Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › pajero
This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by AGNAR E JÓNSSON 19 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
18.03.2005 at 23:13 #195702
AnonymousSælir félagar hef heyrt að það séu vandræði með vélar í pajero veit um tvo 44″ bíla sem hafa átt i smá veseni annar átti það til að hita sig illilega og veit ég til að heddið fór í steik á þeim bíl það var 2,8 vél og svo fór víst vélin í hinni 44″pæjunni nýlega (þó að sá bíll hafi ekki einusinni sést á fjöllum nema í þoku og þá bara af öðrum sóð ég meina pjero eigendum) og þurfti víst að skipta um vél í þeim bíl kannski að þessar vélar séu ekkert betri en í patrol, þar sem ég á toyotu sjálfur veit ég að það eru vandræði með 90 cruser vélarnar , einnig vélarnar í 80 crusernum þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að vélarnar í gamla 60 crusernum eru þær einu sem duga en boddíið á gamla rauð er orðið svolítið dapurt af ryði og ekki er hægt að finna góðan 60 cruser í dag þá spyr ég boddý af hvaða bíl á ég að nota í minn næsta jeppa? ( enga klafabíla takk) með fyrirfram þökk finale.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
19.03.2005 at 00:41 #519342
Ég tel að þú hafir verið að grafa eigin gröf með þessum pósti. Reyndar gefur nafnið þitt svolítið til kynna að þú sért að leita eftir því.
M. kveðju og von um að þú verðir skotinn í kaf.
Pattletti
19.03.2005 at 01:36 #519344Hvaða vandræði eru á vélum í 90 crusa?
og hvaða vandræði eru á 24ventla vélinni í 80 crusa?
og það að það þurfi að spipta um stangalegur í eldri vélinni í þ.e. 12 ventla 95 árgerð og eldra á 100þ km fresti telst seint til vandræða myndi ég telja.Kv.
Benni
19.03.2005 at 11:22 #519346Eftir að Patrolmann byrjaði á þessum æsingaskrifum sínum halda margir að þeir geti það líka. Að vera að eyða plássi á spjallrás 4X4 fyrir svona bull undir nafnleynd er náttúralega óþolandi, menn eiga að vera málefnalegir, skrifa undir nafni annars að láta þetta vera og legg ég til að vefstjóri eyði þessari vitleysu. Ég er samt farinn að gruna að hér sé um sama manninn að ræða á fleiri svona pósta en ef rétt er á ný heimasíða að loka á svona vitleysinga.
kv. vals.
19.03.2005 at 12:36 #519348Bíddu bíddu, er allt í lagi að það þurfi að skipta um stangarlegur á 100k fresti, en að hedd í patrol fari á svipuðum tíma, það er bara skandall?
-haffi
19.03.2005 at 12:39 #519350Það er orðið langt síðan ég hef tekið þátt í svon "hver getur pissað lengst keppni" en ég verð að taka þátt í þessari. Menn eru alveg ótrúlega fljótir að gleyma, td því þegar patrolar voru innkallaðir og skipt um vél í þeim. Og annars fyrst ég er byrjaður, þá kom ég einu sinni inn á verkstæði sem þjónustar TOY, þar er pláss fyrir þrjá bíla og þar voru þrír lc 90, það þurfti að skipta um hedd í tveiimur og einn var með bilaðan gírkassa, allt eins til tveggja ára gamlir bílar.
Ég hef átt tvo aldna Pajero, annan árg 83 með 2,3d sem gaf upp öndina í 200þús og ákvað ég að setja 2,5td í staðinn og entist hún bílinn og svo aftur árg 88 með 2,5td sem er kominn í 250þús og er ok. Þurfti að reyndar skipta um hedd fljótlega eftir að vatnskassahosa rifnaði endanna á milli (afstaða hosunnar hafði breyst þegar bíllin var hækkaður á boddýi um 3") Ég er sáttur við endingu Pajero.
Ég ákvað samt af ýmsum ástæðum að skipta um merki.Land-Rover DFNDR er bestur
19.03.2005 at 12:53 #519352sælir
Það virðist vera vel falið leyndarmál (eða afneitun eigendanna) að galli hafi verið í a.m.k. 97 módelinu af LC 90 bílunum en heddin í þeim hafa verið að fara í kringum 130 þús km/7 ár. Þekki þrjá eigendur af 97 bílum sem hafa þurft að fara í hedd skipti (2 í 130 þús km og einn í 107 þús km). Heddin í öllum bílunum fóru síðasta sumar en enginn þeirra er meira breittur en fyrir 33" dekk. Þetta er meira en lítið óeðlilegt að mínu mati og verra en á Patrol (2.8 l).
