FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sérhagsmunagæsla

by Dagur Bragason

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Sérhagsmunagæsla

This topic contains 37 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Snorri Ingimarsson Snorri Ingimarsson 14 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 09.10.2010 at 13:38 #215075
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant

    Á eyjunni er enn og aftur pistill eftir Pál Ásgeir stjórnarmann í Ferðafélagi Íslands þar sem hann „hraunar“ yfir landsbyggðarfólk http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/07/landsbyggdarvael/#comments
    Ekki skil ég af hverju Ferðfélag Íslands velur mann með slíkar skoðanir í stjórn sína, en Forseti ferðafélagsins Ólafur Örn Haraldsson kom með þennan mann á fund Samút, sem væntanlegan fullrtúa FÍ í Samút, en af sjálfsögðu var honum algjörlega hafnað af öðrum félögum í Samút.
    Hvert stefnir FÍ? Er Ferðfélag Ísland orðið gegn eigin stefnu sem sett var á stofnfundi þess félags http://fi.is/um-fi/stofnun-felagsins/ en skoðanir stjórnarmanna spegla yfirleitt stefnu þess félagskapar sem þeir eru stjórnarmenn í.

    Árni Pétur Hilmarsson skrifaði þennan ágæta texta hér að neðan og veitti hann mér góðfúslega leyfi til að byrta hann hér.

    kveðja Dagur

    “ Árni Pétur Hilmarsson // 9.10 2010 kl. 11:43

    Eitt sinn heyrði ég nýyrðið „moldarbarðsmiga“ . Þegar ég spurði orðsmiðinn að merkingu orðsins svaraði hann: ,,Þetta er einstaklingur sem kemur til æskustöðvanna á eins til fimm ára fresti, andar djúpt að sér, kastar af sér þvagi, blessar það að ekkert hefur breyst síðan í uppeldinu, stígur upp í bíl sinn og hverfur á braut.“ Þessir menn eru undantekningalítið verstu óvinir uppeldisstöðvanna, því þeir reyna með ráð og dáð að standa í vegi fyrir hvers konar breytingum eða framþróun, því allt skal vera eins og það var. Páll var eitt sinn landsbyggðarmaður, bjó fyrir vestan en af einhverjum ástæðum gafst hann upp á því að búa þar og fór suður eins og svo margir aðrir, sennilega til þess að sækja meiri lífsgæði.
    Ég veit ekki alveg hvað það er sem gerir það að verkum að menn sem hafa gefist upp á því að búa út á landi og hafa flúið á mölina, taka sér þann rétt að afskrifa baráttu fólks sem er að verja sín núverandi lífsgæði og kalla það landsbyggðarvæl.
    Orðið „landsbyggðarvæl“ fer ofboðslega í taugarnar á mér. Yfirleitt er þetta barátta fólks við að verja lífgæði sín, verja störf og tryggja samgöngur sem er afskrifað sem landsbyggðarvæl. Það er ekki eins og landsbyggðin sé í stórsókn, við erum í varnarbaráttu enda er fólksfækkun viðvarandi.
    Ég ætla ekki að detta ofan í tölfræði eins og það að innlegg landsbyggðafólks er meira en tvöfalt meira til þjóðarbúsins en höfuðborgarbúans, né heldur að af hverjum tveimur krónum sem lansdbyggðamaðurinn borgar í skatt fær hann eina til baka í formi þjónustu.
    En það sem ég er að reyna að koma til skila er að það er ekki um neina ölmusu okkur til handa að ræða þegar við gerum þá sjálfsögðu kröfu að þjónusta við okkur sé ekki skert meira en annars staðar.
    Við búum við samtryggingakerfi og því drögum við öll vagninn saman, það er vel. En brauðið sem í vagninum er á að deilast út eins jafnt og hægt er. Það gerist ekki með því að í niðurskurði til heilbrigðismála sé skorið niður um 85% úti á landi en 15% á höfuðborgarsvæðinu.
    Ég tók ákvörðun um að búa út á landi. Ég sé ekki eftir því og er full viss um það að lífsgæði mín og hamingja er meiri hér en ef ég byggi á mölinni.
    Ég á þrjú börn og mér finnst það hart ef það að verja það að hér sé sjúkraþjónusta sé kallað „landsbyggðarvæl“.
    Ég hef stundum velt fyrir mér hver hvatinn fyrir skrifum eins og þessum eftir Pál sé. Það sem mér dettur í hug er eftirfarandi: Sérhagsmunagæsla. Páll virðist vera svo einkennilega samsettur að hann getur ekki stundað sitt áhugamál ef einhver er nærri. Hann getur ekki unnt öðrum að stunda sín áhugamál s.s. hestamensku, mótorhjól, vélsleða eða jeppamennslu, virðist það vera af þeim sökum að hann gæti séð þá eða heyrt einhverstaðar og þar með er göngutúrinn ónýtur. Af þessu leiðir að kannski finnst Páli bara best að fara út á land í göngutúr ef það býr enginn þar. En auðtvitað vona ég að þessar hugleiðingar mínar séu rangar.
    Annars finnst mér ánægjulegt að sjá efnistökin í nýjasta pistli Páls og vona að hann haldi sig við að skrifa bara um tjaldið sitt í framtíðinni, það er alla vega engum til tjóns.
    Árni Pétur Hilmarsson“

