FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ratleikur

by Teitur Guðnason

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Ratleikur

This topic contains 60 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Gunnar Smári Eggertsson Gunnar Smári Eggertsson 18 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.04.2007 at 19:24 #200139
    Profile photo of Teitur Guðnason
    Teitur Guðnason
    Member

    Sælir félagar. Mig langar að taka þátt í ratleiknum
    en þeir sem að ég ferðast með venjulega eru að gera annað þessa helgi, svo að mér datt í hug að einhverjum vantaði ferðafélaga og vildi hafa mig með í hóp. Ég er á Pajero á 39,5 dekkjum og
    öll fjarskiptatæki.
    Hafið samband í síma 6617595 eða á netfang :
    teiturgu@simnet.is
    Kveðja Teitur

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 60 total)
1 2 3 →
  • Author
    Replies
  • 17.04.2007 at 12:52 #588504
    Profile photo of Agnes Karen Sigurðardóttir
    Agnes Karen Sigurðardóttir
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 878

    jæja jæja þá er skráning hafin og eru komnir.

    19 bílar nú þegar.
    kv
    Stjórn





    17.04.2007 at 18:32 #588506
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú er ég að spöglera eina ferðina enn og ákvað að… spyrja vefinn.
    Er það eitthvað feimnismál hvaða vitleysingjar eru að fara að taka þátt í þessum skemmtilega leik… ratleik. Það hefur nú ekki verið mikil umræða um þetta hér. Er fullbókað eða er laust fyrir fleiri bíla eða hvað? Hvað eru margir hópar komnir?

    Kv. stef. ;-> sem villtist í Elliðárdalnum þar sem hún rataði ekki norður (og niður)…





    17.04.2007 at 22:42 #588508
    Profile photo of Agnes Karen Sigurðardóttir
    Agnes Karen Sigurðardóttir
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 878

    Hópur eitt.
    Óvissuhópurinn.
    Benni ford 49
    Valur pajero 38
    Helgi Toyota 38
    Þorgeir bíltegund? dekkjast ?
    Agnes á puttanum dekkjastærð 39…..

    Hópur 2 kl 20.01.
    Rugludallar.
    Kári Þórisson Og Guðrún Rut Patrol 38
    Barbara Ósk og Rakel Ragnars Musso 38
    Kristján Loga og Kalli Kafteinn 90 Cruser 38
    Teitur Guðna og frú Pajero 38
    Benni og ? patrol 38

    Hópur 3 kl 20.01.01
    Úlfahópurinn
    Stebbi og Steff Pajero 38
    Magnum og Sonur Navara 38
    Bjarki Clausen og ? GMC 38
    Tryggvi og ? Cruser 80 38

    Hópur 4 kl 20.50
    Krepjugengið.
    Árni Bergs R-139 og Inga Rún Bronco 38
    Páll og Jónas Terrano 38
    Ingólfur og Gunnar Landcruser 90 38
    Siggi Tæknó og Frú Patrol 38
    Einar Lárusson Skuggasveinn og snjómeyja Patrol 44

    Jæja Steff þá er búið að uppljóstra þessu.
    Góðar stundir.
    kv
    Agnes Karen





    17.04.2007 at 23:05 #588510
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Gaman að þessu takk fyrir það Agnes…
    Ertu nokkuð að draga úr honum Vali um 1 og 1/2 tommu eða er þetta hernaðaráætlun… ég skil… óvissuhópurinn. Er að velta fyrir mér… eru fjórir fararstjórar í 5 bíla hóp… eða þarf 4 til að stjórna þér Agnes … ég bara skil ekki neitt… og ekki í fyrsta skipti.
    þá get ég gefið í skyn að Úlfahópurinn er líka með hernaðaráætlun… og Plan B.

    kv. stef…. er ég þá yrðlingur eða hvolpur… alla vega eitthvað loðið ;->





    17.04.2007 at 23:16 #588512
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Þá er búið að ljóstra upp fyrstu þáttakendunum, mér sýnist nú á öllu að við Rugludallar rúllum þessu bara upp. Klárlega langmyndarlegasti hópurinn. Það er hinsvegar ekki uppörvandi að sjá að hópurinn sem veit ekki neitt og er í fullkominni óvissu er einmitt fararstjórnin, nú á að leiða okkur í tómar ógöngur. Við verðum með spotta og svoleiðis til að bjarga þeim. Úlfarnir verða væntanlega bara gólandi uppá hólum og hvað er það með þetta Krepjugengi, er það eitthvað djók eða…..?
    Kv. Barbara Ósk Rugludallur





    17.04.2007 at 23:20 #588514
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Það þarf nú ekkert að auglýsa það að Musso sé með spotta… þetta er auðvitað vita(ð)mál ekki fróðleikur.
    Og að hafa keypt sér musso upphaflega… já það liggur nú í orðum uppi … rugludallur.
    Kv. stef.
    Smá viðbót þar sem þú rugludallur ert ný í bransanum… þá er gott að vera upp á hól … spurðu bara kappana á suðurnesjum…





    17.04.2007 at 23:26 #588516
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Og ég sem var að spá í að sýna þér nýjar spelkur frá Össuri sem væru góðar við grindargliðnun. Ég er að endurskoða þá góðmennsku núna.

    Rugludallar rúlla





    17.04.2007 at 23:46 #588518
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Það er nú aldeilis að það er komin spenna í þetta. Ruglist rugludallar ennþá meir þá er gott að hafa ýlfrandi úlfa til að vísa sér rétta slóð. :-) Úlfarnir eru nefninlega með innbyggt GPS og sjá meir en margur hyggur í myrkri. :-) Svo ekki verður nein spurning með úrslitin.

