Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Patrol jeppi og bilanir
This topic contains 59 replies, has 1 voice, and was last updated by Bjarni Gunnarsson 14 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
05.12.2002 at 16:42 #191853
Er það rétt sem ég hef heyrt að Patrol jeppar séu liðónýtir og stanslaust á verkstæði. Ónýtar vélar, skiptingar og legubúnaður að framan algerlega ónýtur?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
05.12.2002 at 17:08 #464862
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll
Þessi þráður byrjar alveg eins hinn sem var um 80 Krúserinn
Þér hlýtur að leiðast alveg svakalega….heheheheheh
Steini
05.12.2002 at 18:06 #464864Rétt Steini,auðvitað hundleiðist manni sem á svona bíl eins og Theodór.
05.12.2002 at 18:35 #464866Þetta er alveg rétt hjá þér, þ.e. Patrol eru þeir bílar sem mesta viðhald er á og ekki nóg með allt þetta viðhald því til að bæta gráu ofan á svart eru þessir blessaðir Patrol eigengur svo innilega veruleikafirrtir að það hálfa væri nóg. Sjáið bara hvaða heilbrigðum manni dettur í hug að í það fyrsta að kaupa svona bíl og í öðrulagi að reka hann með öllum þeim auka kostnaði sem honum fylgir. En því miður þá eru það bara heilbrigðir og vel gefnir einstaklingar sem aka um á Toyota sem sjá þetta.
Bestu kveðjur
Benedikt
Akureyri
05.12.2002 at 19:06 #464868Ég hef líka undanfarið heyrt að nýju Landcruiser 90 bílarnir með stóru díselvélinni séu að flengja allar hinar druslurnar og jafnvel gæða bíla eins og aðrar Toyotur.
Hafa menn eitthvað verið að lenda í þess háttar atvikum eða er þetta bara einhver kjaftasaga??
05.12.2002 at 19:12 #464870Tek undir þetta með vélarnar í Patrol, en þekki ekki með skiptingarnar. En legur í framhásingu ??? þarna misstirðu marks. Þú hefðir nú getað betur en þetta….
P.S. Eigum við svo kannski að bera saman framdrif í Toy og Pat?
05.12.2002 at 19:15 #4648729,5 " drif í Toyota veit ekki hvað er í Pattanum, hef aftur á móti heyrt að Pattar á 44" séu með vandamál í legustútum að framan, kannski er þetta tóm vitleysa.
05.12.2002 at 19:32 #464874Það er náttullega alveg frá að vera framleiða bíla eins og PLATROL.
05.12.2002 at 21:02 #464876Hvað eru menn sem skrölta um á fisksaladruslum sem eru á flatjárnum og vita ekki hvað orðið "fjöðrun" þýðir að rífa sig… Lítið ykkur nær og skoðaðu hvurslags drasli þetta er og hvað kostar að gera þetta þannig að menn haldi heilsu fyrir lengri ferðir en Hellisheiði…
Datsun er mátturinn og dýrðin
að eilífu amen.Kveðja Hlynur Datsunmaður
05.12.2002 at 21:43 #464878Það jafnast nú ekkert á við það að hristast um hálendið í góðu fiskikari. Já, og hálendið verður miklu meira virði ef maður þarf nú að leggja smávegis á sig til að komast þangað.
Svona spíralafjöðrun er nú bara fyrir blúndurbossa eins og Hlyn, og er í bílnum bara til að blúndurbossinn renni ekki út af sleipum skinnhúðunum sem þeir tróðu í einhverjum misskilningi yfir sætin.
Reynar er hægt að fá í útlandinu alvöru fisksalabíl af Patrol gerð, á alveg yndislegum flatjárnum allann hringinn. Það sýnir að Datsúninn er nú reyndar ekki alveg dauður enn…
Rúnsi.
05.12.2002 at 22:41 #464880Við sem völdum rétt í upphafi getum notið hverar einustu ójöfnu á hálendinu og sjáum alla fegurðina sem íslensk náttúra hefur að skarta.
Það er annað en þessir Datsun kallar sem ekkert sjá fyrir svörtum kolareyk með Jeppaparta Þórðar í spotta bara svona til öryggis.
Og í gamla Jeppamentinu stendur:
"Í upphafi var Toyota almáttugur skapari alls sem gott er……."
05.12.2002 at 23:05 #464882
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hvernig er það með þessa Toyotu menn/konur, ég veit ekki betur en að einn partasali hér í bæ geti lifað fínu lífi á því að selja varahluti í Toyotu, þessar Toyotur bila svo mikið að hann getur sérhæft sig í þessari gerð.
