fyrir viðbyggingunni svo að hægt væri að halda byggingaréttinum en ekki af því að það stæði endilega til að stækka strax. Svarið við þessu var að bíslagið er ekki á réttum stað sem sagt húsið er ekki symmetrískt eins og það er á teikningunum. Og það á að vera samkvæmt teikningunum.

    Hvað þýðir þetta?
    Veit ekki betur en að húsið hafi verið teiknað upp aftur fyrir 2 eða 3 árum, þannig að teikningar af húsinu eins og það er í dag ættu nú að vera í lagi!!!!!!!!!!!!!!!!
    Kv Bjarki

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 18.10.2009 at 20:16 #662656
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Sæll Bjarki. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá var sótt um leyfi til stækkunar árið 2004 þegar Eyþór var í skálanefnd. Það leyfi féll úr gildi árið 2006 og þá um haustið fór byggingafulltrúi uppeftir og mældi húsið og eftir þvi sem mér skilst var húsið ekki samkvæmt þeirri teikningu sem þá var til, meðal annars hafði bíslaginu ekki verið stillt upp á réttan stað. Það var samt farið í að steypa sökkla undir síðasta áfanga bygginginarinnar haustið 2008 og húsið teiknað með þeim breytingum sem á því þurfti að gera svo að húsið yrði symetrískt svo sem upphaflega var ráð fyrir gert. Það hefði verið lítið vit í því að hafa viðbygginguna á upphaflegum stað, þá hefði myndast rúmlega hálfs metra gangur milli bíslags og nýbyggingar, hefði sennilega alltaf verið fullur af snjó á veturna og húsið ekki fallega útlítandi. Húsið var því teiknað með lengdri millibyggingu og þar að auki létum við teikna kvist á millibygginguna til að geta fengið neyðarútgang þar. Þannig stendur því málið í dag að byggingaleyfi er til næstu tveggja ára, þ.e. við höfum tvö ár til að koma byggingunni í fokheldi. Ég hef sjálfur alltaf staðið í þeirri meiningu að til stæði að stækka Setrið og hef því unnið að því ásamt öðrum meðlimum skálanefndar. En ég hef líka verið að kalla eftir stefnumörkun til framtíðar hvað varðar Setrið fyrir framtíðarskálanefndir að starfa eftir, langtímastefnu um hvað við ætlum með Setrið og hvernig við ætlum að hafa það með tilliti til tækni og nútímaþæginda. Hvort það er svo yfirleitt vilji fyrir því meðal félagsmanna að stækka Setrið verðum við að fá fram, vilji félagsmanna ræður. Við getum þá alltaf mokað yfir þessa sökkla. En ég ítreka það sem ég sagði áðan, ég hef frá fyrstu tíð staðið í þeirri meiningu að til stæði að stækka og að því hef ég unnið að heilindum. Það er ekki fyrr en fyrst núna um þessar mundir að ég er að byrja að heyra efasemdarraddir úr einhverjum áttum um að það eigi að slá þetta af. Og ekki skal standa á mér að slá þetta af ef það er vilji félagsmanna. Kveðjur, Logi Már. Skálanefnd.





    18.10.2009 at 21:19 #662658
    Profile photo of Þórður Ámundason
    Þórður Ámundason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 238

    Ekki má slá af viðbyggingu setursins. Ég er hlynntur því að það verði haldið áfram með það sem þarf að gera. Ég segi nei við sé að slegið af viðbyggingunni.





    20.10.2009 at 02:42 #662660
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Mér finnst við vera henda [b:1kc8qrj0]meiri hagsmunum fyrir minni [/b:1kc8qrj0]ef við hættum við stækkunina á Setrinu. Sú viðbót sem stækkunin leyfir auk úlits hússins bíður uppá ýmsa möguleika t.d. þá að hægt verði í framtíðinni að halda alla landsfundi og aðra árlega viðburði klúbbsins þarna uppfrá. Að sjálfsögðu verður alltaf að skoða hagkvæmustu leiðir að öllum markmiðum og hefur mér fundist skálanefnd hafi unnið að því hörðum höndum t.d. með uppkomu Gsm lyklakerfis og lagfæringum á ljósavélinni. Einnig má telja 12w kerfið sem enginn vafi leikur á að komi til með að spara okkur mikinn pening .

    Kv. Magnús G.





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.