    Ps. Barbara; kristinn er að koma með dvd disk með fullt af myndum til mín. Þarftu þetta strax í fyrramálið eða bara í Fífunni á morgun?

    Magnús G.





    17.04.2007 at 23:50 #588520
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Ég á nú eftir að sjá alla ratvísina og dúndursjón í þessum úlfagreyjum. Læt bara hundana mína gelta á ykkur og hlusta svo á hræðsluýlfrið, það verður til að geta keyrt til ykkar aftur og reddað ykkur þegar þið þorið ekki úr sporunum.

    Kv. Bjargvætturinn og rugludallurinn Barbara Ósk

    PS
    Og það er alveg nóg fyrir mig að fá þessar myndir á morgun.





    17.04.2007 at 23:57 #588522
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Eru hundar ekki bara minna þroskaðir úlfar. :-)

    MG





    18.04.2007 at 00:02 #588524
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Nei, fyrst kom úlfurinn og svo var ræktað út frá honum, sem þýðir að sjálfsögðu að hundurinn er fágað og þróað afbrigði úlfs. Enda sést það langar leiðir að við Rugludallar erum mjög fágað og ofboðslega þróað fólk. Við erum svo þróuð að það þarf að fara fram í tímann til að finna okkar jafnoka.

    Rugludallar eru bestir, koma á áfangastað með úlfa í bandi





    18.04.2007 at 00:11 #588526
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    og öll fágunin gerði það að verkum að hundar eiga heima á láglendi í sveitum og borgum, en úlfar í óbyggðum. :-)

    MG





    18.04.2007 at 00:21 #588528
    Profile photo of Árni Bergsson
    Árni Bergsson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 308

    ekki efnilegt ferðalið þetta ,getur þó látið í sér heyra.
    Við í krepjugenginu höfum aldrei villst í ferð.
    Algjör óþarfi að ausa snjó með úlfahárum yfir okkur.
    kastið frekar bjórbaukum til okkar !!!
    Við erum með nýplöstuð dönsk ferðakort og komum því langf(þ)yrstir á afengisstað.
    þurfum ekki G læran P lastkassa með S núru.
    góðar nætur.





    18.04.2007 at 00:43 #588530
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    R-139 ert þú enn á fótum? Ég hélt að svona gömul númer væru bara á þjóðmynjasafninu með dönsku kortunum plöstuðum á fyrrihluta síðustu aldar. :-) En ég vona að skuggasveinar snjókerlinga, seinþreyttir tæknimenn og co. veiti úlfum, rugludöllum, óvissuförum verðuga keppni.

    MG





    18.04.2007 at 07:11 #588532
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Sko …. VIÐ í Krepjugenginu erum AUÐVITAÐ flottastir og LLAANNGGG bestir. Enda greinilega best búna gengið. Þessi plöstuðu dönsku kort er nefnilega BEST, plastið er svo ….. æðislegt …

    Bensín / Olíudraugurinn





    18.04.2007 at 07:48 #588534
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    R-139….. Er maður að fara með tómum gamalmennum á fjöll? Strákar eruð þið ekki með öll neyðarnúmer á hreinu? Ég er svosem með vel útbúinn sjúkrakassa en það er á kláru að ég verð ekki með nítró töflur eða hjartastuðtæki þegar þið missið ykkur yfir að vera orðnir laaaaang síðastir.

    Rugludallar rúlla





    18.04.2007 at 08:55 #588536
    Profile photo of Gunnar Smári Eggertsson
    Gunnar Smári Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 26
    • Svör: 222

    Tryggvi, þú lætur mig bara vita ef þú ert ekki með kóara 😉
    -gunnar





    18.04.2007 at 10:04 #588538
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Ég skal bara seigja ykkur það að Krepjugengið er með lang flotasta kortið sko … Þetta rugludallagengi ruglast bara á kortum og fer til London í verslunarleiðangur og úlfarnir góla bara á hvern annan ….. já og þetta óvissugengi sko …. það æðir bara í óvissuna og veit ekkert hvort það ættlar að koma eða fara ….
    Krepjugengið rular skohhhhh

    >:O)





    18.04.2007 at 10:25 #588540
    Profile photo of Árni Bergsson
    Árni Bergsson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 308

    Barbara mín
    við förum ekki tómir á fjöll,heldur fullir af nítró.
    Sprengitöflur eru bara hafðar í eftirrétt´.
    Ganggráðar og stuðtæki eru innbyggð, þökk sé nýustu tækni.
    Sýnist reyndar að það verði best að fara á gúmmíbátum !!!!!!!
    hafið góðan snjó





    18.04.2007 at 17:12 #588542
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    helgarveðrið sem kollegar mínir eru að spá. Líklega er best að fara bara í vöðlurnar strax og malbiki sleppir. Krepjugengið er greinilega búið að ákveða að fara á gúmmíbátum svo ekki verður hörð samkeppni þaðan. Ha ha
    –
    Veðurhorfur á landinu næstu daga
    Á föstudag: Suðaustan 8-13 m/s og rigning á sunnanverðu landinu, en skýjað norðan til og dálítil snjókoma um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig. Á laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag: Austan strekkingur og víða væta, en dálítil slydda eða snjókoma norðanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast vestanlands. Spá gerð 18.04.2007 kl. 08:07
    –
    Úlfar ráða

    Magnús G.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 60 total)
1 2 3 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.