FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Radíóamatöranámskeið framundan

by Arnþór Þórðarson

Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › Radíóamatöranámskeið framundan

This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Snorri Ingimarsson Snorri Ingimarsson 14 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.01.2011 at 10:58 #216708
    Profile photo of Arnþór Þórðarson
    Arnþór Þórðarson
    Participant

    Sælir félagar, ég bendi á að félag radíóamatöra (http://www.ira.is) er að fara að halda námskeið fyrir verðandi radíóamatöra. Ég er búinn að skrá mig á námskeiðið. Hvet fleiri til að gera slíkt hið sama. Vonandi verður næg þátttaka. Sjá einnig skemmtilegan amatöraþráð sem hófst hér á f4x4 spjallinu í okt 2009. Kveðja, Arnþór

  • Creator
    Topic
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)
  • Author
    Replies
  • 03.03.2011 at 22:38 #715330
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Námskeið til amatörréttinda verður haldið á vegum félagsins Íslenskir radíóamatörar á tímabilinu 7. mars til 27. apríl n.k. Kennsla fer fram í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes, mánudaga og miðvikudaga frá kl. 19:00-22:00. Kennslu getur þó lokið fyrr sum kvöld sem er háð kennsluefni hverju sinni.

    Ath. að ekki verður af sérstöku kynningarkvöldi 2. mars n.k., heldur mun stutt kynning fara fram í byrjun fyrsta kvöldsins, þ.e. mánudaginn 7. mars. Öllum er frjálst að mæta það kvöld í félagsaðstöðuna.

    Stefnt er að því að sækja um til Póst- og fjarskiptastofnunar að próf verði haldið laugardaginn 14. maí n.k. kl. 10 árdegis. Sú dagsetning býður upp á þann möguleika að efna til auka- og/eða æfingatíma eftir að formlegri kennslu lýkur.

    Þeir sem hafa skráð sig á námskeiðið munu fá tölvupóst frá félaginu í dag, 1. mars, því til staðfestingar. Námskeiðsgjald verður 12.500 krónur. Innifalið eru námskeiðsgögn. Félagsmenn Í.R.A. greiða 9.500 krónur. Þeir sem gerast félagsmenn við skráningu njóta lægra gjalds. Í lögum félagsins segir, að þeir sem ganga inn eftir 1. ágúst ár hvert greiði hálft félagsgjald. Fólk á aldrinum 16-66 ára greiðir þannig 2000 krónur og fólk yngra en 16 ára (og eldra en 67 ára) 1000 krónur.

    Þátttakendum er bent á að kynna sér upplýsingar um strætisvagnaferðir á heimasíðu og tímatöflu þeirra, en viðkomustöð Strætó er fyrir beint utan húsið. Nokkur spölur er í sölubúðir. Þátttakendum er því bent á að taka með sér nesti (ef þeir svo kjósa) en félagssjóður býður ávallt upp á kaffi.

    Kjartan Bjarnason, TF3BJ, skólastjóri námskeiðsins veitir allar nánari upplýsingar. Tölvupóstur hans er kjartan@skyggnir.is

    Sjá nánar hér: [url:324x7epq]http://www.ira.is/pages/viewpage.action?pageId=4557942[/url:324x7epq]





    05.03.2011 at 23:26 #715332
    Profile photo of Snorri Ingimarsson
    Snorri Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 68
    • Svör: 971

    Minni á Amatörnámskeið sem hefst næsta mánudagkvöld.

    Hvet þá sem hafa velt fyrir að fá sér amatörréttindi að mæta á mánudagskvöldið og kynna sér námskeiðið.

    Snorri
    R-16





  • Author
    Replies
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.