This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Guðbjartur Magnússon 17 years ago.
-
Topic
-
Á bls 4 í blaðinu 24 stundir 16-1-08 er þessi frétt: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/16/almenningi_mismunad/
Þarna er forstjóri N1 Hermann Guðmundsson að segja að samningar við einstaka hópa séu óeðlilegir. Formaður neytendasamtakanna Jóhannes Gunnarsson tekur í sama streng. Bara af því, langar mig að benda á samninga N1 við húsbílaeigendur. Og varpa því hér fram hvort það sé einhver munur á því í raun að semja við björgunarsveitir, húsbílafélag, 345 miðla, fasteingasala eða einhvern annan ótiltekinn hóp, ég get ekki alveg séð fyrir mér að það sé mikill munur þar á. Því held ég að Hermann Guðmundsson ætti að skoða eigin bakgarð áður en hann lætur svona frá sér fara.
Lánað frá húsbílaklúbbnum http://www.husbill.is/Frettabref/2007/Fréttabréf%20sept%2007.doc Samningur sem Félag húsbílaeigenda gerði við N1 til félaga þarfnast víst betri skýringar og kem ég með þær hér. Verð á kaupum á olíu og bensíni er reiknað út frá listaverði með þjónustu eins og það er á hverjum tíma að frádregnum 9 kr. í afslátt með vask, ekki verði sem stendur á skiltum við hvern afgreiðslustað. Einnig bætist við 2 kr. í safnkortsafslátt fyrir hvern keyptan lítra af eldsneyti. Þeir sem tengja greiðslu á úttekt við t.d. Vísa fá svo ferðapunkta inn á það kort. Söluverð á smurolíu er listaverð seljanda að frádregnum 15% afsl. ( Mobil þjónustustöðvar) eða Comma 20% (N1verslun). Söluverð á gasi er listaverð seljanda – 15% afsláttur.
Afsláttur á bílavörum og öðrum rekstrarvörum í verslunum N1 (Bílanaust) er 0-30% en 10% á þjónustustöðvum N1. Sækja þarf um viðskiptakort hjá N1 þar sem þeir skrá inn nafn og félagsnúmer t.d 501 síðan er haldið utan um félaga hjá N1þegar kortið er notað í úttekt á vöru.
Gefa þarf upp kennitölu félagsins þegar verslað er í Bílanaust, en hún er
. Afsláttur á ekki við vörur sem eru á tilboði. Safnast þegar saman kemur sparnaðurinn og á þetta ekki bara við um húsbílana heldur alla bíla á heimilinu, bensín, olíu, smurning, dekk o.f.l. Kveðja frá stjórn og nefndum Ásgerður Ásta Magnúsdóttir
You must be logged in to reply to this topic.