FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

S.O.S mig vantar hjálp!

by Ásgeir Halldórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › S.O.S mig vantar hjálp!

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jóhann Ingi Jónsson Jóhann Ingi Jónsson 20 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 01.01.2005 at 19:51 #195145
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant

    Sælir,

    Þannig er mál með vexti að olíusían eða olíupungurinn eða hvað sem þessi málmdolla heitir á vélinni er laus og það lekur meðfram henni. Ég get hvorki hert hana né losað með höndunum og ég á ekki svona græju til að herða hana. Því leita ég til ykkar um aðstoð, hvað er best að gera eða eigiði svona græju til að lána mér, þið sem eruð á höfuðborgarsvæðinu? Þá gæti ég sótt hana og skilað henni aftur umleið!

    Þúsund þakkir, Ásgeir
    R-3010
    s: 896-8969

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 02.01.2005 at 06:31 #512170
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það heitir smurstöð, þar eru væntanlega menn sem að vita hvað þeir eru að skrúfa. Þetta fyriræri er í flestum sveitarfélögum.

    kv. Baldur





    02.01.2005 at 07:00 #512172
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það er rúmur áratugur síðan ég hætti að skipta við smurstöðvar. Það var eftir að ég þurfti að skipta um spindilkúlur báðum megin á MMC sem ég átti þá. Gúmíhlífarnar á kúlunum högðu verðið sprengdar með því að setja of mikla feiti í þær.
    Smurstöðvar eiga það sameginlegt með dekkjaverkstæðum að ekki eru gerðar kröfur um fagþekkingu þeirra sem þar starfa.

    Ég er búinn að lána Ásgeiri áhald til að losa smursíur, vonandi passar það.
    Þegar smursía er sett í á að setja smurolíu á þétti hringinn og skrúfa hana á með hendinni. Eftir að olía er sett á, er bíllinn settur í gang og síðan bætt á olíu og athugað hvort lekur með síunni. Það er langt síðan ég hef þurft að nota verkfæri til að ná smursíu af.

    -Einar





    02.01.2005 at 10:45 #512174
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Mig langar til að taka undir þetta sem eik segir varðandi smurstöðvar, það er í raun alveg óviðunandi hversu óvönduð vinnubrögð menn komast upp með. Það er bæði þetta með að sprengja stýrisenda og spindilkúlur, sem er því miður alltof algengt með tilheyrandi fjárhagslegu tjóni og minnkuðu akstursöryggi bíla, og svo ýmislegt annað. Ég hef sjálfur hvað eftir annað orðið fyrir því að aftöppunartappar hafa verið forskrúfaðir og koparskinnan, sem á að þétta er sprengd. Smurolíur eru ekki beinlínis ókeypis og það er dýrt að láta þetta leka niður. Nú og svo er þetta með smursíurnar, sem er hreinlega alltof algengt að böðla einhvernveginn á og ofherða þær síðan. Við erum hinsvegar ekki öll það vel sett að hafa tök á að skipta um olíur og smyrja bílana okkar sjálf, því við þurfum að hafa til þess aðstöðu, sem ekki nærri allir hafa, og svo eru þessi sífelldu vandamál við að afsetja notaða olíu og síur. Getur félagið okkar nokkuð beitt sér í því að einhverjar faglegar kröfur verði að uppfylla á smurstöðvum? Ég skipti hinsvegar við afskaplega gott dekkjaverkstæði og þar er aldrei neitt fúsk í gangi, heldur topp fagmennska, en hef auðvitað heyrt um ýmislegt í því efni annarsstaðar.





    02.01.2005 at 16:48 #512176
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þótt að það væru hundrað ár síðan að einhver hætti að skipta við smurstöðvar þá eru þær samt sá staður sem eru mestar líkur á að þú finnir tangir fyrir olíusíur, ekki rétt?

    Ég var ekki að biðja manninn um að fara og láta hella olíunni niður, sprengja botna úr stýrisendum og forskrúfa olíutappann.

    Þótt að það sé ekki gerð krafa um fagþekkingu hjá þeim sem að vinna á smurstöðum, þá þýðir það ekki að þar séu eintómir asnar sem að vita ekki hvað þeir eru að gera. Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að þúsundir íslendinga fara með bílana sína á smurstöðvar, væntanlega fara þeir ekki allir óánægðir út.

    Við skulum því ekki dæma allar smurstöðvar þótt að það séu til einhverjir svartir sauðir. Það er mjög einfalt ef þú lendir í því að skipta við asna þá ferðu bara ekki aftur þangað.

    Kv. Baldur





    02.01.2005 at 23:12 #512178
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir.

    Mér finnst alltaf jafngaman þegar það er farið að tala um fagmennsku. Eins og það sé einhver trygging fyrir því að það verði engin mistök gerð.
    Ég horfði einu sinni á flugvél magalenda á Ísafjarðarflugvelli. Eftir rannsókn var gefin út yfirlýsing að þarna hefði verið um mannleg mistök að ræða. Flugmaðurinn, sem er reyndur ferjuflugmaður, gleymdi einfaldlega að setja niður hjólin. Segir manni bara að fagmenn geta líka gert mistök. Það hefur samt aldrei hvarflað að mér að setjast ekki upp í flugvél.
    Ég smyr sjálfur vegna þess að ég bæði kann að gera þetta sjálfur og svo er þetta talsvert ódýrara svoleiðis. Þar að auki get ég ekki kennt neinum nema sjálfum mér um ef eitthvað klikkar. Ég hef yfirleitt keypt síur og annað sem ég hef þurft á smurstöð og svo kem ég með úrgangsolíuna til þeirra þegar ég er búinn. Aldrei verið neitt mál að fá þá til að farga henni fyrir mig.
    kv….Maggi.





    03.01.2005 at 00:04 #512180
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sælir

    Ég hef einu sinni farið á smurstöð og geri það ekki aftur sökum kostnaðar.

    Ég borgaði 990 kr fyrir verkfæri til að losa smursíuna (svínvirkar). Svo leggst maður bara á bakið og reddar þessu úti á plani heima hjá sér. Tekur um 20 min og sparar manni nokkra þúsundkalla.

    Þetta er stundum ögn meira mál á fólksbílum sökum plássleysis. En þá finnur maður sér tjakk og eitthvað til að sitja undir bílinn, auka 10 min og málið klárt.

    Kveðja
    Izeman





    03.01.2005 at 17:37 #512182
    Profile photo of Jóhann Ingi Jónsson
    Jóhann Ingi Jónsson
    Member
    • Umræður: 44
    • Svör: 170

    Sælir

    já það er ekkert mál að gera þetta sjálfur…. og spara menn kannski einhverjar krónur í leiðinni en ekki eru allir sem að nenni að skríða undir bíl hjá sér til þess og menn sem eru óvanir geta átti í hættu að yfirsjást smurkoppa.

    Ég hef alltaf farið með bílinn hjá mér í reglulega yfirferð á smurstöð (þó ég láti mig hafa það að skipta um á vél sjálfur) og fer ég þá á olísstöðina sem er á Fosshálsi. Góð þjónusta og vanir kallar enda í sportinu sjálfir

    oliukveðja joi





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.