FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Pajero 1998 upplýsingar

by Marteinn Sigurðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Pajero 1998 upplýsingar

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Stefánsson Stefán Stefánsson 16 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 11.11.2008 at 23:45 #203190
    Profile photo of Marteinn Sigurðsson
    Marteinn Sigurðsson
    Participant

    Getur einhver frætt mig um það úr hvaða bíl ég get fengið tregðulás að framan í Pajero 1998 2,8 TDI? Ég hef heyrt að því að menn séu með lása í svona bílum úr öðrum bíltegundum.. Hvaða bíltegund væri það þá!?

    Takk fyrir
    Marteinn R-2444

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 12.11.2008 at 00:02 #632662
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þú ert eflaust að tala um að nota læsingu úr Starion Turbo eða afturdrifnum L-300, það passar ekki í 8" framdrifið í bílnum hjá þér held ég. Vissi til þess að menn gerðu þetta við gömlu bílana og eflaust verið gert við nýrri bílana með 7.25" framdrifinu. ARB RD110 er máliði í 2.8 bílinn.
    Ef ég hef rangt fyrir mér þá veit ég um svona læsingu sem gæti verið til sölu.





    12.11.2008 at 00:03 #632664
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Þú getur fengið lás í þetta hjá Kt á Akureyri, og líklega ARB hjá Bílabúð Benna. Ég setti framlás í Pajeroinn minn frá KT minnir mig
    Þetta gerði alveg ótrúlega mikið fyrir bílinn.
    þeas í þau skipti sem hann lá ekki eins og jarðýta á klöfunum.

    Menn hafa einnig verið að taka afturdrif me tregðulæsingu úr l300 og setja í að framan, en það er bara bull.





    12.11.2008 at 08:24 #632666
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Ég ræð þér alfarið frá því að fá þér tregðulás. Ég keyrði pajero með svoleiðis græju og var ómögulegt að hafa hann í framdrifinu, þar sem tregðan er alltaf á. Alveg sama hvort sem er í hálku, sandi eða örðru undirlagi þá taka framhjólin alltaf völdinn. I rauninni stórhættulegt í hálku.
    Ef þú ætlar að fá þér framlás þá er ARB-lásinn eini lásinn sem ég veit um að fáanlegur er í þessa jeppa. Jeppaþjónustan Breytir er með hann og eftilvill einhverjir aðrir.

    kv. vals.





    12.11.2008 at 21:19 #632668
    Profile photo of Eggert Sigursveinsson
    Eggert Sigursveinsson
    Member
    • Umræður: 7
    • Svör: 38

    er með tregðulæsingu á pæjeronum mínum er ekki sáttur með hana mæli frekar með beinni læsingu





    12.11.2008 at 21:32 #632670
    Profile photo of Marteinn Sigurðsson
    Marteinn Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 267

    Ég veit vel að loftlás er betri kostur, en ódýrari kostur eins og staðan er í dag er tregðulás, þannig að spurningin er, úr hverju kemur þessi tregðulás??

    Marteinn R-2444





    12.11.2008 at 21:36 #632672
    Profile photo of Eggert Sigursveinsson
    Eggert Sigursveinsson
    Member
    • Umræður: 7
    • Svör: 38

    hún kemur úr afturhásingu á L300





    13.11.2008 at 00:04 #632674
    Profile photo of Marteinn Sigurðsson
    Marteinn Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 267

    Einhver sérstök árgerð? Eða er eitthvað sem ég þarf að vita þegar ég fer að leita af L-300? Einhver spes vélarstærð?





    13.11.2008 at 01:12 #632676
    Profile photo of Hafþór Atli Hallmundsson
    Hafþór Atli Hallmundsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 810

    Skrítin hugsun á bakvið þennan "sparnað". Miðað við að þurfa að finna bíl með svona læsingu, kaupa hann og láta ná drifinu úr og setja það í bílinn þinn, og þá miðað við að það sé gert með keyptri vinnu, þá sé ég ekki mikinn sparnað með því. Sérstaklega þegar þú svo sérð ljósið í náinni framtíð og endar svo á því að fá þér loftlæsingu. Ég myndi sjálfur bíða með þetta þangað til veskið gæfi leyfi til og fá mér ARB lásinn frekar. Svo er ég á því að afturdrifið úr L300 passi ekki að framan hjá þér eins og fram hefur komið hér.
    Haffi





    13.11.2008 at 05:52 #632678
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Mismunandi læsingar hafa ólíka kosti og galla. Ég hef mjóg góða reynslu af LSD læsingunni sem kom orginal að aftan í L300. Ég er sannfærður um að slík læsing myndi virka mjög vel að framan í akstri á snjó og í torfærum. Ef bíllinn stendur í öll hjól, þá dugir svona læsing (ef hún er í lagi) yfirleitt til þess að snúa báðum hjólum. Ef eitt hjól er á glæra svelli, eða á lofti, þá má nota bremsurnar til að fá hana til að taka.
    Einn kostur við sjálfvirkar læsingar er að þær valda miklu síður þvingun, sem getur m.a. brotið öxla og liði.
    Annar kostur við sjálvirkar læsingar, þar með talið LSD, er að þær virka alltaf. En þetta er líka stærsti ókosturinn. Við akstur á vegum í hálku, þá vill maður hafa opin mismunadrif, sem gefa sama átak á öll hjól. Að mínu viti er helsti kosturinn við ARB læsinguna, að það er hægt að taka hana af. 😉

    -Einar





    13.11.2008 at 21:18 #632680
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þú getur sparað þér ferðina afþví að þetta passar ekki í bílinn hjá þér. Ef þú værir með 2.5 vélina þá passaði þetta en þá værirðu líka með talsvert minna framdrif. Sú læsing kemur úr afturdrifnum L-300 eða Mitsubishi Starion Turbo. Ef þú vilt reyna að koma 8" hlutfalli á 7.25" læsingu þá veit ég um eina.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.