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 37 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 09.10.2010 at 13:56 #705784
    Profile photo of Árni Freyr Rúnarsson
    Árni Freyr Rúnarsson
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 298

    Ég sé ekki betur en að FÍ er farið að snúast gegn sjálfu sér og finst skrítið að þeir sem í ferðafélaginu eru skuli kjósa yfir sig stjórn sem eiðir félaginu upp innanfrá,





    09.10.2010 at 16:16 #705786
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ekki að það heyri upp á mig að bera í bætifláka fyrir FÍ, ætti sjálfsagt frekar að sitja á fjósbitanum og fitna með glott á vör, en ég næ ekki alveg hvers vegna félagi minn Dagur Bragason er að spyrna skoðanir Páls á byggðamálum við félag sem hann er stjórnarmaður í. Ég hef setið í ýmsum stjórnum, m.a. verið framundir þetta stjórnarmaður í Samút, en áskil mér samt rétt til að hafa margvíslegar skoðanir á ýmsum málum óháð því. Eða ber mér að túlka þetta svo að þar sem Samút tókst ekki að komast að sameiginlegri niðurstöðu um slóðann í Vonarskarði megi ég ekki tjá þá skoðun mína að hann eigi að vera opinn? Auðvitað kem ég ekki fram í nafni samtakanna með þá skoðun en sem einstaklingur geri ég það hiklaust, m.a. á bloggsíðu Páls. Burt séð frá skoðunum manna á afstöðu Páls til ýmissa mála þá er nauðsynlegt að skoða málin úr mismunandi áttum.
    Kv – Skúli





    09.10.2010 at 16:50 #705788
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Ekki þekki ég nákvæmlega munin á áherslum FÍ og Páls Ásgeirs, en hann hefur á fundum í Umhverfisstofnun komið fram eins og hann gerir á eyjunni, sem fulltrúi FÍ.
    Hann virðist ekki gera greinarmun á eigin skoðunum og stefnu FÍ þegar hann kemur fram fyrir FÍ og þess vegna skipta hans persónulegu skoðnir verulegu máli fyrir Ferðafélag Íslands.
    En ég veit Skúli að þú ruglar þessu ekki saman.
    kveðja Dagur





    09.10.2010 at 17:40 #705790
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Það er nú leiðinlegt að Skúli skuli ekki vilja bera í bætiflákann fyrir FÍ. Það hefði verið svo fjandi gaman að takast á við hann um það góða og einokunarfélag sem FÍ er orðið.
    Sennilega snúa einhverjir forkólfar FÍ sé við í gröfinni yfir andanum sem ríkir í fremstu víglínu þess meinta félags/fyrirtækis. En að því að spyrða við einsog Dagur gerir hér að ofan. Þá eru fjölmörg fordæmi fyrir því að þetta sé gert. Ætla ég hér að minna á eitt fordæmi sem Skúli gæti kannast við, en gæti þó verið búin að gleyma. Árið 2005 gaf ég út bók sem heitir “Utan alfaraleiða”. Einhvertímann eftir að bókin kom út, þá lýsti einn yfirmaður Ust yfir ónánægju sinni vegna þess að í bókinni væri hin hættulega leið um Hófsvað. Til þess að lýsa yfir óánægju sinni, þá hringdi hann í formann 4×4 (ekki í höfundinn). Mig minnir að þetta hafi hvorki verið fyrsta eða síðasta skipti sem formenn hafa fengið svona upphringingar. Það má því segja að Umhverfisráðuneytið og Umhverfisstofnun sé þér ósammála Skúli, hvað það varðar að spyrða VIÐ.

