FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Patrol 94 boost og afgashiti

by Guðni Sveinsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Patrol 94 boost og afgashiti

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Freyr Þórsson Freyr Þórsson 16 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.11.2008 at 19:17 #203198
    Profile photo of Guðni Sveinsson
    Guðni Sveinsson
    Participant

    Sælir félagar nú þarf ég smá upplýsingar hjá ykkur hvað er boostið hátt í orginal 2,8 vélinni og hvað er óhætt að fara hátt. Er búinn að lengja slönguna við túrbínuna og fjarlægja ventilinn framan á soggreininn núna sýnir boostmælirinn 1,4 barr og afgashitinn er undir álagi um 400 gráður. Látið nú ljós ykkar skína. Tek fram að ég er ekki með intercooler og er kominn með 3″ púst með einum opnum kút kveðja trölli_1 mail gudnisv@simnet.is gsm 8925426

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 14.11.2008 at 01:19 #632736
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    tengdi um daginn mæli við slönguna að wastegate ventlinum. Hann blæs orginal rétt undir 10 psi/0,68 bar. Prófaði svo að aftengja ventilinn og fór hann þá í 18 psi/1,22 bar. Það var klárlega of mikið, eymdarlegt væl í túrbínunni og undarlegt að keyra hann (sumpart vegna þess að ég jók ekki olíuna á móti, en einhver hefur áður átt við magnið svo það er meira en orginal).

    Freyr





    14.11.2008 at 12:42 #632738
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Minn gamli var að blása mest 13-14, það var greinilega búið að eiga eitthvað við þetta og auka við olíuna af fyrri eiganda. Þetta virkaði fínt og ég var bara nokkuð sáttur.
    kveðja
    Agnar





    14.11.2008 at 13:07 #632740
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    1.4 bör er mikið, 400 gráður er lítið.
    1.0-1.2 bör væri nær lægi og kannski svona 600 gráður (upp langa brekku í botni). Hitinn fer reyndar mikið eftir því hvort mælirinn sé fyrir framan eða aftan túrbínuna. Munar víst skratti miklu.

    Of mikið loft er ekkert vont, en of mikil olía er vont (öfugt við bensínvélar). Allt-of mikið loft er væntanlega ekkert gott heldur :)

    R.





    14.11.2008 at 21:44 #632742
    Profile photo of Guðni Sveinsson
    Guðni Sveinsson
    Participant
    • Umræður: 217
    • Svör: 686

    Sælir félagar og takk fyrir svörin. Það sem ég er búinn að gera er að setja 30 cm lengri slöngu á westegate membruna og taka þrýstiventilinn úr soggreininni og setja tappa í gatið og annað ekki. Fékk þessa uppskrift frá öðrum og virðist hún vera að virka. Það er 3" púst í bílnum. Engin viðbót á olíu og enginn cooler. Setti í boostmælir og afgashitamælir frá Benna á Akureyri, mæli með þeim, skýrir og flott lýsing í þeim og líka ódýrir. Við álag upp brekku í 3 gír fer boostið í 1,4 barr engin reynsla er enn komin á afgashita hef séð við lítið álag 400 gráður hef samt áhyggjur af því að vera ekki lengur með þrýstilokan í soggreininni hver er hættan haldið þið á að skemma vélina vegna þess kveðja trölli





    15.11.2008 at 12:02 #632744
    Profile photo of Ægir Sævarsson
    Ægir Sævarsson
    Member
    • Umræður: 26
    • Svör: 424

    of mikkið loft hefur engan drepið og lokka vetlinum er bara af hinu góða en það þarf að afteingja pústið í soggreinini

    kveðja





    15.11.2008 at 20:28 #632746
    Profile photo of Guðni Sveinsson
    Guðni Sveinsson
    Participant
    • Umræður: 217
    • Svör: 686

    Sæll hvernig aftengir maður pústið frá sog greininni





    15.11.2008 at 21:15 #632748
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    Of mikið loft hefur víst drepið! Það drap sveifarásinn í gamla cruisernum mínum, þega boostið fór í 1,5bar í einn dag. Reyndar var það á vél sem var orginal án turbo





    15.11.2008 at 22:40 #632750
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ég myndi ekki fjarlægja yfirþrýstiventilinn á soggreininni. Þegar blásturinn fór í 18 psi var hann ekki farinn að opna svo það þarf mikið til. Þetta er sett þarna til að varna því að vélin fari til andskotans vegna yfirþrýstings. Með því að "aftengja pústið frá soggreininni" er hann að tala um EGR búnaðinn (mengunarbúnaður sem hleypir afgasi inn á soggrein til að lækka brunahita). Þeir eru ekki allir með þetta (kemur um ’95 held ég). Það er ekkert nema gott að aftengja þetta dót, það dregur úr afli og fyllir vélina af sóti og drullu.
    .
    Freyr





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.