Ég veit ekki um neinn sem getur gert svona fyrir Patrolbílana hmmmm hvernig svarið þið þessu Toyotu menn/konur.Kv. Dóri á gömlum Datsun
05.12.2002 at 23:05 #464884Eldri patrólinn er með frekar stutt á milli framleganna og mér er sagt að það sé enn styttra í milli þeirra á nýja bílnum sem er þá mjög stutt. Þetta hefur vafalaust áhrif á endingu leganna til hins verra.
Helgi
05.12.2002 at 23:17 #464886auðvita viðurkennir ekki nokkur lifandi maður hvílíkt endemis dr…. þetta er, a.m.k ekki meðan hann situr uppi með þetta.
þó er nú gamla boddýið skömminni skárra en nýja niðursuðudraslið . . . .
Já og 3 lítra vélin . . . . . . ,
"Þessi byltingarkennda háþróaða vél" eins og einn söluskussinn hjá IH kallaði þetta á sínum tíma,
er nú orðin einn besti brandari í sögu datsun á Íslandi. Þú skiptir ekki um olíu á 5 þús. km. fresti,
. . þú skiptir um vél.
05.12.2002 at 23:50 #464888Við Toyotamenn erum eins og hver annar sértrúarsöfnuður, við höldum tryggð við okkar líka.
Málið með datsunpartana er eflaust það að það vill enginn einn maður sitja undir ruglinu í öllum þessu datsuneigendum.
06.12.2002 at 00:21 #464890Ég var nú bara að spekulera, er nokkuð hægt að endurnýta patrola????? Er þar ekki skýringin á hversvegna engin getur lifað á að selja notaða hluti úr svoleiðis bílum? Ég segi ekki meira
06.12.2002 at 08:46 #464892
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Já!
Þið eruð svo fastskrúfaðir í einhver framleiðendatrúarbrögð að manni verður hálfillt að lesa þetta. Ég kenni ykkur um að ég fékk í magann í gær!
En án gríns þá eru þessir "minnbíllogallirhonumskyldirerbetriennþinn" þræðir orðnir hálf þreytandi hérna. Það má ekki lengur koma með saklausustu spurningar um bilanir eða bilanatíðni þá koma einhverjir heittrúaðir talíbanar og byrja á þessu "minn er betri en þinn og bilar aldrei"
Við skegg spámannsins, HÆTTIÐ ÞESSU!
06.12.2002 at 09:40 #464894Ég hef nú ekki nema tvennt að segja um þetta mál.
Ég þekki einn Patrolmann sem keyriri á 37" örmjóum götudekkjum. Hann er að fara út fyrir bæinn um helgina í þjóðvegakeyrslu, og fyrir hana þarf að tjakka upp öll hjól, hrista þau og kíkja á hjólalegur. Frábært, ekki satt?
Og hitt, Okkar ágæti partasali lifir ekki á okkur Toyota eigendum, heldur þeim sem eru að Toyota væða bílana sína.
Emil.
06.12.2002 at 12:30 #464896
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þetta er nú meira bullið í ykkur Toyota mönnum, ég er búin að vera á mínum bíl út um allt og ennþá hefur enginn náð að taka fram úr bílnum hjá mér. Vélin er 2,8 lítrar og togar gríðarlega vel. Lenti í því seinasta vetur að við vorum að keyra upp Geitlandsjökullinn og þar voru Willysar og Hiluxar og nýlegir Landcruiserar allir á stórum dekkjum en ég stakk þessa kalla algerlega af. Eini bíllinn sem náði að hanga í mér var Willys með 350 Chevy en hann gafst þó fljótt upp þar sem færið var svo þungt. Hinir urðu hreinlega eftir og þetta segir væntanlega nóg um gæði Patrol bíla.
06.12.2002 at 13:03 #464898Þetta er nú í fyrsta skipti sem heyri þessi tvö orð tengd svona saman… Ertu viss um að þú hafi ekki gleymt einni neitun þarna einhversstaðar á milli orðanna?
Kveðja
Rúnsi.
06.12.2002 at 13:30 #464900
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Já patrol togar gríðarlega þar sem hann er vel þungur og það eru fáir sem geta togað jafnvel eins og hann. Lenti t.d í því einu sinni að hjálpa föstum Trooper sem er eitthvað um 2 tonn, það var Hilux að reyna að toga hann upp en gat það ekki þó svo að hann væri með 8 cyl vél sem á að toga vel, ég aftur á móti var ekki í vandræðum með að toga hann upp vegna þyngdar bílsins hjá mér. Venjulegur krúshraði hjá mér í þungu færi er ca 90-120 í þungu færi en kannski 80 í algeru púðri. Hinir eru að dóla þetta á 30-40 í sama færi.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.