FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sælir félagar er eitthvað til af lapplander

by Snorri Gíslason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Sælir félagar er eitthvað til af lapplander

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Snorri Gíslason Snorri Gíslason 16 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 20.11.2008 at 20:54 #203241
    Profile photo of Snorri Gíslason
    Snorri Gíslason
    Participant

    Lapplander bílar á íslandi er eitthvað til af þeim eftir

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 20.11.2008 at 21:15 #633132
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Reyndar heitir "Lappinn" eitthvað allt annað hjá Volvo, held að enginn noti þetta heiti nema við mörlandar. Hvað um það; Ertu að leita að einhverjum hömsum af svona bíl? Ég hef séð einn nokkuð heillegan standa hér í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki, og gæti reynt að komast að því hver á hann, ef þú ert að fiska eftir einhverju þess háttar. Reyndar á Vegagerðin hér einn slíkan, sem þeir nota sem "stáss" og ég hef ekki trú á að hann sé til sölu.





    20.11.2008 at 21:50 #633134
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Sæll Snorri

    Þú mátt eiga Lappann, sem minnst er á hér að ofan, ef þú fjarlægir hann.

    Kv, Grétar





    20.11.2008 at 22:45 #633136
    Profile photo of Hrolfur Árni Borgarsson
    Hrolfur Árni Borgarsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 878

    Hétu þeir ekki Volvo Valp c202 og c303 sem var þriggja öxla,eitthvað svoleiðis var það.
    Þeir eru nú eitthvað að verða fáir eftir í notkun.





    21.11.2008 at 16:33 #633138
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Sá bíll sem við þekkjum sem Lapplander hefur tegundarheitið C202 og er útgáfa fyrir almenning af herbíl sem hét L3314. Lapplanderinn er raunar ekki sænskur heldur var hann framleiddur í Ungverjalandi fyrir Volvo.
    Lapplander nafnið (stundum skrifað Laplander með einu p sem er líklega réttari ritháttur) er ekki bara Íslenskt heldur notað víðar t.d. sést það oft á Þýskum síðum en ég held að það komi ekki frá Volvo.
    Valp er annað nafn sem ég hef stundum séð notað á C202 og L3314 bílana.
    C303 er síðan öflugri og eitthvað stærri bíll sem er til bæði 4×4 og 6×6.





    21.11.2008 at 18:18 #633140
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    og þeir eru duglegir að nota dropann..





    22.11.2008 at 11:48 #633142
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Já þeir voru duglegir að nota dropann en við hverju er að búast af bíl sem hefur sömu loftmótstöðu og múrsteinn og allt of litla vél, það er uppskrift að mikilli eyðslu.
    Þeir voru líka ansi valtir og margir þeirra lentu á hliðinni, ef ekki í akstri þá bara standandi einhverstaðar í roki.
    Ég komst í kynni við einn sem vegagerðin átti og þótti ekki mikið til koma. Það var ferlega leiðinlegt að sitja í honum vegna þess að hann steipti svo stömpum. Og svo var maður alltaf með lífið í lúkunum að leggja hann á hliðina (sá bíll fór allavega einu sinni á hliðina í einhverju brölti).
    Póstur og sími og rafveiturnar áttu svona bíla löngu áður en farið var að selja þá á almennum markaði og þá fóru miklar tröllasögur af því hvað þetta væru mikil torfærutröll, en eftir á að hyggja hefur það líklega verið vegna þess að þessir bílar voru á stærri dekkjum heldur en þekktust þá og þess vegna komust þeir meira en aðrir frekar en vegna eiginleika bílanna sjálfra.





    22.11.2008 at 12:22 #633144
    Profile photo of Brynjar Örn Þorbjörnsson
    Brynjar Örn Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 55
    • Svör: 286

    á eitt hræ hérna í sveitinni hjá mér en í hann var búið að mixa 2,4 turbo hilus vél og þá virkaði hann næg orka fyrir bílinn og svo wilys hásingar og var breytt fyrir 38" ef þér vantar einhvað úr honum bjallaðu S:8252173





    22.11.2008 at 13:05 #633146
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Sælir
    hér er mynd af náfrænda Lapplander og voru framleidd um 700 stikki af þessu hjá Volvo [img:2ryfbka5]http://www.volvoadventures.com/P2104.jpg[/img:2ryfbka5]
    Gælunafnið á þessu var Sugga.
    Hér er smá [url=http://www.youtube.com/watch?v=230DMLlMKD0:2ryfbka5][b:2ryfbka5]videó[/b:2ryfbka5][/url:2ryfbka5] af þessum trukk, en ég held að landinn nudi nota bílinn á annan hátt, eins og [url=http://www.youtube.com/watch?v=bdcaIUhXgmM:2ryfbka5][b:2ryfbka5]hér[/b:2ryfbka5][/url:2ryfbka5] .
    Hér eru þeir á 38 í Svíaríki, á númerum þó að Ofsi segir það ekki leifilegt þar.
    [img:2ryfbka5]http://www1.shellkonto.se/sugga/Bilder/main.jpg[/img:2ryfbka5]





    23.11.2008 at 22:34 #633148
    Profile photo of Snorri Gíslason
    Snorri Gíslason
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 58

    Þessi volvo lappi orginal eða breyttur og sæmilegur áttu nokkuð mynd svo maður getur skoðað hann kv snorri





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.