Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Rafmagnslás í hilux 91
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Davíð Karl Davíðsson 19 years ago.
-
CreatorTopic
-
25.01.2007 at 15:17 #199495
góðann daginn vantar hjálp frá fróðum mönnum rafmagnslás í afturdrifi í hilux ég fæ ekki straum í læsinguna ég er búinn að prufa annað stjórnbox það kemur straumur frá rofa í tölvuna og stöðugur straumur svo er blikkið en á ekki að koma stýristraumur frá tölvu í læsingu eru einhverjar hugmyndir
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
25.01.2007 at 15:52 #577152
ef þú slærð inn orðið rafmagnslás í leitna fyrir spjallsvæðið færðu allar upplýsingar sem þig vantar.
annars er þessi spurning kandídat í FAQ eins og tíðkast á flestum spjallborðum, hmm, vefnefnd ?
25.01.2007 at 16:01 #577154Ég myndi fara yfir víralúmið frá mótor í grind. Það er eitt tengi sem er með 5 eða 6 vírum. Allir vírarnir í þessu tengi þurfa að vera í lagi, ekki bara plúsinn og mínusinn. Svo er spurning hvort þetta hafi eitthvað með safety stillingarnar í tölvunni að gera þ.e.a.s. hvort tölvan sé ekki að fá merki um að þú sér í 4WD eða undir einhverjum X hraða. Þetta er hægt að mæla út frá tenginu í tölvuna, ég get fundið hvaða vírar það eru ef þú heldur að það sé vandamálið.
.
Kv.
Óskar Andri
25.01.2007 at 16:04 #577156það væri mjög gott að fá að vita hvaða vírar á að mæla og hverjir eiga að vera jörð svo þessi sem segir hvort hann sé í 4×4
takk fyrir svörin
Óðinn
25.01.2007 at 16:06 #577158Það eru rofar inni í mótornum sem segir læsingatölvunni í hvaða stöðu mótorinn er. Mótorinn fær nefnilega ekki bara stanslausan straum heldur segja þessir rofar tölvunni hvenær á að byrja að gefa mótornum straum og hvenær á að hætta (þetta eru þessir þrír auka vírar sem eru í 6 víra tenginu í mótorinn). Þessir rofar liggja utan í gírhjóli inni í læsingarmótornum sem má bara snúast ákveðna vegalengd og það tekur bara c.a. 1 sec. að gerast ef mótorinn er í lagi. Þannig að besta leiðin til að vita hvort motorinn sé að virkar er að svissa á bílinn, standa fyrir utan hann og snúa læsingartakkanum, þá ættirðu að heyra mjög greynilega í mótornum.
.
Kv.
Óskar Andri
25.01.2007 at 16:07 #577160kem með þetta eftir smá stund….
25.01.2007 at 16:09 #577162Ef þú ert að tékka á straum út úr lúminu aftan í bílnum, þá kemur ekki straumur þangað nema þú shortir á milli pinnana sem segja tölvunni að það sé í lagi að senda strauminn af stað.
Óskar víst búinn að orða þetta betur. Svo er ekki hægt að setja læsinguna á nema vera í lága drifinu.
kv
Rúnar.
25.01.2007 at 16:27 #577164Þessir vírar eru í tenginu í læsingartölvuna og skv. mínum kokkabókum þurfa þeir allir að fá jörð til að tölvan gefi mótornum straum.
.
Hvítur/Svört rönd
Grænn/Rauð rönd
Grænn/Blá rönd
.
Ég man reyndar ekki hvað er hvað, nema það að hvítur/svartur er bara jörð fyrir tölvuna sjálfa. Hinir tveir eru annaðhvort fyrir SPD sensor eða 4WD rofan.
.
Kv.
Óskar Andri
25.01.2007 at 18:27 #577166mér var tjáð af toyota að þessar ‘tölvur’ klikka víst nánast aldrei. En það sem ég hef gert til að athuga víra lúmmið er að fara í tengið sem er undir farþegasætinu. Þar er allt lúmmið sem fer í læsinguna og afturljósin tengt við lúmmið í mælaborðinu. Svo hef ég bara mælt hvort það sé leiðni í hverjum vír fyrir sig. Reyndar hafa þessir vírar bara klikkað einu sinni hjá mér (eða voru í ólagi þegar ég fékk bílinn). Þannig að núna fer ég beint í að taka mótorinn í sundur, hreinsa, smyrja og pakka hann. Þarf að gera það svona einu sinni á ári og þá er allt í góðu. Best þykir mér reyndar að gera þetta áður en læsingin hættir að virka, td á haustin svo þetta sé klárt fyrir veturinn. Er fyrirbyggjandi viðhald ekki annars besta viðhaldið?
25.01.2007 at 19:18 #577168ég er einmitt í svipuðu veseni með aftur lásinn minn sem er úr hilux held ég (held að hann komi ekki orginal) er þetta sama systemið og í hiluxinum???
Kv Davíð R-2856
25.01.2007 at 19:32 #577170takk fyrir góð svör
25.01.2007 at 21:24 #577172Davíð K.
Held þetta hafi ekki verið orginal í þessari árgerð af 4runner en það er lítið mál að breyta hásingunni til að Hilux köggul með raflás passi í. Líklega hefur þetta verið gert þannig í bílnum hjá þér þannig að það kæmi mér ekki á óvart að þetta væri bara nákvæmlega eins.
Ég held að LC80 kögglarnir hafi ekki passað á milli, þori samt ekki að fullyrða það.
Kv.
Óskar Andri
26.01.2007 at 02:18 #577174já mér datt í hug að hann væri ekki orginal en hinsvegar var logið að mér að hásingarnar undir V6 bílnum Hilux/4Runner séu stærri en í 2,4EFI bílunum minnir að einhver hafi sagt 8,8" sel það ekki dýrara en ég keypti það
Kv DabbiV6 R-2856
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
