FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Patrol styrisgangur

by Kári Rafn Þorbergsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Patrol styrisgangur

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson Kári Rafn Þorbergsson 18 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.09.2006 at 21:03 #198618
    Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson
    Kári Rafn Þorbergsson
    Member

    Góðan daginn

    Er að breyta patrolinum mínum úr 38″ í 44″ og var að spá hvernig eru menn að breyta stýrisganginum fá hallan á stýrisstönginni réttan.

    hafa menn sett hrútshorn á hásinguna eða hvað? og ef svo er hvar fæst svoleiðis búnaður

    kveðja Kárinn

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 25.09.2006 at 21:22 #561400
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Með hrútshorni átt þú sennilega við það sem oftast er kallað stýrisarmur, það er sennilega besta leiðin í stöðunni, ásamt því að hækka þverstífufestinguna niðri á hásingu.(man ekki nákvæmlega hvernig er með pláss á þessum bíl, en reglan er að ,,besta" lausn fæst ef stífurnar (togstöng og þverstífa) falla í skuggann ,,önnur af hinni", þegar horft er beint framan á bílinn. Semsagt: sami halli, og sama hæð frá jörðu m.v. miðjar stífur eða svo. Öll frávik frá þessu eru málamiðlanir sem koma til vegna plássleysis og annarra takmarkandi þátta.

    Í Patrol eru reyndar þau fríðindi fyrir hendi að millibilsstöngin er fyrir aftan hásingu þannig að það er einni stöng færra að koma fyrir þar sem plássleysið er mest.

    Eitt skal athuga með þetta; þ.e. þverstífugúmmíin í Pattanum eru frekar stór og mjúk sem veldur gjarna veseni á 38"+. Þetta er lagað með því að saga stífuendana af þverstífunni, sjóða nýja enda á fyrir LandCruiser gúmmí og troða þeim svo í. Þau eru mun stífari og leyfa síður jeppaveiki að gera vart við sig. (Ég sá síðast í dag Patta á 38" sem komst ekki yfir 50km/h fyrir slætti á framhjólunum…)

    …ef það á að gera þessa breytingu almennilega þarf að skræla stífufestingarnar af hásingunni, liðhúsin af, síkka stífufestingar á grind og púsla svo saman upp á nýtt…en fæstir ganga alla leið með þetta og gera í staðinn einhverjar málamiðlanir.

    Gott í bili

    Grímur





    26.09.2006 at 09:38 #561402
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Þú kaupir stýrisarm af Renniverkstæði Ægis. Hann er settur í staðin fyrir arminn á stýrisvélinni. Eiginlega skylda að hafa þessa arma á 44" breyttum pöttum þar sem orginal armurinn er ekki nógu sterkur.

    Svo þarf að síkka niður þverstífuna sem nemur droppinu á togstönginni (svo stangirnar tvær verði samsíða).

    kv
    Rúnar.





    26.09.2006 at 16:30 #561404
    Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson
    Kári Rafn Þorbergsson
    Member
    • Umræður: 114
    • Svör: 480

    ertu þá að tala um stýrisam til að setja á hásinguna eða til að setja á maskínuna





    26.09.2006 at 16:35 #561406
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Ég hef séð patrol breytingu nokkrum sinnum þar sem er
    –
    1. síðari sector armur og síkkaður þverstífuturn
    –
    ásamt
    –
    2. hækkun á liðhúsarmi farþegamegin og hækkun á þverstífufestingu á hásingu.

    -haffi (þetta er allt saman á langtímaplaninu)





    26.09.2006 at 22:26 #561408
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Armurinn fer á maskínuna, og síkkar hann togstöngina nóg fyrir allar helstu dekkjastærðir og venjulegar breytingar. Er allavega nóg fyrir 10-17cm hækkun.

    Á eldri pöttunum er til armur til að setja á liðhús, og er svoleiðis væntanlega einnig til fyrir nýrri bílana. Þeir eru að mínu mati ekki eins sniðugir. Með þeim þarf að hækka þverstífuna, en með Ægis arminum þarf að lækka hana. Lægri þverstífa á að þýða betri hreyfingar í bílnum samkvæmt öllum fræðum.

    Hér er mynd af svona armi:
    [img:2jp97z3g]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/342/4695.jpg[/img:2jp97z3g]
    kv
    Rúnar.





    27.09.2006 at 11:23 #561410
    Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson
    Kári Rafn Þorbergsson
    Member
    • Umræður: 114
    • Svör: 480

    svona armur eins og þú sínir á myndinni er til staðar í bílnum og það er búið að lækka skástífuna jafn mikið en bæði stýristaungin og skástífan halla eitthvað þrátt fyrir það…

    er það þá í lagi að þær halli eitthvað eða borgar sig að sýrisstaungina við festinguna á liðhúinsu líka til að fá þetta sem réttast.





    27.09.2006 at 11:30 #561412
    Profile photo of Óskar Hafþórsson
    Óskar Hafþórsson
    Participant
    • Umræður: 66
    • Svör: 655

    með ef menn eru komnir með stýristjakk

    dugar þá orginal stýrisarmurinn





    27.09.2006 at 11:49 #561414
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Ef þú ert með svona arm þá ertu bara í fínum málum. Það er allt í lagi þó stangirnar halli aðeins. Skiptir voða litlu máli satt best að segja, svo lengi sem báðar halla eins, og hallinn er ekki rugl mikill.

    Stýristjakkur hefur ekkert, (eða í það minnsta lítið) með það að segja hvort orginal armurinn brotnar eður ei. Brotna bæði á bílum með og áns tjakks. Þetta á aðeins við nýrri bílana, þessa með nýrra boddýið.

    kv
    Rúnar.





    27.09.2006 at 20:52 #561416
    Profile photo of Kári Rafn Þorbergsson
    Kári Rafn Þorbergsson
    Member
    • Umræður: 114
    • Svör: 480

    já takk takk





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.