This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurður Sveinn Jónsson 22 years, 3 months ago.
-
Topic
-
SoS!
Það sem ég er að pæla er að ég var að keyra og gaf svolítið hraustlega í upp brekku, svo þegar ég kom upp brekkuna sló ég af og fór þá vélin allt einu að snúast á miklum snúning. Þegar það gerðist kom mikill hvítur reykur frá vélinni og pústinu. Ég tók lykilinn úr svisnum og þá hélt vélinn áfram að snúast. Ég hljóp út og opnaði húddið og það var ekki fyrr en ég snéri olíubarkanum (bensíngjöfinni) að það drapst á vélinni. Ég tók eftir því að vélinn sogaði lofthosuna saman, þar sem að loft fer inná vélina. Svo prófaði ég að aftengja hana og þá leit út fyrir að vélin gengi eðlilega, fyrir utan reyk frá túrbínu. Þá opnaði ég hosuna framan á túrbínunni og kom þá mikil olía útur henni. Þegar ég stakk puttanum inní túrbínuna þá fann ég að þar var eithvað af skrúfum og dóti sem lá laust.
Ok….. túrbínan ónýt =(ÞARF ÉG AÐ SKOÐA EITHVAÐ ANNAÐ SEM GÆTI HAFA EYÐILAGST Í LEIÐINNI!?!?!?
Það væri mjög gott að einhver sem veit mikið um þetta gæti svarað mér sem fyrst!
Takk fyrir
Bazzi
You must be logged in to reply to this topic.