FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Rafmagns vesen

by Sindri Thorlacius

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Rafmagns vesen

This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Sindri Thorlacius Sindri Thorlacius 14 years, 10 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 10.07.2010 at 13:12 #213544
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant

    góðan daginn ég er í smá vandamáli með rafkerfi úr 4runner það er þannig að þegar ég svissa á eigga smurljós og meira að kvikna í mælaborðinu enn það virkar ekki enn bílinn fer samt alltaf í gang búnir að fara ifir öll örigi og allt í lagi og öll ljós í mælaborðinu enn smurmælirin og voltmælirin og hita virka enn það koma bara eingin ljós í mælaborðið þannig er það

    er ekki eikver snilingur þarna sem getur komið með tilögur

  • Creator
    Topic
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)
  • Author
    Replies
  • 11.07.2010 at 07:29 #698074
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er næstum 100% viss um að það vantar jarðsamband einhvers staðar.





    11.07.2010 at 16:48 #698076
    Profile photo of Gísli Þór Þorkelsson
    Gísli Þór Þorkelsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 1363

    Það er frekar ólíklegt Grímur því að smurljósið og hleðsluljósið er jarðstýrt. Það er mjög ólíklegt að tveir jarðvírar klikki samtímis þetta er hinsvegar allt með sama plús og hann ætti að skoða.
    kv Gísli





    11.07.2010 at 23:50 #698078
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    já við erum búnir að skoða þetta í allan dag og ekkert virkar við tókum perurnar úr mældum þær og þær eru í lagi svo mældum sætin og þá síndi mælirin rafmagn svo svisuðum við á og af nokrum sinum og þá hætti að koma rafmagn gæti það verið að þetta sé svisinn

    við fáum stefnuljósinn og hóaljósið og túrbínu ljósið enn ekkert annað





    13.07.2010 at 18:55 #698080
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Skortur á jörðum, pfft…

    Kviknuðu ljósin í mælaborðinu þegar þið mælduð spennuna? Getur verið að það sé farin í sundur leiðslur í öryggjaboxinu frammí húddi eða á leiðinni inní bíl?

    Mæli með að nota prufulampa á allar 12V spennur sem eiga að vera til staðar.

    Annars skil ég ekki alveg hvernig öll ljós getað virkað í mælaborðinu en samt virka engin ljós. Hljómar eins og þversögn, og annað: Stefnuljósin og túrbóljósið virkar en ekkert annað? …. Hvað nákvæmlega er bilað, og hvað er í lagi?

    Eru einhver merki um raka í mælaborðinu? Stundum getur komið fyrir að það leki með framrúðu og setjist raki fyrir aftan mælaborð og þá spanar allt í spað og verður hálf ruglað eftir því…

    Einnig að mæla spennur að og frá svissbotninum.
    í 4runner diesel eru 3 svissar og það getur verið að einn þeirra vanti. Hljómar samt ekki alveg rökrétt, en það gerir rafmagn yfirleitt ekki…
    Virka glóðarkertin eðlilega?

    Hvar eruð þið staddir á landinu?

    kkv, Úlfr





    14.07.2010 at 17:55 #698082
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    sæll við erum stadir í Eyjafjarðarsveit. já glóðkertin virka eðlinlega allavega detur hann altaf i gang straks

    sko það sem er bilað er að viðvörunarljósinn virka ekki

    það sem virkar er stefnuljós og háaljósið smurðristings mælir volt mælir og hitamælir





    15.07.2010 at 18:03 #698084
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ef þú hefur möguleikann á að prófa annað mælaborð myndi ég mæla með því.

    Ertu búinn að prófa að setja prufulampa á perusætin og sjá hvort það sé almennileg 12V þangað upp?

    kkv, Úlfr





    15.07.2010 at 18:30 #698086
    Profile photo of Uni Hrafn Karlsson
    Uni Hrafn Karlsson
    Member
    • Umræður: 44
    • Svör: 306

    Við lentum í vandræðum með baklýsinguna í mælaborðinu hjá okkur því dimmerinn var ekki í sambandi, hann er vinstra megin við stýrið.





    15.07.2010 at 18:57 #698088
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    dimmerinn hefur að vísu ekki áhrif á perurnar í viðvörunarljósunum. En hefur náttúrulega áhrif á baklýsinguna.