Einnig hefur eitthvað verið um það að stangarlegur séu að fara í 80 krúser í 100+ þús km og getur það nú varla talist eðlilegt heldur er það?
Bilanafríir bílar eru ekki til þó Patrolinn (a.m.k. með 3.0 l vélinn) virðist vera einstaklega slæmur. Gamla 2.8 virðist þó duga sæmileg að undanskildum einstaka hedd/heddpakningaskiptum. Fer þetta ekki allt saman eftir meðferð eigendanna……………
kv
AB
Patrol, bestur frá öllum hliðum séð nema kannski að ofan oní húdd…..
19.03.2005 at 13:13 #519354Af skrifum ykkar hér að ofan sýnist mér að við ættum bara allir að losa okkur við þessa bíla og hætta þessu. Hvað halda menn eiginlega að bílar séu, ódrepandi. Mér er sama hvað hver segir, BÍLAR BILA. En þvílíkar hrakspár og metingur á milli bílaframleiðenda. Það er ekki spurning að þetta er í beinu framhaldi 6 ára metingsins; "Pabbi minn er miklu sterkari en pabbi þinn." Að menn geti ekki rætt málin án þess að upphefja eigin bíl á kostnað annarrar tegundar er bara aumingjaupphefð (og hana nú). Einnig fer afskaplega í skapið á öllum að bíleigendur geti ekki viðurkennt veikleika bíla sinna. Þetta er auðvitað þeirra eigin og stærsti veikleiki. Það getur ekki verið að þetta sé fullorðið fólk sem þarna kemur fram heldur hljóta þetta að vera einhverjir stríðnispúkar sem hafa ekki hundsvit á bílum. Við látum öll, þar með talið ég, glepjast af þessum heimskulegu athugasemdum, "þessi bíll er betri en hinn".
Almáttugur, þvílíkur fíflaskapur, ég er sammála Vals, eyðið þessu bulli út.Kveðja E.Harðar
19.03.2005 at 14:56 #519356Það kostar 60.000 kall að skipta um stangalegur í 80 crusa og á þeim forsemdum finnst mér það ekkert stórmál.
Hvað kostar nýtt hedd í patta með vinnu á verkstæði…
Og svo með þessar blessuðu pæjur og talandi um vélavandræði í þeim þá finnst mér það harla ósangjarnt að nánast dæma allan pæju flotan út frá einhverjum 2 einstökum tilfellum, heillt yfir veit ég ekki til þess að þar hafi verið nein vandræði nema þá einhver svávægileg annars er ég ekkert sérfróður um pæjur, veit bara að þær drífa ekki baun í bala og fjaðra enn minna enda fjöðrun í þeim mjög óþróuð eins og í öllum öðrum jeppum NEMA TOYOTU.
Kv.
Benni
19.03.2005 at 15:41 #519358Benni, þú byrjaðir nokkuð bara vel en svo mistir þú algjörlega tökin á þessu. Ég vona að þú keyrir betur en skrifin hjá þér í þessum pisli.
kv. vals.
19.03.2005 at 16:03 #519360Æi…mér leiðist eitthvað í vinunni…
Kv.
Benni
19.03.2005 at 16:33 #519362Sæll Nafni,
Ég veit að það er hundfúlt að þurf að hanga í vinnunni á laugardegi – allavega vildi ég frekar vera á fjöllum
En hitt er annað mál að ég sé að ég þarf að fara að renna norður og bjóða þér í bíltúr á alvöru Pajeró, með réttri dekkjastærð, alvöru vél í húddinu og nægt afl, almennilegri fjöðrun og síðast en ekki síst með klafa-, hjóla- og drifbúnað sem þolir álagið
Benni
19.03.2005 at 18:53 #519364
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
eg er nu alveg samala e harðar og vals þetta minnir mig alltof mikið a litlu frændur mina eg helt þessi vefur hefði verið settur upp til að auka samheldni jeppa manni og fa góð ráð þegar menn eru i vandræðum en það er alveg greinilega mikill miskilningur eg veit það bra að eg er buin að prufa margar tegundir af jeppum og allir höfðu þeir sina kosti og galla og allir biluðu þeir en að vera metastast um það hver er bestur það er nu fyrir neðan allar hellur og syna að menn hafa ekki mikið vit fyrir ser eins og einhver gafu maður sagði hæðst glymur i tómri tunnu takktakk
19.03.2005 at 19:33 #519366Nýtt pajero boddý,settu það á cruser grind og stóla úr patrol,og vélina 6 lítra ford.