    Það að þér Skúli hafi tekist að sitja allan hringinn við borðið og komast frá því með sæmd. Er alls ekki á færi allra og fáir sem pössuðu í það skófar þitt. Þegar þú varst framkvæmdarstjóri Útivist, formaður Ferðaklúbbsins 4×4 og formaður Samút.
    Ég er sammála Degi að því leiti að það sé erfitt fyrir Pál að halda það að hann geti stimplað sig út úr FÍ í hvert sinn sem hann tjáir sig á eyjunni og þá sérstaklega þegar hann fjallar um útivist og hálendismál.
    kv Ofsi





    09.10.2010 at 17:56 #705792
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Nú er Páll Ásgeir búinn að "hagræða" blogginu sínu og taka út mitt andsvar og nokkurra annara þar sem mynnst er á að hann sé stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands, Þótt allir þessir póstar hafi verið skrifaðir undir fullu nafni.
    Þetta var einhverntíman kallað ritskoðun, en sýnir bara hvað persónan er ómerkileg.

    kveðja Dagur





    09.10.2010 at 18:12 #705794
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hér má sjá mitt komment neðst [url:qk76wjmm]http://webcache.googleusercontent.com/search?q=cache:XJ351QhZZV8J:blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/07/landsbyggdarvael/+http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/07/landsbyggdarvael/%23comments&cd=1&hl=is&ct=clnk[/url:qk76wjmm] en Páll Ásgeir er búinn að eiða því út hér: [url:qk76wjmm]http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/07/landsbyggdarvael/#comments[/url:qk76wjmm]

    kveðja Dagur





    09.10.2010 at 20:43 #705796
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Póstur Hreins Hjartarsonar hefur verið eyddur út úr bloggi Páls Ásgeirs.
    En hann mynntist á að minn póstur og annarra hafi verið eytt úr boggi Páls.
    http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10 … /#comments





    10.10.2010 at 00:44 #705798
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Hann er búinn að henda út fullt af póstum eða andsvörum úr þessu bloggi sínu frá því í dag…





    10.10.2010 at 11:11 #705800
    Profile photo of Björn Ingi Óskarsson
    Björn Ingi Óskarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 448

    Ætli það geti verið að Páll þjáist af "Palli var einn í heiminum" komplexum. Maður líka veltir því oft fyrir sér hvað manninum gangi eiginlega til með þessu öllu og það er nú kannski ekki furða þó að sumir kalli hann óvin jeppamanna númer eitt, en mér sýnist að nú sé hann búinn að bæta við allri landsbyggðinni og það er nú nokkuð stór biti.

    Kv. Björn Ingi "Landsbyggðamaður"





    11.10.2010 at 19:57 #705802
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Var að setja pistil inn hjá Páli Ásgeiri, stjórnarmanni í Ferðafélagi Íslands, leiðsögumanni með gangandi ferðamenn og ötulum baráttumanni gegn ferðafrelsi almennings um Vonarskarð og víðar:
    [url:3umaht5z]http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/07/landsbyggdarvael/comment-page-2/#comment-1565[/url:3umaht5z]





    11.10.2010 at 20:51 #705804
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Var pistlinum ekki eytt út á 0,1 sek, sýnist það allavega.





