Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Sandblástur á felgum
This topic contains 20 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 21 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
12.02.2004 at 11:44 #193742
Mig vantar að vita hvar ég get látið sandblása og Zinka felgur.
Getur einhver hjálpað mér? -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
12.02.2004 at 12:37 #488426
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll.
Veit þetta ekki en bendi á annan möguleika.
Hjá Vírneti í Borgarnesi er hægt að fá felgur galvaníseraðar. Ég kann ekki alveg skil á þessu en mér skilst að þær séu fyrst settar í sýrubað sem eyðir öllu ryði og síðan galvanhúðaðar. Ég er með fjórar felgur 15" venjulega stærð undir Cherokee í þessari meðferð núna og fæ þær á morgun. Gjaldtakan er eftir þyngd, mér var sagt að mínar felgur myndu kosta um fjögur þúsund kall alls, þ.e. fyrir 4 stykki.
Menn hafa ágæta reynslu af þessu en ég skal ekki fullyrða hvort þetta stenst samanburð við sandblástur og zinkhúðun.Kveðja
Haukur Gunnarsson
12.02.2004 at 12:37 #493852

12.02.2004 at 12:44 #488428Af þessu hef ég góða reynslu, þetta læt ég gera við allar mínar felgur með góðum árangri. Felgurnar koma nokkuð sléttar frá þeim Vírnetsmönnum og er ekkert að gera nema að sprauta þær með grunni og svo lit að eigin vali. Ég er með felgur undir Bronconum með 10 ára gamalli galvanihúðun og ekki örlar á ryði.
Bestu kveðjur, Hjölli.
12.02.2004 at 12:44 #493854Af þessu hef ég góða reynslu, þetta læt ég gera við allar mínar felgur með góðum árangri. Felgurnar koma nokkuð sléttar frá þeim Vírnetsmönnum og er ekkert að gera nema að sprauta þær með grunni og svo lit að eigin vali. Ég er með felgur undir Bronconum með 10 ára gamalli galvanihúðun og ekki örlar á ryði.
Bestu kveðjur, Hjölli.
12.02.2004 at 13:07 #488430Hjá USH að Berghellu 2 í Hafnarfirði (co Ari) sandblása, zinksprauta og mála þeir fyrir þig. Málningin sem þeir nota er níðsterk tveggja þátta málning, epoxígrunnur og yfirmálun með úrethan. Hef verið varaður við að heitgalvanísera felgur og er það vegna vandamála við viðloðunar málningarinnar.
Kveðja, Gísli
12.02.2004 at 13:07 #493857Hjá USH að Berghellu 2 í Hafnarfirði (co Ari) sandblása, zinksprauta og mála þeir fyrir þig. Málningin sem þeir nota er níðsterk tveggja þátta málning, epoxígrunnur og yfirmálun með úrethan. Hef verið varaður við að heitgalvanísera felgur og er það vegna vandamála við viðloðunar málningarinnar.
Kveðja, Gísli
12.02.2004 at 13:17 #488432Ég lét þá hjá Sandtak í Hafnarfirði (rétt hjá Álverinu) sandblása og Zinka felgurnar mínar og er mjög ánægður með árangurinn. Sprautaði þær svo sjálfur með úðabrúsum frá Bílanaust. Ódýrt, flott og virkar!
Kv, ÓAG.
R-2170.
12.02.2004 at 13:17 #493861Ég lét þá hjá Sandtak í Hafnarfirði (rétt hjá Álverinu) sandblása og Zinka felgurnar mínar og er mjög ánægður með árangurinn. Sprautaði þær svo sjálfur með úðabrúsum frá Bílanaust. Ódýrt, flott og virkar!
Kv, ÓAG.
R-2170.
12.02.2004 at 14:10 #493864Ekki hef ég orðið var við að nokkuð vanti upp á viðloðun málningar við galvanihúðaðar felgur, hef þó látið vinna 3 ganga á þennan hátt og sprautað svo með grunni og síðan málningu. Hinsvegar er zonkhúðun örugglega ekki verri kostur.
Kveðja, Hjölli.
