FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

patrol vs. landcruiser

by Birkir Jónsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › patrol vs. landcruiser

This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 09.12.2002 at 11:36 #191879
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant

    Sælir félagar

    Ef patrol og toyota eru svona góðir bílar og miklu betri en allir aðrir afhverju endast menn þá ekki á sama eintakinu? Ég meina allir að tala um að kaupa nýju árgerðina, skipta um þetta, breyta hinu bla bla bla…

    Er ekki málið að þegar menn eru með svona dýra fjárfestingu eins og patrol eða Landcruiser verða menn þá ekki að verja hana með því að segja að hún sé góð og aðrir eiga að gera eins?

    Maður heyrir ekki að menn skipti jafn ört um aðra bíla. Sem hlýtur að vekja athygli hjá manni!

    Hvað finnst ykkur?

    Kveðja Fastur

  • Creator
    Topic
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)
  • Author
    Replies
  • 09.12.2002 at 14:11 #465114
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ég er sammála þér. þeir eru alltaf á nýjum og nýjum bílum. geta ekki átt hann lengur enn í nokkur ár.





    09.12.2002 at 15:37 #465116
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Þetta er mjög góður punktur. Annaðhvort eru bílarnir ekki eins góðir og þeir vilja vera láta eða að hégómagirndin spilar þarna inní.

    Ég hef átt minn gamla Chevrolet í allnokkur ár og hann dugir örugglega í 20 ár enn :)

    JHG





    09.12.2002 at 16:05 #465118
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er nú frekar skrýtin kenning, því allavega hvað varðar Toyoturnar eru þær nú ansi margar komar vel á aldur og í fullu fjöri. Minn gamli er kominn á bílprófsaldur og því farinn að geta keyrt sjálfur.

    Það sem blekkir ykkur strákar er sennilega það að það er enginn að kaupa nýja Chevrolet jeppa eða Ford, eða allavega er það svo sjaldgæft að það er hending að sjá nýja slíka. En það er náttúrulega vegna þess að ef menn eru kaupa bíl fyrir mökk af milljónum velja menn tegundina af sem mestri kostgæfni.





    09.12.2002 at 16:14 #465120
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ERUÐ ÞIÐ KOMNIR Í NÝJAN SANDKASSA?





    09.12.2002 at 16:49 #465122
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ætli Chevy og Ford menn séu ekki bara á ennþá á sínum gömlu 😉

    Ég hef grun um að þetta tengist meira eigendunum en bílunum.

    Ég þekki margar sem eru á besta bíl í heimi (sem ég er reyndar líka á, bara ekki sama tegund), síðan skipta þeir um og fá sér annan (jafnvel aðra tegund) besta bíl í heimi (meðan ég er ennþá á mínum gamla besta bíl í heimi). Við þetta verður fyrrverandi besti bíll í heimi sem þeir áttu óttalega lélegur, eða í besta falli ekki nógu góður. Þá hætti ég að skilja…… :(

    En er ekki fyrir mestu að þessir menn ásamt okkur sem skiljum ekki neitt og keyrum áfram á okkar gömlu jeppum séum ánægðir með okkar?

    Annars eru þau mál með amerísku bílanna miklu flóknari og tengjast m.a. óheyrilegum vörugjöldum sem ég fæ hroll við að hugsa um og efast um að nokkur vilji lesa um :(

    Enn það er alltaf gaman í sandkassanum 😀

    JHG





    10.12.2002 at 13:10 #465124
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    eða bara fyndið

    Það virðist enginn þora að að vera ósammála þessu.

    Ég hlýt þá að hafa hitt naglann á höfuðið.

    Kveðja Fastur





    10.12.2002 at 14:12 #465126
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    ætli málið sé ekki líka það að vera á nýrri flottari og endurbættari bíl en hinn náunginn??? eitthverskonar metingur á milli manna??? (pabbi mihnn er stærri og sterkari en pabbi þinn?? o.s.fr) svona metingur er til þegar menn eru ungir og littlir afhverju ætti hann að hverfa þegar menn verða stórir??
    kv. Örn





    10.12.2002 at 14:15 #465128
    Profile photo of Theodór Kristjánsson
    Theodór Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1008

    Ég verð bara að segja það að mér finnst mikil sjarmi farin af því að ferðast um fjöll og hitta ekki lengur töffara á Willysum, Broncoum, Jeepsterum, Blazerum og þess háttar bílum sem var búið að breyta mismunandi mikið og vel. Núna eru flestir á bílum breyttum af bílabreytingaverkstæðum og bílarnir algerlega karakterlausir og ekkert spennandi nema að metast um hvor er með dýrari fartölvu, flottara spil, intercooler eða ekki.

    Kveðja Theodór.





    10.12.2002 at 15:19 #465130
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Theodór, eftir lýsingunni á bílnum þínum ertu nú ekki á neinum Glitnisbíl og þó hann heiti Toyota en ekki Willis eða Bronco hlýtur þetta að vera orðinn þokkalega mixaður gamall öðlingur. Þannig er allavega með minn gamla Runner og persónulega finnst mér hans karakter ekki síðri en á gamla Jeepsternum sem ég átti í denn. Og reyndar Toyotan gangvissari og traustari því þó báðir hafi duttlunga, þá birtast þeir aðallega í því í Toyotunni að útvarpið hætti að virka eða annað álíka mikilvægt, en Jeepsterinn gat átt það til að neita að fara í gang útaf einhverjum smámunum. Hann var svona duttlungafull eiginkona meðan Toyotan er aðallega í smáhrekkjum!

    En eins og ég segi skil ég ekki þessa kenningu hérna efst og sé ekki annað en að hún sé úr lausu lofti gripin. Gamli Toyota jálkurinn minn er bara ein af mörgum sönnunum um að þetta stenst ekki og líklega haugryðgaði olíbrennarinn hans Theodórs líka.





    11.12.2002 at 11:31 #465132
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Blessaðir, það er nú oft þannig að menn vilja skipta um bíla, ekki alltaf vera á sama bílnum, prófa eiithvað nýtt og finna eitthvað sem manni lýkar. Það er dýrt að eiga bíla lengi. Bilanir fara að koma upp og alltaf allskonar mixeri. Auðvitað er fullt af fólki sem hefur gaman af því en það á ekki að vera öfundast þetta útí aðra sem t.d. toyotur og patrola.





    11.12.2002 at 12:23 #465134
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er algjör misskilningur, það er einmitt ÓDÝRAST að eiga sama bílinn lengi. Dýrast er að vera í endalausum skiptum, ég tala nú ekki um fyrir þá sem kaupa nýjan bíl á ,,stuttum" fresti. Í þeim felast öll afföllin og svo framvegis.

    Ég dáist af mönnum sem eiga sama bílinn lengi lengi lengi. Ég vildi óska þess að ég væri eins og þeir. Ég hitti mann sem er búinn að eiga sama 4Runnerinn í 20 ár, breyta og bæta og gera eins og hann vill hafa hann. Þessi bíll er orðinn eins og hann; hann þekkir hverja skrúfu og veit á hverju hann má eiga von. Í þessu felst sjarminn og hin sanna ástríða.





    11.12.2002 at 17:52 #465136
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er aðeins einn konungur.konungur jeppana PAJERO margfaldur sigurverari í parís dakar,





    11.12.2002 at 18:13 #465138
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Er Pajero talinn til jeppa? Getur verið en tæplega í mínum huga er einfaldlega of veikur til mikilla breytinga, ekki satt?





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 1 through 13 (of 13 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.