Þá held ég að þetta verði hinn besti bíll.MMC mátturinn og dýrðin Amen.
21.03.2005 at 09:05 #519368Það er eina vitið að fá nýja yfirbyggingu á gamla LC 60.
Kíktu á [url=http://www.landcruiser-online.de:rbamj7bn]link þetta[/url:rbamj7bn]
Þeir buðu mér þetta hús á 1.000 eur. ÞAð er dálítið síðan þetta var en þeir sérhæfa sig í Landcruiser. Það er hægt að senda þeim fyrirspurn á info@landcruiser-online.de[img:rbamj7bn]http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.php?action=image&imageid=22970&albumid=1219&collectionid=3454&offset=0[/img:rbamj7bn]
Jón Erlendsson
21.03.2005 at 09:18 #519370Myndahlekkurinn virðist ekki virka, en þú getur skoðaða myndir í albúminu mínu undir ýmislegt.
Jón
24.03.2005 at 03:41 #519372Ok, hélt að stangarleguskipti væru miklu dýrari en þetta.
Touché…
-haffi
24.03.2005 at 09:04 #519374Erum við ekki að gleyma okkur hér, þar sem flestir þessir japönsku bílar sem við íslenskir jeppadellukallar erum að breita, eru nátturlega ekki að neinu leiti hannaðir til að enda á 38" og þaðan af stærra, allir þessir bílar eiga það sameiginlegt að vera með mjög háþrýstar vélar með ´hlutfallslega litla kæligetu, og held ég að við verður bara að sætta okkur við það, spurning um að vera vakandi yfir álagi vélarinnar, keyra í einum gír lægra og með olíugjöfina cm, frá gólfinu, og njóta þess að aka frjáls um á tækinu sínu, Sama hvað það heitir svo sem
kv. valur
24.03.2005 at 09:34 #519376Það bila allir bílar, en það eru ekki sömu hlutirnir sem bila í þeim öllum. Í sumum tilfellum er klárlega um hönnunargalla að ræða, t.d. hrútshorn í hælúx, 3 lítra vél í patrol, stangarlegur í TLC 80 eða gírkassar í MMC 87-89. Stundum er líka hlutir sem tengjast breytingum t.d. sektorsarmur í patrol eða dekk sem þola ekki að keyrt sé á þeim úrhleyptum (super swamper, Parnelli Jones). En það er líka hægt að eyðileggja flestar vélar með því leggja á þær meira álag en þær eru hannaðar fyrir, t.d. með tölvukubbum, uppskrúfuðu olíuverki eða háum túrbínuþrýstingi. Nútíma bílvélar þola líka mjög illa að það sjóði á þeim. t.d. vegna skorts á kælivökva.
Mér finst mjög mikilvægt að hafa aðgang að sem bestum upplýsingum um svona bilanir. Það styrkir stöðu okkar gagnvart söluaðilum og er allmennt séð forsenda þess hægt sé að leysa málin á sem bestan hátt.
Eitt af því sem mig langar til að sjá gert á vefsíðu klúbbsins, er að safna saman svona upplýsingum á skipulegan hátt. Skúli formaður ræddi á síðasta landsfundu um einn af þessum þáttum, dekk sem hvellspringa í akstri. Þarna virðist vera um að ræða stærra vandamál en t.d. "fúsk" í breytingum sem sumir virðast hafa miklar áhyggjur af.
-Einar
24.03.2005 at 11:44 #519378ágætur þráður um þessa ágætu pajeró bíla
ég er búin að þvælast talsvert á disel 2,5 93 sjálskiptur
38 tommu breittum ekinn 430 þús km
einu vandamálin eru að skiptingunni verður stundum heitt
og kviknar þá hita ljósið og þá verður að bíða uns það sloknar þetta hljóta að vera góðar skiptingar því aldrei hefur hún verið tekin upp þrátt fyrir mikin akstur.
nú í vetur setti ég rafmagnsviftu fyrir framan vatnskassa
til auka kælingar sem kveikt er á inn í bíl eftir það hefur ekki borið á þessu vandamáli.
kveðja agnar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.