FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Setrið

by Guðmundur Magni Helgason

Forsíða › Forums › Spjallið › Skálamál › Setrið

This topic contains 25 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Kjartansson Einar Kjartansson 17 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.11.2007 at 20:11 #201204
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant

    Ef ljósavél bilar…
    Getum ekki notað ljósin
    Getum ekki notað fjarskiftatækin
    Getum ekki notað klósettin (vatnsdæla)
    Getum ekki notað rafmagnsofna
    Getum ekki notað kamínuna (dagsskömmtun af hráolíu)
    En..
    Gátum komið kamínunni í gang í gær þar sem það var hráolia á kútnum úti sem var afgangur frá síðustu skálagestum. En hún var ekki í fullkomnu lagi, við komum henni í gagnið seint í gærkvöldi með hjálp frá vönum manni. En hún hitar ekki vatnið sem fór inní efri skála þar sem þar var vatnsdæla sem sá um þá hringrás.. gátum því bara hitað neðra rýmið.

    Mér persónulega finnst setrið alltof háð ljósavélinni. Ef eitthvað klikkar þá er nánast allt lamað. Og það var bara einn gashitari sem við gátum notað og lítið gas..

    Kv. Magni þreyttur og pirraður eftir kalda helgi

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 21 through 25 (of 25 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 19.11.2007 at 22:22 #603924
    Profile photo of Þorbjörn
    Þorbjörn
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 545

    Ég er alveg pottþéttur á að skálanefndin viti af þessu, ég var í sambandi við Magga í skálanefndinni á laugardagsmorgninum og þá fékk ég reyndar upplýsingar um 12 volta rafmagnið.Þeir sem voru þarna og voru vakandi fengu að vita af því,ég bara get ómögulega munað hverjir voru þarna vakandi ennþá.En allavega eftir þetta þá var ég farinn aftur undir Loðmund að hjálpa Jóa Gumma og Jenna.

    kv Bubbi





    19.11.2007 at 22:23 #603926
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Ég veit nú ekki betur en að það hafi einmitt verið skálanefndarmaður með þeim í ferðinni þannig að bilanatilkynningin hefði nú átt að skila sér hratt og örugglega þrátt fyrir að þeir lesi ekki spjallið. Þannig að útkallstíminn á viðbrögðum getur ekki hafa verið styttri.
    Hitt er annað mál að auðvitað vill maður að skálar séu í lagi og hlutirnir virki og er það skiljanlegt en eins og þarna kemur í ljós sem og í fyrra í Landmannalaugum þá er allt duttlungum háð og maður verður að búast við því.
    Kv. stef…





    19.11.2007 at 22:54 #603928
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Skálanefndin er að vinna í vélarmálum. Þ.a.s allt er undir kontról. Eins vant er með skálanefndina. En einsog komið hefur fram hér að ofan er jú varhugavert að veðja einungis á einn hest. Og vera svona mikið háð einu apparati.





    20.11.2007 at 02:15 #603930
    Profile photo of Eiríkur B. Jóhannesson
    Eiríkur B. Jóhannesson
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 14

    Það voru eitthverjir sem gengu fram og aftur um skálann að leita að neiðarrofa sem átti að vera fyrir 12V rafmagnið en sá rofi fannst aldrei.





    20.11.2007 at 05:00 #603932
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég held að menn ættu að hugsa sig vel um áður en þeir henda peningum í viðgerðir eða endurnýjun á þessari ljósavél. Með því að hætta að nota rafmagnshitun mætti minnka olíunotkun um c.a. 80%.
    Webasto olíu kynding, svipuð og margir eru með í bílunum, skilar um 13 kW af hita og notar 4 amper á 12 voltum. Þar sem miðstðin þyrfti ekki að ganga nema brot af tímanum er meðal rafmagnsþörfin miklu minni. Þetta rafmangn er auðvelt að fá með einni vindrellu og 2 litlum sólarsellum. Svona kynding er margfalt einfaldari í notkun en bæði ljósavelin eða sóló miðstðin, aðeins þarf að þarf einn rofa til að kveikja á kyndingunni.

    Það er komin góð reynsla á að nota sólarsellur til þess að fá rafmagn til ljósa í fjallaskálum. Með fleiri sellum má líka fá rafmagn fyrir vatnsdælur og talstöðvar. Síðan er hægt að hafa sem varaleið að tengja kerfið við spiltengi á bíl, einn dísel jeppi í lausagangi getur framleitt hátt í 100 A, til þess að hlaða inn á geyma.

    Með þessu myndi margt vinnast:
    Enfaldara í notkukn, nóg að ýta á einn rofa til þess að
    fá ljós og hita.
    Margfalt minni rekstrarkostnaður, bæði vegna eldsneytis og viðhalds.
    Enginn hávaði.
    Mögulegt verður að hafa alltaf hita á skálanun, þannig að ekki frjósi i honum. Þetta myndi koma í veg fyrir raka og þannig minnka viðhald og gera aðkomu vistlegri, t.d. ef hitia er haldið yfir 5 gráðum.

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 21 through 25 (of 25 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.