Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Prófílefni
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristján Hagalín Guðjónsson 16 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.06.2008 at 11:47 #202508
Hvað eru menn að nota svera og mikla efnisþykkt í prófílefni framan á jeppana sína? Hvar er best að kaupa þetta? eru dráttarkúlutengin ekki í tommumáli? Er að fara smíða prófíltengi framan á Grand cherokee ef einhver hefur smíðað svoleiðis með góðum árangri þá væri ég til í að fá upplýsingar.
kv
Sigfús -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.06.2008 at 11:56 #623916
Ég nota 4mm efnisþykkt
kveðja
Hjörtur
03.06.2008 at 17:18 #6239184mm er alveg nóg, í flest allt það er að segja. Sennilega yfirdrifið, og þetta er í millimetramálum. 50×50 er innri prófíllinn, 60×60 er ytri (sá sem er á bílnum þeas).
Þetta er utanmál.
SVO HEITIR ÞETTA FÝRKANTRÖR, EKKI PRÓFÍLAR. Læriði íslensku í gvöðanna bænum…
:Þ
.
kkv, Úlfr
E-1851
03.06.2008 at 18:26 #623920Lang best að nota 4mm
5mm er orðið of þykkt, þannig þú kemur ekki 50×50 prófíl inní hann.
Eða kannski í fyrsta skiptið svo er hann fastur ;D
Keyptu þér bara Prófíl sem er 60x60x4 og svo 50x50x5 og þá ertu vel góðurAnnars er fýrkantsrör eitt viðbjóðslegasta orð sem ég hef heyrt Ulfr
Þetta heitir Prófíll það er bara þannig 😀
Reyndar hef ég keypt þetta sem Prófílrör
en on topic,, 60x60x4 og 50x50x5 og þá ertu djöfull góður
mbk Guðni
03.06.2008 at 20:49 #623922"SVO HEITIR ÞETTA FÝRKANTRÖR, EKKI PRÓFÍLAR. Læriði íslensku í gvöðanna bænum…"
Og hér sannast að gamansemi Íslendinga teygir sig býsna langt. Þarna segir hinn ágæti Samúel feikna fyndinn brandara sem ég er þó ekki alveg viss um að allir hafi skilið. Gamansemin felst í því að Samúel segir að danska og íslenska séu sama fyrirbærið, en "fýrkantrör" heitir einmitt "firkantrör" á dönsku en "prófílrör" á slæmri ensku. Það er þó nokkuð samdóma álit fræðimanna að danska og íslenska séu ekki það sama, jafnvel þótt þær séu af sömu rót runnar og íslenskan ekki komin jafn langt á þroskabrautinni og danskan. Á íslensku myndi þetta beislissmíðaefni sennilega kallast "pípa með ferningslaga þversniði" og mætti kannski styttast í "ferningspípa". Skora ég á beislissmiði að biðja um slíkt næst þegar þeir afla sér efnis.
Það er svo annars umhugsunarefni um framhaldið þegar dönskusletturnar eru orðnar svo rótgrónar að þær greinast ekki frá ástkæra ylhýra málinu. En minnumst samt þess fornkveðna að á íslensku má alltaf finna svar og að á Íslandi er til orð um allt sem er hugsað á jörðu.
Að svo mæltu þakka ég títtnefndum Samúel fyrir þann skammt af gleði sem hann veitti inn í mannlífið.
03.06.2008 at 21:03 #623924Á ensku er þetta oft kallað "box-tube"
03.06.2008 at 21:08 #623926Af því að það er verið að ræða prófíl þá spyr ég, er einhver annar að selja prófíl en [url=http://ga.is:22gz0gfw][b:22gz0gfw]Guðmundur Arason[/b:22gz0gfw][/url:22gz0gfw] ?
mbk, ÞA
03.06.2008 at 23:24 #623928Það er fákeppni á stálmarkaði á Íslandi. Veit að það eru gaurar að selja stál beint á móti timbursölu húsasmiðjunnar í Súðarvogi. Sindrasynir held ég að þeir kalli sig. Hef ekkert borið saman verð hjá þeim og GA. Það væri fróðlegt að heyra af því frá þeim sem eru í kauphugleiðingum. Málmtækni er með eitthvað af járni en aðallega í áli, plasti og ryðfríu.
–
Bjarni G.
03.06.2008 at 23:43 #623930Einnig Ferro Zink í Haf, þeir eru með svart efni -> http://www.ferro.is/
Svo er Metal með ryðfrítt og álprófíla -> http://www.metalehf.is/
kv, Bjarni
04.06.2008 at 09:34 #623932Sindri er selur einnig járn í massavís. http://www.sindri.is
Járn var ekkert svo dýrt fyrir nokkrum árum en heimsmarkaðsverð á því spólaðist upp ekki als fyrir löngu. Var í umræðunni þá að Kína væri að soga til sín allar járnbirgðir heimsins.
kveðja
Rúnar.
04.06.2008 at 09:49 #623934Sorrý ekkert járn í Sindra lengur allt komið til Gvends
04.06.2008 at 09:54 #623936Jamm GA keypti Sindra stál
en djöfull er þessi þráður orðin off topic 😀
04.06.2008 at 10:15 #623938Þakka góð svör…svona hér og þar..:)
04.06.2008 at 18:07 #623940Ég minntist nú á þetta "fýrkantrör" sökum þess að prófílar hafa gjarnan verið kallaðir þetta í kennslubókum, svo rekur mig minni í söku sem ég heyrði eitt sinn af dreng (ekki fyrir mjög löngu) sem rölti inní Ferro-Zink og bað um 60x60x4mm prófíl en hrökklaðist út þegar sölumaðurinn baulaði að honum þessi ógleymanlegu orð: "Við köllum þetta nú fýrkantrör hér"
.
Vona að einhverjum hafi verið skemmt. ;P
.
kkv, Úlfr.
E-1851
10.06.2008 at 13:24 #623942Svona til upplýsinga þá er til annað fyrirtæki sem heitir Sindrason (http://www.sindrason.is) sem eru að selja efni. Þetta eru allt fyrrverandi starfsmenn Sindrastál. Þeir eru í Súðarvogi 4.
kv
Sigfús
09.02.2009 at 15:04 #623944Er 3 mm efni í 60×60 of lítið? Hann er ekki nema 63cm á milli og svo skar ég út fyrir honum í plattana sem boltast á grindina. Svo er hann ekki með neina síkkun eða neitt svoleiðis bara beint út frá bitanum sem kemur á milli grinda. Tók hann í gegn um stuðarann.
Á ég kanski að sjóða innan á hann styrkingu eða er þetta alveg nó.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
