FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

rafgeymar

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › rafgeymar

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson Hafsteinn Þór Hafsteinsson 19 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.01.2006 at 11:00 #197049
    Profile photo of
    Anonymous

    Nú er kominn tími á að skipta um geyma í trukknum,

    er með 2,4dísel hilux og var að velt því fyrir mér hvað þið mælið með stórum geymum.

    Það sem er á bílnum eru 2 pör kastarar 100W, þokuljós 100W, þokuljós 55W, 4 vinnuljós 55W og svo náttlega GPS, VHF, NMT, CD, 300W inverter fyrir tölvuna osfr……

    með von um skjót svör

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 13.01.2006 at 11:21 #538876
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Eins stóran og þú getur komið fyrir aldrei of mikið rafmagm





    13.01.2006 at 11:35 #538878
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er nú ekki gott að koma fyrir í þessum bílum stærri geymum en 120 amperstunda. Satt best að segja á það líka að vera kappnóg, þótt margt sé um aukahluti, nema menn ætli að nota mörg tæki án þess að bíllinn sé í gangi. Höfuðatriði er að rafali (alternator) vinni rétt og spennu- og hleðslustilli sömuleiðis. Ef þetta er ekki í lagi, þá getur það eyðilagt nýja geyma á stuttum tíma. Þessvegna mæla fagmenn yfirleitt með því að ekki sé skipt um geyma nema fara vel yfir rafmagnsframleiðslukerfið í leiðinni með tækjabúnaði, sem ræður við verkefnið og af einstaklingi sem kann þetta. Það er hinsvegar málið varðandi diesel-HiLux að rafalinn í honum er full lítill miðað við íslenskan dótastuðul. En vegna þess að vacuumdælan er sambyggð alternatornum, er fremur erfitt að fá aðra og stærri rafala.





    13.01.2006 at 11:37 #538880
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þú setur 120amh 2stk en ég mæli með Banner geymum.
    með ferða kveðju siggi.

    p.s. er rauða…… að verða klárt til fjalla?
    Þarf ég að fara að finna spottann og gefa þér drátt! :-)
    Kv siggi.





    13.01.2006 at 11:48 #538882
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    hvernig er það, ef þú ert með 120 amperstunda geyma og altenator sem hleður 60 amper. passar það saman? á geymirinn ekki að vera jafn mörg amper og torinn er að hlaða? annars þekki ég þetta ekki nógu vel…





    13.01.2006 at 11:51 #538884
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er í sömu hugleiðingum. Var að spá í einmitt að láta líta á rafkerfið og athuga hvort það væri ekki í lagi áður en ég skipti um geyma. Hverjir eru líklegastir til að gera það vel? Einhverjar hugmyndir?

    Hvaða geyma eru menn að kaupa í dag?

    Kveðja





    13.01.2006 at 12:13 #538886
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sæll Finnur

    Þú ert að rugla hlutunum saman, ef þú ert með allaþesa hluti í gangi í einu og verður var við að bíllinn verður rafmagnslaus ættirðu ekki að horfa á geymana heldur alternatorinn.

    Ef þú ert með spennumæli þá geturðu fylgst með því hvort torinn sé að hafa undan álaginu. ef ekki þá er hugsanlega tímabært að setja stærri alternator.

    Rafgeymar gera fátt annað en að geyma uppsafnaða raforku til að nota þegar ýmist er dautt á bílnum s.s. ljós, útvarp, miðstöð o.s.frv. og til að geta startað mótornum með rafstarti sem er staðalbúnaður í flestum betri bílum. Rafgeymarnir taka líka neyslutoppa þegar alteratorinn hefur ekki undan og þú biður um auka rafmagn t.d. f afturrúðuhitarann.

    Þegar menn hrúga aukaljósum, talstöðvum, símum og allskyns auka rafbúnaði verða þessir toppar fleiri og hærri og þá þarf að leysa það með stærri alternator til að fækka og minnka toppana og hugsanlega stærri geymum til að ráða viðþá sem verða ásamt því að gera bílinn hæfari til að gefa betra start undir verri skilyrðum t.d. útaf miklu frosti.

    Kv Izan





    13.01.2006 at 12:24 #538888
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    nei nei, maður er nú aldrei með þetta allt í gangi í einu sko, og það er ekki vandamálið að hann verði rafmagnslaus þá. Ég hélt bara kannski að það væri ágætt að vita hvað væri á bílnum til að meta nauðsinlega stærð geyma. Allavega, þá eru 75amp geymar í honum núna, þeir virkuðu fínt en eru bara ónýtir, ég hef bara farið illa með þá. En eru þeir of littlir, er 120amp lágmark.

    p.s. siggi, vertu ekki að rífa kjaft….hehe þegar og ef og kannski Mikki verður klár rassskelli ég illur alla….hehehe





    13.01.2006 at 13:37 #538890
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Blessaður!
    95amh er alveg nóg fyrir þig þú sérð 2*95 ef ég man rétt þá eru þeir hliðtengdir.
    Svo er þetta með að mæla hleðslu og ath öll samböndin,
    kv sigginn





    13.01.2006 at 13:47 #538892
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Ef þú ert ekki með spil þá ættu 75 ampera geymar alveg að vera nóg, héðan í frá eins og hingað til. Tveir 75 ampera geymar eru jafnt og einn 150 ampera. Tveir 95 ampera eru jafnt og einn 190 ampera.

    Skoðaðu bara verðið og spáðu hverju þú tímir í geymana.

    kv
    Rúnar (með 2×75 ampera Varta geyma sem duga bara alveg).





    13.01.2006 at 13:54 #538894
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Það er hollt að lesa eftirfarandi bleðil um geyma:

    https://old.f4x4.is/bokasafn/Taekni/Rafgeymar.pdf

    Þetta er ennþá aðgengilegt af gamla bókasafninu:

    https://old.f4x4.is/bokasafn/

    Annars verslaði ég geymi hjá Rafgeymasölunni í Hafnarfirði (sama húsi og Bílanau$t) fékk ca 100Ah geymi á tæplega 13þ með 4×4 afslætti.

    -haffi

    ps. mælieiningin heitir amperstundir (Ah)





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.