FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Pústþjónustur!??

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Pústþjónustur!??

This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 26.10.2004 at 18:56 #194731
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir hvernig reynslu hafið þið af BJB púst í hfj? ‘Eg lét smíða 2 og hálfstommu púst undir toyotuna mína þar sem er disel túrbolaus fyrir einu og hálfu ári ég er búinn að þurfa að fara 5 sinnum til þeirra aftur 3 skifta um kút og 2 upp við grein þar sem það brotnar nú er hann byrjaður að pústa út aftur upp við grein og ég spyr er þetta ekki pústþjónusta?! Ef að það vantar eina festingu eiga þeir ekki að getað reddað henni ?

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 21 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 26.10.2004 at 19:17 #507132
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Ég hef átt viðskipti við BJB og allt það sem þeir hafa gert fyrir mig hefur verið 110% Gott.

    En síðast þegar ég var í pústveseni lét ég þá í pústþjónustunni Ás Nóatúni smíða 2,5" undir bílinn og er liðið 1-1/2 ár síðan,það hefur ekki þurft að líta á pústið síðan.Mæli með þeim





    26.10.2004 at 20:04 #507134
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Ég lét smíða undir minn hjá feðgum í Fjöðrinni, það er bara gott og ekkert vesen á því. ódýrir, snöggir og góðir, mæli hiklaust með þeim





    26.10.2004 at 20:11 #507136
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    Líka ánægður með Ás Nóatúni 2.

    l





    26.10.2004 at 22:06 #507138
    Profile photo of Árni Águst Brynjólfsson
    Árni Águst Brynjólfsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 138

    ég Versla allt hjá Einari í Kópavogi hann er ódýr og fínn og ekkert vesen og ef hluturinn er ekki til þá er hann Bara smíðaður.





    26.10.2004 at 22:11 #507140
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    Ég lét Ás í Nóatúni smíða 2,5 tommu opið púst undir 2,5 lítra Pajeroinn minn í sumar. Það kom reyndar í ljós eitt suðugat, sem var gert við undir eins þegar ég kvartaði. Mig minnir að ég hafi borgað 18.500 kall fyrir og er mjög ánægður. Meiri kraftur og minni reykur, svolítið hressilegra hljóð.

    Wolf





    27.10.2004 at 01:10 #507142
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    BJB is da sjitt. BJB eru að mínu mati bestir. Ég mun aldrei eiga viðskipti við Einar áttavillta í kópavoginum því hann var næstum því búinn að taka mig í þurran bossann!

    kv, Ásgeir





    27.10.2004 at 11:56 #507144
    Profile photo of Rangur
    Rangur
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 376

    Hef einungis góða reynslu af BJB og heyrt gott um þá. Sú reynsla er þó einungis af því að setja standard undir og laga en þar hafa þeir reynst góðir og sanngjarnir.

    kv.

    Þorsteinn Þ.





    27.10.2004 at 12:48 #507146
    Profile photo of Viðar Örn Hauksson
    Viðar Örn Hauksson
    Member
    • Umræður: 16
    • Svör: 171

    Í hvert skipti sem ég hef farið til BJB, hef ég þurft að koma aftur 2 sinnum til að láta laga það sem smíðað var.

    Enn þetta hefur aldrei verið neitt mál og gert strax!

    Ég neita því ekki að ég varð svolítið pirraður síðast end þá að koma aftur í 5 skiptið þetta árið.

    Annars eru þeir með mesta úrvalið og hröðustu þjónustuna. ´

    kv,

    Viðar





    27.10.2004 at 13:12 #507148
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Ég gef Einari í Kópavogi mín meðmæli.

    Hann smíðaði flækjur og 2 1/2" opið púst undir 3 lítra 4Runnerinn minn fyrir rúmu ári síðan. Fyrir utan það að vera enn í fínu standi, hljóma skemmtilega og svínvirka – þá er þetta bara svo listavel hannað og smíðað hjá honum nafna mínum.

    Til dæmis tók hann óumbeðinn tillit til þess við smíðina að hægt væri að bæta þriðja bensíntanknum við aftan við hásingu og lagði pústið þannig að það yrði ekki til trafala.