    11.10.2010 at 21:05 #705806
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Þessi bráðskemmtilegi öfgapistill var á bloggi Páls Ásgeirs í dag he he he

    HF // 11.10 2010 kl. 11:45

    Það er full ástæða til að vernda venjulegt fólk fyrir tækjaóðum mönnum sem vilja eigna sér landið og allt sem á því er. Þarna á ég annars vegar við jeppa og vélhjólamenn og hins vegar við byssumenn. Oft fer þetta þó saman. Það er ótrúlegt að hlusta á málflutning byssumanna í fjölmiðlum þar sem þeir lýsa þeim skoðunum sínum að sem minnst höft skuli vera á því hvað, hvar og hvenær þeir megi skjóta dýr og fugla. Þetta er sumir hverjir stórhættulegir menn sem ganga um landið með drápsglampa í augum.
    Hvað varðar jeppa og vélhjólamenn þá hef ég reynslu af því sem landeigandi að þessir menn spóla yfir hvað sem er án þess að biðja um leyfi. Mér finnst að hreinlega ætti að gera upptæk ökutæki sem spæna í leyfisleysi yfir allt sem á vegi þeirra verður.





    11.10.2010 at 22:14 #705808
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Hér er textinn sem Páll Ásgeir stjórnarmaður í Ferðaféalgi Íslands þoldi ekki meðal athugasemda á bloggsíðunni sinni og eyddi út:

    Páll Ásgeir, skrif þín hér þar sem þú afneitar því að stjórnarseta þín í Ferðafélagi Íslands hafi nokkuð með skoðanir þínar að gera valda mér miklum ugg.
    Þau minna óþægilega á aðferðir þeirra sem hér óðu uppi undir fölsku flaggi viðskiptafrelsis og rændu mestöllum fjármunum þjóðarinnar. Þessir aðilar og varðhundar þeirra brugðust jafnan ókvæða við þegar bent var á ýmis hagsmunatengsl. Við þekkjum afleiðingarnar af þessu og líðum nú illilega fyrir að hafa ekki aðhafst fyrr.
    Nú stendur yfir annað rán án þess að almenningur átti sig á því. Í þetta sinn er það ferðafrelsið um hálendi Íslands sem sérhagmunahópar vilja taka af almenningi og nú er unnið undir fölsku flaggi náttúrverndar.
    Ránið á ferðafrelsinu er vonandi ekki sama þjóðhagslega vá og fjármunaránið en sporin hræða. Fólki er frjálst að hafa skoðanir en óþarfi er að láta fólk með skýr hagsmunagengsl komast upp með að halda þeim til hliðar þegar því hentar.





    12.10.2010 at 01:20 #705810
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Setti þetta á eyjuna.is
    http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10 … mment-1575
    Dagur Bragason // 12.10 2010 kl. 01:14

    Þetta er þörf umræða, hvað er verið að vernda og til hvers.
    Sumir hafa bent á að landið skuli vera óbreytt um aldir alda, og hefur Ómar Ragnarsson bent á þetta viðhorf í Bandarískum þjóðgörðum, en eins og við vitum öll á íslandi tekur náttúran sífeldum breytingum og er landslagið á mörgum stöðum ekki það sama í dag og fyrir 10 árum. Landslag á Íslandi tekur hvað hröðustu breytingum þegar við berum saman við önnur lönd, enda er Ísland nýtt land og er í stöðugri þróun.
    Mikilvægt er að vernda náttúruvætti og passa að umgengni skemmi ekki ásýnd landsins, en til hvers á að banna fólki að ferðast um landið og njóta. Ef umgengnin við landið er góð hver er þá ástæðan fyrir að stórir hlutar Vatnjöklsþjóðgarðar eiga ekki að vera aðgengilegir almenningi?
    Víðernishugtakið kemur upp í hugan, en það er dregið af Vilderness, sem er kennt við Vilderness act og fjallaði um algera friðum algjörlega óbyggðra landasvæða í Bandaríkjunum. Flest Bandarísku ríkin tóku þetta upp og friðuðu landsvæði algjörlega frá minjum um veru mannsins, sem voru ósnortin fyrir. Stærð þessara landsvæða voru innan við 1% af heildarflatarmáli allra ríkja nema Alaska og þar voru risastór svæði sem voru algjörlega ósnortin af manninum, þar með talinn búpeningur, ef undanskildir eru Inuitar á norðurströndinni. Þetta svæði í Alaska var um 15% af heildar flatarmáli þess ríkis og standa sífeldar deilur um þetta landsvæði vegna olíu sem þar er að finna.
    Hér á Íslandi var þetta hugtak tekið upp og lagfært og niðurstaða þingnefndar undir stjórn Kristínar Halldórsdóttur ákvað að hugtakið ósnortin víðerni skuli eiga við um hálendi Íslands þegar búið er að fjarlægja girðingar, raflínur og vélknúin ökutæki, en allt annað mátti vera óbreytt, þar með talin beit búpenings.
    Landsvæði á Íslandi sem áttu að geta fallið undir ósnortin víðerni áttu að geta átt við 55% af heildarflatarmáli landsins.
    Nú erum við að tala um Vatnajökulsþjóðgarð og er stærð hans um 14% af heildarflatarmáli landsins, sem er svipað af stærð og allt land sem er í byggð á Íslandi.
    Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs semur plagg sem heitir Sjórnunar og verndaráætlun, og er samantekt sjórnar þjóðgarðsins frá svæðisráðum og öðfrum ráðgefandi aðilum.
    Einnig er ákveðin viðskiptaáætlun um tekjur af ferðamönnum mikilvægur þáttur í ákvarðanatöku þjóðgarðsins. Þessi viskiptaáætlun tók ekker mið af heimafólki, þ.a.s. Íslendingum, og byggðist alfarið á tekjuplani af útlendingum í þjóðgarðinum, sem eiga líklega að vera um 2 miljónir á næsta á næsta ári. Ekkert er gert ráð fyrir venjulegum Íslendingum sem ferðast á eigin vegum um „þjóðgarðinn“ og er verndar og stjórnunaráætlun samkvæmt því.
    Ég tel að meiriháttar mistök hafi veri gerð við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
    Þjóðin gleymdist og er þetta stofnun garðs fyrir útlendinga, rannsóknar aðila og viðskiptaaðila.
    Það að loka elstu þjóðleið yfir hálendið, Bárðargötu, fyrir almenningi og hestafólki er bara dæmi um tillitsleysi við sögu og menningu Íslendinga.

