FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

sælir

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › sælir

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Axel Sigurðsson Axel Sigurðsson 21 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.06.2003 at 23:10 #192649
    Profile photo of
    Anonymous

    nú spyr ég reynda jeppamenn.

    Willys 46
    38? breyttur.
    35?dekk.(slitin)
    white spoke felgur.
    lengdur milli hjóla.
    dana 44 fram og afturhásing.
    power lock læsing aftan og framan.
    breytt drif(man ekki hvað. 5.eikkað)
    Buick V6 motor.
    flækjur. enda í opnum sílsapústum.
    opið loftinntak
    3 gíra beinskiptur.
    millikassi.
    100L bensíntankur.
    corvette stýrismaskína.
    tvöföld bremsudæla.
    vökvakúpling.
    gormar framan og aftan
    brettakantar.
    aðeins 1300 kíló.

    hversu mikið vit er í þessu? á ég að láta vaða eða ekki? er þetta ekki óttalega gott tæki?

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 13.06.2003 at 23:27 #474206
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    hljómar alveg rosalega mixaður bíll, það getur oft verið ávísun á það að bíllinn sé að bila mikið ef að hann er mikið mixaður og þar af leiðandi getur verið leiðinlegt að finna réttu varahlutina í þetta ef maður veit ekki úr hverju hlutirnir eru teknir, en ætla svo sem ekki að taka neinar ákvarðanir fyrir þig en ég mundi ekki kaupa svona bíl…

    kv, Axel Sig…





    13.06.2003 at 23:32 #474208
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ef þetta er bleikur willi með blæju þá er þetta án efa hörkuskemmtilegt tæki og með alvöru dana 44 að framan með lokuðum liðhúsum.





    14.06.2003 at 00:36 #474210
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Ég myndi fara varlega í svona mix í dag, en ég gerði það ekki þegar ég var 18. Þó ég hafi eignast svipað fyrirbæri þá, reyndar með 8 gata vél og 40 l. eyðslu pr. 100 km., þá hefði ég eftir á að hyggja ekki vilja missa af því, þó ekki sé nema bara til að maður átti sig á því hvað maður á gott að eiga "bara" japanskan bíl í dag ….

    Ferða- viðgerða- amerísk kveðja,

    BÞV





    14.06.2003 at 10:06 #474212
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    þegar stórt er spurt er oft fátt um svör.
    þessi Willi gæti allveg verið ágætur, það fer að miklu leyti eftir því hvernig honum hefur verið breytt og hvort frágangur sé í lagi, hlutirnir sem þú taldir upp hljóma ágætlega.
    Eitt er reyndar nokkuð ljóst, það er að þetta er bíll sem kemur til mað að eyða frekar mikklu, ef um blöndungs bíl er að ræða og mótornum hefur ekki verið breytt að neinu viti. Kjör snúningur á langkeyrslu á þessum mótor er á bilinu milli 1800 til 2300, og eins og kom fram hjá þér er bíllinn með 3 gíra kassa sem þýðir 1:1 í hæsta gír, hlutföll eru 5, eitthvað, sem segir mér að vélin er að snuast um eða yfir 3000 þegar hraðinn fer að nálgast hundraðið = þyrstur.
    Þar er líklega komin skýring á þessum stóra tank í þessum létta bíl.
    Mín ráðlegging til þín er sú að það er mikið til að bílum og nánast engin sala svo það er úr nægu að velja.
    Skoðaðau málið vel áður en þú tekur ákvörðun.
    Ég hef sjálfur átt minn skerf að "mixuðum" bílum sem hafa reynst mér vel og ekki bilað meira en það sem nýtt var að koma á götuna.

    kveðja OJ





    16.06.2003 at 10:12 #474214
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Lýsingin finnst mér benda til þess að þetta sé fyrirtaks leikfang en tæpast mikill ferðabíll. Ætli þessi Buick vél reki ekki uppruna sinn í einhvern Jeepsterinn, þeir komu mikið með 225 V6 Buick og virkuðu vel (og já já, eyddu líka sæmilega)

    Vit í þessu eða ekki??? Fer bara eftir því hvað þú ert að borga fyrir hann og eftir hverju þú sækist. Þetta getur örugglega verið skemmtilegt!

    Kv – Skúli H.





    16.06.2003 at 22:51 #474216
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    jæja hvernig fór þetta, keyptirðu bílinn eða ekki??? og þá á hvað mikið????





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.