This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Þröstur Þór Ólafsson 15 years, 8 months ago.
-
Topic
-
Dóttir mín á gamlan VW transporter húsbíl með 2 L bensínvélinni. Það er alllöng saga að segja frá dyntum og uppátækjum þessarar vélar, en þeir hjá Heklu eru búnir að líta á hana og gátu lítið gert. Síðastliðið ár hefur vélin þó gengið þolanlega þar til í gær en þá var hún alveg hætt að skila nokkrum krafti, en snérist þó með skotum og smellum, en að lokum endaði með því að dóttirin gafst upp og hringdi í pabbann eftir hjálp. Eftir að við höfðum dregið bílinn heim til hennar datt mér í hug að prófa að starta eina ferð enn og þá gekk hún alveg eðlilega rétt eins og ekkert hefði nokkurn tíma komið fyrir.
Þar sem Hekla hefur ekki fundið út úr þessu þá er sennilega fátt um úrræði, en mér datt í hug að auglýsa hér eftir því hvort einhver kunni góð ráð eða viti um einhverja reynslubolta sem eru líklegir til að kunna að temja svona gallagripi.
Til upplýsinga þá er vélin með tölvustýrðri innspítingu og kveikju, en engum O2 skynjara. Vélartölvan er Digifant 044-906-022 E.
Kv.
Ágúst (símar 5670078 og 6910078)
You must be logged in to reply to this topic.