    Dagur Bragason





    12.10.2010 at 07:44 #705812
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Athyglisverðir punktar hjá Degi. Þetta verður bara svartara eftir því sem fleiri hliðar á þessu ljóta Vatnajökulsþjóðgarðarmáli eru dregnar upp.

    Nú liggur fyrir að vinnubrögð stjórnsýslunnar í þessu máli eru lögbrot, amk hvað varðar lögboðið samráð og gegnsæi. Enda hefur forsvarsfólk þessarar vinnu, sem ég vil helst kalla rán á ferðafrelsi almennings, ekki þorað að koma í fram í fjölmiðlum til að ræða gjörðir sínar. Þar vísar hver á annan að gungusið. Réttast væri að afþakka þjónustu þessa fólks og minnka þannig yfirvofandi niðurskurð um fjölda mikilvægari starfa á landsbyggðinni.





    12.10.2010 at 09:42 #705814
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það getur verið fróðlegt að lesa fundargerðir stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. http://www.vatnajokulsthjodgardur.is/me … gerd25.pdf

    Þarna kemur meðal annars þetta fram.

    "4. Rekstrarmál 2010
    – Rekstraráætlun 2010 – samþykki
    Framkvæmdastjóri lagði fram áætlun fyrir árið. Rekstrargjöld eru áætluð 270
    milljónir, sértekjur um 100 milljónir og framlag úr Ríkissjóði um 170 milljónir.
    Reiknað er með að alls um 55 manns vinni við landvörslu og önnur störf fyrir garðinn
    næsta sumar.
     Rekstraráætlunin 2010 samþykkt."

    Samkvæmt þessu á ríkið að borga 170 milljónir með garðinum í ár eg eins að 55 vinni þar í sumar.

    Í þessu samheingi er vert að benda á, að ekki hefur verið landvörður við Gullfoss og Geysi undanfarin ár, þótt það svæði sé eitt vinsælasta og mest sótta svæði landsins.

    Ég efa það ekki, að það má mjög auðveldlega hagræða og nýta þessa fjármuni mikið betur en nú er gert.