    Getur verið að það sé bara rofið prentið aftan á mælaborðinu?





    15.07.2010 at 19:23 #698090
    Profile photo of Gísli Þór Þorkelsson
    Gísli Þór Þorkelsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 1363

    Eins og fyrr sagði viðvörunarljósin eru JARÐST’YRÐ sami plús inná þau finna hvar hann hverfur og þá er málið leist.
    Ef þau koma stundum þá er spurning um samtengi eða jafnvel rely eða eins og áður hefur komið fram prentplötuna sem getur rofið plúsinn þegar prentleiðslan hitnar og þá rofnar plús til ljósanna.
    kv Gísli





    15.07.2010 at 21:27 #698092
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Skarplega athugað, Gísli. Spurning um að svindla 12V spennu inná rásina til að sjá hvort lifnar yfir draslinu.
    Svissbotn er vissulega grunsamlegur, enda fer töluverður hluti af 12V-plús þar í gegn. Svo getur alltaf verið að vír sé jagaður í sundur þó að það sjáist ekki utaná honum….





    16.07.2010 at 12:05 #698094
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég myndi fara þannig að:

    Rífa mælaborðið þannig að þú getir mælt spennuna yfir perurnar og svissa á bílinn. Gefum okkur það að ljósin komi ekki og þá geturðu mælt með spennumæli yfir peruna. Ef það er spenna þar skaltu skipta um perur.

    Ef ekki skaltu setja – pinnan á mælinum í örugga jörð. Ég nota sígarettukveikjarann til að sannreyna alla svona póla. Þá mælirðu á báða pólana á perunni og ættir að fá 12V á öðrum hvorum pólnum. Hvort sem þú færð spennu þar eða ekki skaltu setja + pinnan á mælinum í öruggan + og hinn á báða perupólana.

    Málið er að peran þarf bæði + og – til að lýsa og þann sem vantar skaltu rekja.

    Hleðsluljósið virkar þannig að alternatorinn sendir – á þennan vír til að kveikja ljósið. Þegar hann byrjar að hlaða fer spennan á þessum vír úr 0 í 12V og þá hættir peran að lýsa. Hleðsluljósið er líka notað til að segulmagna alternatorinn (held ég, allavega þarf peran að vera nokkuð rétt til að triggera alternatorinn. Ég held að hún afhendi segulmögnunarstrauminn í upphafinu.) Í Patrol og án efa öðrum bílum eru nokkrar perur í mælaborðinu notaðar til að hjálpa hleðsluperunni að triggera alternetorinn og að auki eru þær síðan aðskildar með díóðum til að þessi ljós kveiki ekki á hleðsluljóinu ef þau fá sitt merki.

    Olíuþrýstineminn ætti alltaf að senda – ef það er dautt á mótornum. Ef það er ekki – þar og ekki á hleðslunni verður sumarið þitt með skemmtilegra móti. Hann er mekanískt pressostat sem ætti að rjúfa sambandið við húsið sitt ef þrýstingurinn fer yfir ákveðið setpoint.

    Ef þú færð alla mínusana (sem ég gæti best trúað) þarftu að átta þig á því hvaðan +inn er tekinn. Einhversstaðar er öryggi fyrir þetta og vissuelga er þessu stýrt af svissinum en það gæti líka verið í gegnum reley sem getur líka bilað.

    Ég er búinn að fletta svolítið upp í Patrol rafkerfinu og finnst ekki ólíklegt að þó þau séu ekki eins er pottþétt hægt að finna eitthvað sammerkt með þeim. T.d. er einhver aðili eins og Delo Remy, bosch eða hitatci sem framleiðir alla íhlutina og gæti allt eins átt hönnunina af rafkerfum bílanna. Ég fór í vélaskipti á Pattanum og þá umsvifalaust týndust öll þessi merki. (á einu uugabragði) Þá eru þau öll tínd inná einhvern tölvugarm sem ekkert gerir nema skilar þeim aftur út að einhverjum skilyrðum fullnægt. Þau skilyrði fann ég ekki. Þetta gæti allt eins átt við Toyuna líka.