    Pyngjan léttist reyndar eitthvað við þessi viðskipti, en ég sé ekki eftir þeim pening.

    kv.
    Einar Elí





    27.10.2004 at 15:35 #507150
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll Einar.. hvað varstu að borga fyrir þennan pakka.. er með eins vél

    Kv. Gretar





    28.12.2004 at 22:24 #507152
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég mæli eindregið með Einari í Kópavogi. Hann smíðaði kerfi í Corvettuna mína sem er ekkert annað en listaverk. Smíðaði líka í Suburbaninn minn og er mjög vel gert, allt hengt upp á gúmmípúðum og sterklegt. Meira pláss undir Bubbanum en Corvettan leyfir ekki mikið pláss, samt kom hann rörunum með H pípu glæsilega fyrir.





    28.12.2004 at 22:37 #507154
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    Hjá BJB hef ég látið smíða undir cruiserinn minn + intercooler lagnir með góðum árangri, átti reynda einu sinni hilux, sem braut alltaf suðuna upp við grein, en á hann vanntaði líka ´liðsokkinn, sem er jafan dýrasti hluturinn við að 2,5"-3" kerfi!





    28.12.2004 at 23:06 #507156
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég hef reynslu af viðskiptum við BJB og get alveg mælt með þeim, sérstaklega verðinu.

    Hjalti J





    28.12.2004 at 23:50 #507158
    Profile photo of Samson B Jónasson
    Samson B Jónasson
    Member
    • Umræður: 1
    • Svör: 90

    Pústþjónustan Ás á hug minn allan, þeir smíðuðu 3" tvöfalt púst fyrir mig undir GMC Van 6,5l og virkilega snirtilega gengið frá því. og virkilega fljót og góð þjónusta.





    29.12.2004 at 01:14 #507160
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    aesir: Seint er svarað – en svarað þó.

    Með flækjum og 2,5" "opnu" pústi (með tveimur háflæðiskútum) minnir mig að þetta hafi verið öðru megin við 80.000. Allt sérsmíðað og -hannað.

    Allavega ódýrara en púst undir RX7.

    kv.
    Einar Elí





    29.12.2004 at 10:24 #507162
    Profile photo of Benedikt Þorgeirsson
    Benedikt Þorgeirsson
    Member
    • Umræður: 50
    • Svör: 805

    Eru þeir ekki bara allir voða góðir greyin??
    Bara skella PK í góminn og brosa..





    29.12.2004 at 11:04 #507164
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég ætla að fara leggja allt mitt traust á Pústþjónustuna Ás á eftir. Ég er ekki tilbúinn að gera það við Einar aftur fyrr en hann fer að nota almennilegt efni í pústin hjá sér, en hann er snilldar smiður. En verðin sem hann gefur upp í síma standast yfirleitt aldrei þegar er komið að því að borga, alltaf eitthvað + vinna og + skattur. Kanski er það bara ég en mér finnst lágmark að fá að vita hvað ég þarf að borga áður en ég kaupi hlutinn.

    Það að 2L og 2L-t brjóti grein og suður er bara spurning um að festa pústið undir bolta við gírkassahringinn eins og það kemur original. þá leggst ekki allur þungi pústsins á suðurnar við túrbínuna.





    29.12.2004 at 12:14 #507166
    Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason
    Bergur Kristinn Guðnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 371

    Bara gera þetta sjálfur. Einfaldast, ódýrast og pústið er eins og þú vilt hafa það.





    29.12.2004 at 15:46 #507168
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    Mæli með Ás 2,5" undir Pæju virkar fínt frá fyrsta degi og nú í 1/2
    l.





    29.12.2004 at 17:32 #507170
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Var að sækja bílinn og allur frágangur virðist vera mjög góður. Vona að ég fái sömu reynslu og þú Snöfli. Eftir ferðina heim get ég ekki sagt að ég hafi fengið einhvern haug af hestöflum í pakka frá skítmixinu sem var undir honum sem var orginal í 2.5" og svo 3" aftast. En það er eflaust að það vantar hávaðann og sálrænu hestöflin.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 21 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.