12.02.2004 at 14:10 #488434Ekki hef ég orðið var við að nokkuð vanti upp á viðloðun málningar við galvanihúðaðar felgur, hef þó látið vinna 3 ganga á þennan hátt og sprautað svo með grunni og síðan málningu. Hinsvegar er zonkhúðun örugglega ekki verri kostur.
Kveðja, Hjölli.
13.02.2004 at 01:09 #493868Sælir skrifendur! Hér erum við búnir að fá verð-viðmiðun frá Vírneti í galvaniseringu, en hvað kostar hin aðferðin þ.e. sandblástur og zinkhúðun? Hvað er gert við álfelgur?
Bkv. Magnús G.
13.02.2004 at 01:09 #488436Sælir skrifendur! Hér erum við búnir að fá verð-viðmiðun frá Vírneti í galvaniseringu, en hvað kostar hin aðferðin þ.e. sandblástur og zinkhúðun? Hvað er gert við álfelgur?
Bkv. Magnús G.
13.02.2004 at 07:10 #493871Það er einn náungi hér um slóðir sem heitir að mig minnir Lúðvík Bjarnason sem er að sandblása og zinkhúða felgur og þetta lítur ljómandi vel út hjá honum. Mér skilst líka að verðið sé sanngjarnt. Hef ekki símanúmer en get reynt að hafa upp á því.
13.02.2004 at 07:10 #488438Það er einn náungi hér um slóðir sem heitir að mig minnir Lúðvík Bjarnason sem er að sandblása og zinkhúða felgur og þetta lítur ljómandi vel út hjá honum. Mér skilst líka að verðið sé sanngjarnt. Hef ekki símanúmer en get reynt að hafa upp á því.
17.02.2004 at 21:30 #493875best er að sandblása og sprautusinka felgurnar ekki (heitsink),síðan er hægt að pólýhúða felgurnar.
sandafl eru mjög góðir að sandblása og sinka
hk sandblástur í hafnarfyrði er með mjög fínan sand þá verða felgurnar mjög sléttar.
Síðan er hægt að fara með felgurnar sandblásnar í pólýhúðun og þeir setja grunn lakk og glæru þetta er plastefni sem er bakað við 200 gráður í 30 mínútur.
17.02.2004 at 21:30 #488440best er að sandblása og sprautusinka felgurnar ekki (heitsink),síðan er hægt að pólýhúða felgurnar.
sandafl eru mjög góðir að sandblása og sinka
hk sandblástur í hafnarfyrði er með mjög fínan sand þá verða felgurnar mjög sléttar.
Síðan er hægt að fara með felgurnar sandblásnar í pólýhúðun og þeir setja grunn lakk og glæru þetta er plastefni sem er bakað við 200 gráður í 30 mínútur.
20.02.2004 at 21:14 #493879
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Einhver spurði hvað væri hægt að gera fyrir álfelgur. Ég er með póleraðar álfelgur sem lakkið var flagnað af á köflum og ljót oxidering í lakklausu skellunum. Ég fékk mér lakkleysi frá Hempels (Slippfélaginu) og bar ríkulega á felgurnar (passa bara að bera ekki á innan í spokein ef menn eru með þannig felgur t.d. það sem er gullitað á Grand Cherokee Ltd.). Síðan háþrýstiþvoði ég felgurnar, pússaði álið og frískaði upp með plastmottu sem sprautarar nota til að glatta lakk. Þegar tæringarpollarnir voru horfnir þvoði ég felgurnar með álfelguhreinsi sem inniheldur sýru (þetta gerir þær ljósari) lét felgurnar þorna vel og spautaði loks yfir með glæru lakki. Mér fannst þetta koma vel út en þetta er auðvitað smá vinna og dálítið sóðalegt á köflum, en vel þess virði.
20.02.2004 at 21:14 #488442

04.03.2004 at 01:34 #493883
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég var að na i minar felgur til Hjalla í HK Sandblæstri i dag.Hann er algjör snillingur i þessu hann notar gratin sand sem gefur miklu fínni áferð en venjulegur sandblásturs sandur.
04.03.2004 at 01:34 #488444
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég var að na i minar felgur til Hjalla í HK Sandblæstri i dag.Hann er algjör snillingur i þessu hann notar gratin sand sem gefur miklu fínni áferð en venjulegur sandblásturs sandur.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.