FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Patroyota

by Jón Garðar Helgason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Patroyota

This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson Lárus Rafn Halldórsson 17 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.05.2008 at 12:51 #202391
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant

    Daginn.

    Hefur einhver sett 60 Krúser mótor með kössum og tilheyrandi ofaní gamla Patrol?

    Sér einhver eitthvað því til fyrirstöðu?

    Kv Izan

  • Creator
    Topic
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)
  • Author
    Replies
  • 02.05.2008 at 15:36 #622018
    Profile photo of Guðmundur Á Guðlaugsson
    Guðmundur Á Guðlaugsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 141

    Fyrir að láta þér detta svona vitleysa í hug JÚDAS
    Þetta er Guðlast

    Með kveðju um að þú látir af villu þíns vegar
    G





    02.05.2008 at 16:24 #622020
    Profile photo of Sverrir Kr. Bjarnason
    Sverrir Kr. Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 172

    Láttu ekki hugfallast þótt einhverjir hreintrúarmenn bölSótist í þér, þeir eru auðvitað stórhættulegir eins og dæmin sanna bæði í USA og Írak.
    Þarna verðurðu kominn með traustan mótor og að sjálfsögðu afburða kram.
    Kv.
    S.





    03.05.2008 at 01:12 #622022
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Það var bara átt við að það væri guðlast að setja LandCruiser mótor í Datsun. Þó svo að Datsuninn myndi skána eitthvað við aðgerðina væri þetta að sjálfsögðu algerlega óviðeigandi…..





    03.05.2008 at 16:47 #622024
    Profile photo of Magnús Tómasson
    Magnús Tómasson
    Member
    • Umræður: 2
    • Svör: 80

    Það kemur ekkert annað til greina ef þú ætlar að komast örugglega og bæta Datsuninn bara besta frá báðum tær snilld.

    Kveðja maggi.





    03.05.2008 at 17:01 #622026
    Profile photo of Atli Þorsteinsson
    Atli Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 260

    bara til að forvitnast Izan en er þetta 4,2 eða 4,0 en annars góð hugmynd !
    kv. Atli





    03.05.2008 at 19:16 #622028
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir.

    Ég átti ekki von á að vera nefndur Júdas þó að þessi hugmynd hafi þotið í gegnum kollinn á mér. Ég er svosum ekkert að fara út í þessa sálma í dag eða morgun en líklega er mótorinn minn á seinni snúningnum og ef til vill yrði þetta ódýrara en uppgerð á vélinni.

    Gírkassinn minn er svolítill óhljóðabelgur líka og engin eftirsjá í honum.

    Þannig er nefninlega að amk 3 Patrolar eru að mér vitanlegu komnir með 80 krúser mótor eða sambærilegt en þeð er allt nýrri bílar en minn. 80 Krúser mótorinn er óþarflega dýr fyrir minn smekk og sérílagi fyrir Pattan minn.

    Gallinn við 60 krúserinn er 24V rafkerfið og það var í raun það sem ég hef mestar áhyggjur af. Nemana myndi ég færa af Patrolvélinni til að þeir passi við mælana og 24V startrelý er hægt að finna í nokkrum bílum. S.s. lítið mál. Meira vandamál er snúningshraðamælir og þá hugsanlega eitthvað annað sem ég veit ekki hvernig er í Krúser, t.d. olíuverk o.s.frv.

    Attttto. Ég er að horfa á original turbo mótor, eru þeir til nema 4.2L. líklega ca 87-88 módel og yngri. Annars held ég að 0.2l skipti litlu máli ef enginn annar munur er á en ég held að 4.0 sé ekki með orginal turbo.

