This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 20 years, 10 months ago.
-
Topic
-
Sælir.
Ég er að spá í til að auka endingu og kælingu vélarinnar að setja inn í kerfið hjá mér lítinn olíukæli, framarlega á bílinn, neðan við eða framan við vatnskassann. Er eitthvað sem þarf að hafa í huga við ísetninguna? Er málið bara að festa hann á skynsamlegum stað og svo tengja við?
Og svo er ég með sjálfskiptingu og vökvastýri sem eru á sama vökvanum, gæti ég ekki kælt skiptinguna aðeins niður með þvi að setja inn kæli á það kerfi líka, sams konar og ég nefndi fyrr?
Endilega reynslumeiri menn segi sitt um þetta.P.s.
Þetta er gömul smallblock 302 með líklega c4 skiptingu við. Ekkert er nýlega upptekið, en allt virkar :).
You must be logged in to reply to this topic.