This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Gísli Þór Þorkelsson 14 years, 11 months ago.
-
Topic
-
Sælir piltar
Ég á í veseni með lúxinn. Þannig vill svo til að gaumljósin í mælaborðinu (tímareimin, altenatorin og eitthvað) slökkva ekki á sér þegar bíllinn er kominn í gang og dagljósin kvikna ekki. Þannig að maður kveikti þá bara manual á ljósunum og gleymdi þeim svo að sjálfögðu á þannig að bíllinn varð hálf straumlaus. Fékk þá start og þegar bíllinn hafði gengið þó nokkuð dofnuðu ljósin í mælaborðinu…svona eins og hann hlæði sig ekki. Reyndar hefur svissinn líka verið að stríða mér því hann drepur stundum ekki á bílnum þegar svissað er af. Hefur einhver lent í svipuðum málum? Og hvað er það sem slekkur ljósin í mælaborðinu og kveikir aðalljósin? Eh realy?
Kveðja Hjalli
You must be logged in to reply to this topic.