Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › Radar og geislavarar þekkir einhver inn á þetta
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Bragi Þór Jónsson 15 years, 1 month ago.
-
CreatorTopic
-
23.09.2009 at 21:38 #206730
Ég er að hugsa um að kaupa mér radar eða geislavara þar sem ég var tekinn á 103km hraða um daginn og fékk 30þ. í sekt. Með augun límd við hraðamælinn á 90 myndi eflaust meiri hætta stafa af mér á þjóðvegum landsins en á 103 með augun á veginum. Ég var að spá hvort einhver hér vissi eitthvað um þessi tæki og hvort hann væri til í að deila þeirri þekkingu með mér. Hef heyrt að þessi tæki virki ekki eftir að lögreglan fékk einhverja nýja tegund af hraðamælitækjum.
ATH. Þeir sem eru eitthvað á móti svona tækjum og ætla að koma með comment á við keyrðu bara hægar eða eitthvað álíka, mega alveg sleppa að svara þessum þræði.
Kv. Ökuníðingurinn
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
24.09.2009 at 00:48 #658618
Skoðaðu passport radarvaranna frá nesradio þeir taka líka leiserinn hjá löggunni. Eina málið með leiserinn er að hann þarf sama og engan tíma til að læsa inni hraðann. Þessir gömlu þurfa smá tíma til að læsa inni hraðann og gefur það þér tíma til að kíkja á hraðamælinn ef þú gleymir þér í stöðinni, hehe. Mér hefur fundist fáir bílar frá löggunni vera með leiser. Ef það er bíll á undan þér sem hefur verið skotið á þá heyrir þú það.
kv Hjalli Sig
24.09.2009 at 09:42 #658620Settu cruise control í bílinn, stilltu það á 90 og málið er dautt…
Bjarni G.
24.09.2009 at 09:44 #658622Málið með radarinn er að hann er alltaf á "hold" þangað til einhver hraður birtist. Þá tekur enga stund að fá upp hraðann sem hann er á og sá hraði er læstur strax inn. Það er mjög sjaldgæft að radarinn sé alltaf opinn því þá myndu allir sem eru með radarvara vita af mælingunni einhverjum kílómetrum í burtu.
Laserinn dregur lengra og er honum miðað á eitt ökutæki í einu, einnig er hann ekki opinn allann tímann, bara ef menn sjá mikinn hraða á ökutæki.
24.09.2009 at 10:38 #658624Held að þetta með radavarann sé að lognast út. Eins og þessi sem setti inn hérna á undan mér, að radarinn er að skjóta á bifreiðina, þannig að maður þarf að vera sek.brot að hægja á sér. Fékk sjálfur sekt um daginn, var á 102 á vesturlandsvegi. það var að vísu 10 þús kr reikningur þar. En ég er núna meira og meira að nota crusecontrol-ið á bílnum, en það er bara þannig að það er ekki alltaf hægt að nota það. sumir eru að keyra rokkandi.. sem sagt 75- 90 km. En já , , held að radarvaradæmið sé dautt.
24.09.2009 at 14:36 #658626Valentine 1 er eina sem virkar !!!! Ég hef keirt með nokkra og valintine 1 er eini radarvarinn sem ég treisti 100%
http://www.valentine1.com/
Hann fæst í USA fyrir 50.000 og í benna fyrir 100.000
24.09.2009 at 17:49 #658628Málið er bara þannig að ef að það er verið að skjóta á þig, sama hvort það er radar eða laser þá ertu böstaður því að löggan er mikið fljótari að læsa inni töluna á radarinn en þú að bremsa. Ég keyrði í mörg ár ekki án þess að vera með radarvara og þá var það bara gamall eins banda Cobra, hann virkaði alveg jafn vel og 3gja og 5 banda radarvararnir, það var alltaf ég sem var brotalömin í því að sleppa við sekt. Eftir að ég hætti að nota radarvara og fór að vera vakandi yfir því sem ég er að gera í umferðini (n.b ég hef ekkert slegið af með árunum) þá fóru sektirnar að hætta að koma inn og ég er afslappaðri við stýrið, ekki endalaust í einhveri taugaveiklun yfir radarvaranum sem pípti út af engu. Læra að meta umhverfið og aðstæðurnar og keyra eftir því er miklu betri leið en að treysta á eitthvað skrapatól sem þú veist ekkert yfir hverju það er að væla.
25.09.2009 at 15:28 #658630Ratarvarar virka fínt ef það er einhver umferð, þá verðurðu var við þegar verið er að mæla bílana á undan þér, ef þú ert einn á ferð ertu í verri málum. Valentine One er talinn bestur í öllum testum sem ég hef séð en hann er heldur ekki sá ódýrasti. http://www.valentineone.eu eða http://www.valentine1.com/ Þeir eru stilltir mismunandi fyrir mismunandi lönd.
25.09.2009 at 19:55 #658632Það er orðið déskoti lítið gagn af þessum radarvörum, segja menn mér. Því minna gagn sem umferðin er minni. En mig langar til að benda mönnum á annað. Góður kunningi minn sagði mér að yrði ég tekinn – sem ég hef sloppið við enn allavega – og ég væri ekki sáttur við mælinguna, að krefjast þess að fá að sjá klukkan hvað hraðinn hefði verið læstur inn. Það er víst ekki dæmalaust að sama hraðalæsingin sé notuð til að sekta nokkra bíla í röð. Ekki sel ég þetta dýrara en ég keypti, en ástæðulaust annað en hafa þetta í huga. Ég allavega hef hugsað mér að hafa þetta í huga, því ég er svo dæmalaus þverhaus að í mínum huga eru reglur til þess að fara eftir þeim.