    Góðar stundir





    12.10.2010 at 16:05 #705816
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð segir:

    "[color=#0040FF:10kybima][i:10kybima]Markmiðið með friðlýsingu Vatnajökuls og helstu áhrifasvæða hans sem þjóðgarðs er að vernda náttúru svæðisins, s.s. landslag, lífríki og jarðmyndanir, og menningarminjar þess. Auk þess að gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru svæðisins, menningar þess og sögu. Í þjóðgarðinum skal veita fræðslu um náttúru og náttúruvernd, sögu, mannlíf og menningarminjar svæðisins og stuðla að rannsóknum til að efla þekkingu á þessum þáttum.

    Þessi landnýting er til þess falinn að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins og ber því enn fremur að líta á Vatnajökulsþjóðgarð sem mikilvæga aðgerð til eflingar byggðar á svæðinu.[/i:10kybima][/color:10kybima]"

    Hvernig í ósköpunum þessar lokanir á Vonarskarði og Langasjó falla innan þessarar skilgreiningar í hugum þeirra aðila sem standa að garðinum er mér hulin ráðgáta. Er þetta yfirhöfuð löglegt ?

    kv
    Agnar





    12.10.2010 at 21:48 #705818
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Páll Ásgeir er búinn að eyða mínu kommenti þar sem talað er um vatnjökulsþjóðgarði:
    [url:15qfnvht]http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/11/thjodgardur-til-hvers/#comments[/url:15qfnvht]
    En Google geimir afrit af síðunni:
    [url:15qfnvht]http://webcache.googleusercontent.com/search?q=cache:DyvUAJw0GKYJ:blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/11/thjodgardur-til-hvers/+Dagur+Bragason+//+12.10+2010+kl.+01:14+%C3%9Eetta+er+%C3%BE%C3%B6rf+umr%C3%A6%C3%B0a&cd=3&hl=is&ct=clnk[/url:15qfnvht]
    Ef fólk ber þetta saman þá sést að hann eyðir mínu komment og breytir svo skilmálum:
    "Páll Ásgeir // 12.10 2010 kl. 08:28

    Aðgangur að athugasemdakerfinu hefur enn verið þrengdur. Nafnlausum athugasemdum verður áfram eytt en auk þess hefur ritstjórn síðunnar ákveðið að halda fáeinum aðilum utan kerfisins þótt þeir riti undir nafni.
    Þetta er tímabundin geðþóttaákvörðun og þeir sem reka sig á takmarkanir hennar verða að sætta sig við það."

    Annað frólegt er að finna á nýjasta bloggi Páls [url:15qfnvht]http://blog.eyjan.is/pallasgeir/2010/10/12/eignarrettur-a-thyfi/#comments[/url:15qfnvht] er þetta:

    "Jónas Kristjánsson // 12.10 2010 kl. 19:00

    Samkvæmt Járnsíðu og ítrekað síðan í náttúruverndarlögum frá 1999 er heimil för um hefðbundnar slóðir. Engin slóð er meira hefðbundin en Bárðargata, elzta nafngreinda slóð landsins. Reglugerð Vatnajökulsþjóðgarðs er lögbrot, enda er ráðherrann í vandræðum með hana, hefur ekki skrifað upp á hana."
    En Jónas er þekktur ritsjóri um árabil.

    kveðja Dagur





    12.10.2010 at 22:01 #705820
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sælir

    Er ekki kominn tími til að jeppamenn láti heyra almennilegha í sér, þetta er hagsmunabarátta okkar og baráttan er hörð (aðalega hinumeginn). Við þurfum að láta heyra í okur vera sýnileg það gefur okkur mikið. Komið með hugmyndir hér á vefnum látið heyra í ykkur, þessi vefu er ekki ritskoðaður eins og aðrir vefir.

    Kveðja
    Sveinbjörn (sem skrifar sem útivistarmaður, veit ekkert um stjórnarstöðu)





    12.10.2010 at 22:22 #705822
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Ég vill endilega nota hérna tækifærði og þakka Páli Ásgeiri kærlega fyrir pistla sína á eyjunni.is og öðrum stöðum. Pistlarnir hafa vakið fólk af væru blundi og varpað ljósi á þá miklu öfga skoðanir sem við er að glíma. Hvet ég því Pál til þess að halda áfram á sömu öfgabrautinni svo almenningur fari að sameinast gegn þessari fámennu öfgaklíku sem Páll tilheyrir.

    PS er þá málið að hafa Járnsíðu í hanskahólfinu :-)





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 37 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.