FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

púst

by Vilhelm Snær Sævarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › púst

This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Vilhelm Snær Sævarsson Vilhelm Snær Sævarsson 19 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.11.2005 at 08:07 #196658
    Profile photo of Vilhelm Snær Sævarsson
    Vilhelm Snær Sævarsson
    Participant

    Getur einhver sagt mér hvar er best að láta smíða 3″ púst undir patrol

  • Creator
    Topic
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)
  • Author
    Replies
  • 18.11.2005 at 08:14 #532976
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Ég mæli með BJB í Hafnarfirði.
    Kveðja Lella





    18.11.2005 at 10:55 #532978
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Ég lét smíða 3" púst (með kút) undir ´91 pattann hjá mér hjá Einari á Smiðjuvegi 50 og það kostaði eitthvað um 35-40 þús kr. fyrir tæplega 3 árum. Hefur varla hækkað svo mikið síðan eða hvað ?
    Pústið er ennþá undir bílnum og hefur aldrei verið til vandræða og er í fínu standi…..





    18.11.2005 at 11:47 #532980
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Ég var nú ekkert að efast um þitt verð, bara að segja frá minni reynslu :-)





    18.11.2005 at 12:06 #532982
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Siggi í BJB smíðaði 3" púst handa mér á ´94 Patrol á 30þús kall slétt, að vísu með einhverjum afslætti en samt, hann er snillingur.

    kv, Ásgeir





    18.11.2005 at 12:48 #532984
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Kostar helling (ca 80.000) í BJB undir 3.0lítra pattana. Ástæðan er sú að það þarf að rífa hálfan bílinn í sundur til að koma fyrstu 30-40 cm af pústinu undir.

    Á að vera mikið ódýrara undir flesta aðra bíla.

    Það á ekki að vera nein ástæða til að setja afgashitamæli í svoleiðis bíl, ef menn eru ekki að hræra í einhverju meiru í leiðinni

    kv
    Rúnar.





    18.11.2005 at 13:19 #532986
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Nóatúni,þeir eru líka góðir





    19.11.2005 at 07:41 #532988
    Profile photo of Vilhelm Snær Sævarsson
    Vilhelm Snær Sævarsson
    Participant
    • Umræður: 136
    • Svör: 674

    glæsilegt, þakka góð svör og ábendingar

    Kv Villi





    19.11.2005 at 11:07 #532990
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég fór þangað í fyrra að athuga með púst og kostaði það 46 undir komið í Pajeroinn hjá mér. Það skrítna við það var að þeir voru samt tilbúnir að selja mér rörin beygð og kónuð á 13þús. Ég þakkaði pent fyrir og fór í Pústþjónustuna Ás og fékk 2.5" á 25 undir komið með einni túbu.

    Ef að menn hafa aðstöðu og rafsuðu þá er ekki vitlaust að kaupa rörin og sjóða undir sjálfur.





    19.11.2005 at 12:34 #532992
    Profile photo of Páll Arnarsson
    Páll Arnarsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 494

    Mæli með þeim feðgum í Fjöðrinni niðrí Skeifu. Fór þangað með minn bíl og þeir voru ekki í neinum vandræðum, snöggir og mjög sanngjarnir í verði





    19.11.2005 at 16:42 #532994
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sæll Villi

    Ég ásamt félaga mínum skelltum 2,5" rf pústi undir Cherokee hjá mér. Það kostaði um 20.000 kr. Það voru keypt rör, nokkrar tilbúnar 90°beygjur sem voru notaðar í tvær 45° beygjur hver og tveir flangsar til að stækka upp í 4" í lokinn.
    Efniskaup voru miðuð við að tvískipta pústinu undir miðjum bílnum og hafa tvo 4" stúta að aftan.
    Svo notaði ég túbu sem var í fyrir og 2,5" opinn hljóðkút sem ég fékk á 3000 kr notaðan úr nýlegum Amerískum jeppa.

    Við fengum lánaða rafsuðu úr Byko og skelltum þessu saman á einu kvöldi þrátt fyrir mikla nákvæmnisvinnu við að troða þessu í.

    Þetta er ca 1,5 ár síðan og virkar fínt

    Kveðja
    Izeman





    10.12.2005 at 19:54 #532996
    Profile photo of Vilhelm Snær Sævarsson
    Vilhelm Snær Sævarsson
    Participant
    • Umræður: 136
    • Svör: 674

    jæja, er búin að versla 3" púst í pattann hjá BJB, þeir voru hálftíma að setja það undir en voru að vísu með allt klárt og kostaði 46000 og er þokkalega sáttur við það

    Kv villi





    10.12.2005 at 20:16 #532998
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ertu sáttur við pústið ??? Er túrbóið að koma fyrr inn núna ???

    Góðar stundir





    11.12.2005 at 20:12 #533000
    Profile photo of Vilhelm Snær Sævarsson
    Vilhelm Snær Sævarsson
    Participant
    • Umræður: 136
    • Svör: 674

    já túrbóið kemur fyrr inn núna, sýndist það vera í tæplega 1900 en helv túrbínan er orðin laus og það blæs út með henni. og já er mjög sáttur, hann vinnur mikið léttar og heyrist mikið minna í honum
    Kv Villi





    11.12.2005 at 21:40 #533002
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    ég fór í bjb með ´94 Patta og ég náði að prútta niður í 33.000kall. En jæja.

    Og þetta með að hljóðið hafi minnkað…það finnst mér skrýtið. Hjá mér hækkaði hljóðið um 200% og heyrðist meira eins og þotuhreyfill. Settiru ekki rör alveg út allaleið…það gæti verið ástæðan fyrir hljóðleysinu…settu þeir hljóðkúta?

    kv, Geirinn





    12.12.2005 at 19:44 #533004
    Profile photo of Vilhelm Snær Sævarsson
    Vilhelm Snær Sævarsson
    Participant
    • Umræður: 136
    • Svör: 674

    já einn opinn kút, nenni ekki að vera að ærast úr hávaða

    Kv Villi





  • Author
    Replies
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.