26.09.2009 at 12:47 #658634Eitt enn sem má bæta við það er að þeir þurfa að prufa radarinn með tólnkvísl reglulega og skrá það í radarbókina. Ef þeir gera það ekki þá er mælingin ekki gild.
Mér finnst það líka vera algjört lágmark að ef að það á að vera að hanka mann á einhverjum reglum, þá er lágmark að þeir sem standa að því fari líka eftir reglunum.
29.09.2009 at 10:04 #658636Gaman að fá góð og skemmtileg svör.
En ég var að skoða á netinu svolítið sniðuga græju. Escort passport 9500 er með Gps og þar sem löggur eru mikið á sömu stöðum að mæla þá festir maður í minni hans hvar maður sá td. síðast löggu mæla og þá lætur hann mann vita að innan x km. gæti hugsanlega verið mæling í gangi. Síðan merkir maður Inn allar þessar þrjár hraðamyndavélar. Hér fylgir samanburður á valantine og escort passport 9500.
http://www.radartest.com/article_2.asp?articleid=100578Væri gaman ef lögreglumaður vildi commenta á þennan þráð
29.09.2009 at 10:36 #65863829.09.2009 at 10:38 #658640Þetta er auðvitað kjörið fyrir græjufíkla.
Ég sá á visir.is [url:2lw1ee44]http://www.visir.is/article/20090929/FRETTIR01/61416478[/url:2lw1ee44] að það er verið að setja upp nýjar hraðamyndavélar. Eru menn með hnitin á þessum nýju vélum á takteinum?
Þó að maður sé nú ekki alltaf að flýta sér þá þykir mér gott að minna mig á þetta þegar maður fer út úr bænum.Kv Hafsteinn.
29.09.2009 at 14:12 #658642Gaman að þessum þræði, sýnist að passportinn sé ennþá betri en valintine á þessum samanburði sem ég sá hér á þræðinum. Auðvita á maður að halda sér á löglegum hraða en það þarf bara gleyma sér augnablik og þá er maður tekinn og steiktur á teini!!! betra að fá sér radarvara og hann lætur mann vita ef mælingar eru í gangi.
Kv Hjálmar
05.10.2009 at 10:52 #658644Eg keyrði um með radarvara hér í denn, oft bjargaði hann mér en kannski ekki við að sleppa við sekt. Yfirleitt gat ég minnkað hraðann um 10-15km/klst. ekki mikið meira.
Í dag keyri ég eftir GPSinu, það er nákvæmasti hraðamælirinn, þegar þú ert á sléttum vegi. Upp og niður brekkur sýnir hann aðeins minni hraða, þar sem þú ferð ekki jafnmikið áfram eins og á sléttum vegi þar sem gervitunglin gera ekki greinarmun á brekkum.
Fyrir þá sem vilja keyra hratt löglega, þá eru í gildi lög þar sem frávik frá hámarkshraða eru leyfð, þ.e. 5%+3% (ekki sama og 8%). Það þýðir að þú mátt vera 5% yfir 90km/klst (þar sem hraðamælar sýna ekki alltaf réttan hraða) og svo máttu vera 3% yfir þeim hraða (skekkjumörk fyrir radarbyssurnar). Samkvæmt þessu "máttu" vera á 98km hraða.
Ég hef margoft prófað þetta, keyri eftir GPSinu og festi hraðastillinn (CruiseControl) á 98km/klst. Ég hef margoft mætt lögreglunni sem og keyrt framhjá hraðamyndavélum út á landi. Einnig hef ég það frá lögreglumönnum að þeir stoppa menn ekki fyrr en eftir 99km/klst. (samkv. þessum lögum).
Þessum frávikum var breytt (að mig minnir) fyrir 2-3 árum, var áður 10%+3%.
En svo kemur þversögnin, sem á sérstaklega við okkur jeppamenn og reyndar líka alla bíla, að við megum aka um á dekkjum sem eru 10% hærri en uppgefin dekkjahæð frá framleiðanda segir til um samkv. lögum. Og það er án þess að þurfa að breyta hraðamælinum sem er jafnvel vitlaus fyrir (sérstaklegar japanskir).
Mér er eiginlega spurn hvernig og hvort þetta sé löglegt ? Er það ekki bifreiðaskoðun/US sem segir til um hvort bílarnir séu löglegir til aksturs ? Þú færð endurskoðun fyrir 2 númeraljósaperur en hraðamælirinn má sýna kolranga tölu (~15-20% jafnvel). Margir vita ekki af þessu og þeir eru kannski að kaupa jeppa á 33" sem eru ekki beytingaskoðaðir og gera sér ekki grein fyrir þessu fyrr en þeir missa kannski prófið
Er þetta ekki eitthvað sem F4x4 ætti að skoða með US og kom á réttan kjöl ?
Það ætti kannski að skylda alla bíleigendur til að vera með GPS í bílunum ? Það er alla vega eini hraðamælirinn sem ég treysti á í dag.
Góðar stundir.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.