FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Samstaða.com

by Karl GuðJónsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Samstaða.com

This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Karl GuðJónsson Karl GuðJónsson 15 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.03.2010 at 13:13 #211775
    Profile photo of Karl GuðJónsson
    Karl GuðJónsson
    Participant

    Niðurstaða aðgerðafundar
    29. mar. 2010
    Bjarni Bergmann

    Aðgerðafundur, sá er fór framm á Umferðamiðstöð kl 14 í dag skilaði þeirri niðustöðu að næstu vikuna verður skipt við N1 og ekkert annað olíufélag. Biðjum við alla að sýna samstöðu í þeirri aðgerð. Til næsta blaðamannafundar verður boðað þriðjudaginn 6. apríl, á sama stað á sama tíma en þá verður dregið upp á nýtt úr pottinum og verður viðskiptum beint á eitt olíufélag í mánaðar tíma.

  • Creator
    Topic
Viewing 1 replies (of 1 total)
  • Author
    Replies
  • 30.03.2010 at 13:15 #688642
    Profile photo of Karl GuðJónsson
    Karl GuðJónsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 563

    Fréttatilkynning frá SAMSTÖÐU – Samtökum um almannaheill, mánudaginn 22. mars 2010.

    Þjóðarátak í almannaþágu

    -Lækkum bensínverð með samstilltu átaki!

    Markmiðið með því átaki sem SAMSTAÐA – Samtök um almannaheill, kynnir hér, er að ná breiðri samstöðu meðal þjóðarinnar um að sporna gegn ört hækkandi bensínverði. Augljós skortur er á samkeppni á sviði bensín- og olíusölu og marga grunar að ólöglegt verðsamráð milli olíufélaga sé enn við lýði enda hækka þau ávallt verðið hvert í takt við annað, fljótt og örugglega, en lækka það seint og illa.

    Himinhátt bensínverð – bein og óbein áhrif

    Við verðum að horfast í augu við það að samgöngutæki númer eitt á Íslandi í dag er bíllinn, sama hversu „græn” við verðum í náinni framtíð. Himinhátt bensínverð bitnar á landsmönnum öllum, beint og óbeint. Beinu áhrifin eru þau að við greiðum nú á þriðja hundrað krónur fyrir hvern lítra! Óbeinu áhrifin eru m.a. hækkun flutningsgjalda, hækkun vöruverðs vegna hærri flutningsgjalda og hækkun verðbótaþáttar lána vegna bindingar við vísitölu neysluverðs. Þetta er einn samfelldur vítahringur og staðan versnar dag frá degi.

    Þetta ástand bitnar ennfremur mjög hart á atvinnubílstjórum. Mikill samdráttur hefur orðið hjá leigubílstjórum, sendibílstjórum, rútubílstjórum, flutningabílstjórum – og þannig mætti lengi telja – og ekki sér fyrir endann á þeim samdrætti. Við svo búið má ekki lengur standa. Mælirinn er fullur! Nú grípum við til róttækra en raunhæfra aðgerða! Sýnum SAMTÖÐU!

    Skiptum einungis við eitt félag!

    Sú leið sem við hyggjumst fara er að sniðganga öll olíufélögin, nema eitt, í heila viku, til að byrja með. Tilviljun ein mun ráða hvaða félag verður fyrir valinu, en aðferðina við valið kynnum við hér og nú: Eftir nákvæmlega viku héðan í frá boðum við fréttamenn til fundar. Þá verða nöfn allra olíufélagana sett í pott, hlutlaus aðili fer yfir nöfnin í pottinum, og svo verður eitt nafn dregið úr pottinum. Allir þeir sem að þessu átaki standa heita því að skipta einungis við þetta félag – og engin önnur – í sjö daga samfellt. Ef umtalsverð breyting verður á verðsamkeppni olíufélaganna næstu sjö daga héðan í frá, frestum við því að hrinda átakinu í framkvæmd. Ef ekki látum við slag standa, drögum eitt nafn úr pottinum og metum stöðuna viku síðar. Þetta ferli verður endurtekið eins oft og þarf, uns olíufélögin láta af meintu verðsamráði og fara að keppa um hylli bensínkaupenda á sömu forsendum og gert er á öðrum sviðum verslunar og þjónustu.

    SAMSTAÐA boðar hér með til fréttamannafundar á sama stað og sama tíma að viku liðinni. Á þeim fundi gerist annað tveggja: A. Greint verður frá því að frekari aðgerðum verði frestað um viku vegna lækkandi bensínverðs. B. Nafn eins félags verður dregið úr pottinum og aðilar SAMSTÖÐU skipta einungis við það næstu vikuna og sniðganga hin.

    Atriði sem þarf að lagfæra

    Olíufélögin hafa nákvæmlega viku til að lagfæra ýmis atriði. Hér skulu nokkur þeirra nefnd:

    1. Olíufélögin þurfa að lækka verð á bensíni og olíu án frekari tafar! Þau þurfa að sýna viðskiptavinum sínum fram á að þau vilja stunda virka samkeppni á markaðinum.

    2. Verð á lítra af bensíni eða olíu er mælt í krónum og aurum. Aurar hafa ekki verið í umferð um langa hríð og það er hrein móðgun við neytendur að verðsamkeppni olíufélaganna sé háð í aurum.

    3. Það er óþolandi að eitt og sama félagið bjóði mismunandi verð eftir stöðvum, þ.e. eitt verð í Kópavogi og annað vestur í bæ; eitt í Mosfellsbæ og annað í Borgarnesi, o.s.frv. Slíkt misræmi yrði ekki liðið hjá matvöruverslunum, svo dæmi sé nefnt.

    4. Opið og gegnsætt þjóðfélag er skýlaus krafa um þessar mundir. Við bíðum enn eftir gegnsæinu hjá olíufélögunum. Almenningur vill fá að vita á hvaða markaði olíufélögin okkar stunda viðskipti sín og hvers vegna þau hækka ÖLL verðið á sama tíma um því sem næst sömu krónutölu – að ekki sé talað um AURATÖLU!

    Velkomin(n) í hópinn

    Nú þegar eru nokkur þúsund bifreiðaeigendur í hagsmunasamtökunum sem kalla sig SAMSTÖÐU. Í þeim hópi eru fjölmargir atvinnubílstjórar en einnig almennir bíleigendur. Við hvetjum sem flesta til að slást í hópinn næstu daga og efla þannig samtakamátt og slagkraft SAMSTÖÐU. Þeir sem vilja ganga til liðs við okkur skrá nafn sitt á heimasíðu okkar, http://www.samstada.com

    Mælirinn er fullur – tími aðgerða er runninn upp!





  • Author
    Replies
Viewing 1 replies (of 1 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.