    Ef þetta fer að verða mjög flókin spöglering er stundum hægt að finna rafmagnsteikningar á netinu og þá kemur google gamli að góðum notum. Athugaðu samt að það er ekki pottþétt að teikningarnar séu akkúrat af þessum bíl en þær nýtast alltaf til að fá einhverjar hugmyndir.

    Kv Jón Garðar





    21.07.2010 at 23:27 #698096
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    sælir við erum búnir að rekja leistlurnar mælaborði og finnst ekkert svar við neinu við fáum leiðni í geknum þær enn eingin ljós

    svo uppgvötvuðum við annað þeggar pólarnir eru á rafgeimonum og það er svisað á kemur ekkert. tekk fram að svisin er í lagi.. enn þeggar pólarnir eru teknir af svo svisað á og síðan pólarnir teingtir þá fáum við ljós svo af því að maður fékk ljós þá prufar maður að svisa af og á og þá gerist ekkert eingin ljós koma… ég sett skko stórt spurninga merki við þetta ?!?!?!?!?!!!!

    þetta æti verið rely eða eikvað annað





    22.07.2010 at 22:37 #698098
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    [quote="sindri thorlacius":1sizxrxt]góðan daginn ég er í smá vandamáli með rafkerfi úr 4runner þa
    er ekki eikver snilingur þarna sem getur komið með tilögur[/quote:1sizxrxt]

    Þetta er bara misskilningur hjá þér. Atlie er búinn að sannfæra mig um að toyotur séu bilana lausir bílar og það hafi aldrei heyrst um bilaðann 4runner.





    23.07.2010 at 11:15 #698100
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll

    Það er ekkert spaug að finna út úr svona rafmagnsveseni en svörin þín benda ekki til þess að þú hafir mælt eins og ég talaði um. Ef þú ert ekki með sæmilegann fjölsviðsmæli og svona einhverja hugmynd um hvernig á að nota slíkann grip verð ég að segja þér að þú átt engann séns.

    Ef þú ert með þokkalegann mæli og smá þekkingu að vopni skaltu fyrst átta þig á því hvað vantar. Til að 12V pera lýsi þarf hún 12V, það er vitað mál en hún getur líka sýnt mismikið ljós eftir því hvað mikil spenna stendur á henni. s.s. ef það er 8V yfir hana lýsir hún kannski til hálfs o.s.frv.

    Ef ekkert ljós er á perunni vantar annaðhvort strauminn á hana eða nýja peru. Ef það vantar strauminn þá vantar að öllum líkindum plúsinn eða mínusinn. Ef þú finnur öruggann plús annarsstaðar og öruggann mínus geturðu sannreynt hvort plúsinn eða mínusinn vantar og ekki með ómmælingu heldur spennumælingu.

    Hafðu pólana á geyminum og svissaðu á. Stilltu mælinn á 20VDC skala (eða einhvern DC skala sem ræður við 12V) og mældu spennuna á geyminum. Það er æfing og þar ertu með pottþétta + og – póla. Mældu svo með rauða pinnan á + pól geymisins og svarta á sitthvorn pólinn á perustæðinu. Öðruhvorumegin ættirðu að fá 12V á mælinn á meðan vélin er ekki í gangi og svissað á bílinn. Ef þú færð 12V þarna er neminn að gefa í gegnum sig og það er gott mál. Næst seturðu svarta pinnan á – pól geymisins og mað rauða mælirðu báða póla perustæðisins og ef þú færð 12V hinumegin á perustæðið skaltu íhuga að skipta um peru. Ef ekki þá hefurðu fínan stað til að byrja.

    Þá veistu hvorn pólinn vantar. Byrjaðu á þessu og gefðu skýrslu um hvernig fer.

    Kv Jón Garðar





    28.07.2010 at 20:47 #698102
    Profile photo of Sindri Thorlacius
    Sindri Thorlacius
    Participant
    • Umræður: 78
    • Svör: 542

    búnir að fynna kvað var að rögtum eina leiðslu í altanetorinn og þar var bilunin létt tékka á honum á Ásco og kolin voru ónít og díóðubrúin brend þetta var lagað sett í bílinn og allt virkaði

    þakka fyrir hjálpina og ábendingarnar

    Kv sindri





  • Author
    Replies
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.