    Kv Izan





    03.05.2008 at 19:25 #622030
    Profile photo of Ægir Sævarsson
    Ægir Sævarsson
    Member
    • Umræður: 26
    • Svör: 424

    ég hef ekki mart um þetta að seija en þetta er dírt og tekkur mikkin tíma
    kveðja Ægir

    ps ekki eða miklu í gamlan bíll





    03.05.2008 at 20:20 #622032
    Profile photo of Vilhjálmur Arnórson
    Vilhjálmur Arnórson
    Member
    • Umræður: 23
    • Svör: 316

    Þetta yrði þá með skárri patrolum ef af verður.

    LC 60 ´86-´89 eru með 4.0turbo, þó að þeir hafi verið til túrbólausir líka, 80 týpan kemur með 4.2 vél, 12v vélin í þeim er 167hp en ég man ekki hvað 4.0 vélin er, en mig minnir að það sé á milli 130 og 140, svo á eftir að bæta við millikæli þannig að 4.0 vélin ætti að geta slefað upp undir 150hp, dráttarklársöfl, vel uppsett. En þarna er um gjörólíkar vélar að ræða (2.8 nissan eða 4.0 toyota) 4.0 er allur úr stáli og talsvert þyngri en þeir hafa haldið heilum heddum alla ævi, svo er vinnslusviðið gjörólíkt, kjörsnúningur á 4.0 er rá 1400-2400rpm á meðan 2.8 gerir lítið á undir 2500rpm, kostir og gallar.

    Þetta með rafmagnið, eitthvað segir mér að startari úr lcII, 2,4td, gæti passað við 4.0 mótorinn.





    03.05.2008 at 21:44 #622034
    Profile photo of Heiðar Steinn Broddason
    Heiðar Steinn Broddason
    Participant
    • Umræður: 113
    • Svör: 839

    ef þú hefur aðstöðuna og getur gert þetta og ekki verra að eiga góða vini :) þá mundi ég hiklaust skella mér í þetta verkefni,júdas og ekki, á nú krúser sjálfur en það er nú ýmislegt sem pattinn hefur framm yfir þó mótorinn standi ekki þar uppúr

    kv Heiðar U-119





    03.05.2008 at 21:45 #622036
    Profile photo of Guðmundur Á Guðlaugsson
    Guðmundur Á Guðlaugsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 141

    Afsakaðu nafngiftina ætlaði nú ekki að særa þig mikið.

    Allavega ekki eins mikið eins og þú hefur sært okkur hina sönnu Datsun unnendur með þessum vanhugsuðu véla spurningum.

    Málið er að fá sér Big Block 3,3Lítra Datsun mótor..

    Mínar bestu Kv G





    04.05.2008 at 00:18 #622038
    Profile photo of Jóhann Kristján Kristjáns
    Jóhann Kristján Kristjáns
    Participant
    • Umræður: 11
    • Svör: 213

    . . . nema kannski ekki þessu með 3.3. Held þú græðir lítið á að setja 4.0 Toy. í Patrol.

    Hef sjaldan orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum eins og þegar ég skipti á Patrol 2.8 og 4.0L 60 Cruiser TDI. Sá bíll er stórkostlega ofmetinn á meðan að Gamli Pat. 2.8 er að sama skapi vanmetinn.
    Magnað hvað sumir eru samt ánægðir með Toy, þrátt fyrir að ná lítilli endingu út úr mótornum. Reyndar segir sagan að sá bíll hafi verið að draga nokkuð volduga kerru á þjóðveginum um það leiti sem vélin fór!





    04.05.2008 at 13:30 #622040
    Profile photo of Vilhjálmur Arnórson
    Vilhjálmur Arnórson
    Member
    • Umræður: 23
    • Svör: 316

    Hvaða "sá bíll" var það Jóhann? Ef það er bíllinn sem ég keypti af þér þá hefur sú saga farið fjöllunum hærra í tíma og rúmi.





    04.05.2008 at 21:32 #622042
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    sæll

    ég hef breytt svona 60 krúser mótor úr 24 voltum í 12 volt, ekkert mál..

    ef þú hefur áhuga á að vita hvað þarf að gera, vertu þá í bandi,

    lalli@slepja.com





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.