FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

OME gormar

by Guðmundur Magni Helgason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › OME gormar

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðmundur Magni Helgason Guðmundur Magni Helgason 19 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 22.01.2006 at 16:59 #197129
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant

    OME gormar með 50mm lift í land cruiser 80, þeir sem hafa prófað þessa gorma hvernig eruð þið að fíla þá? þeir eru stífari en er það að há fjöðruninni? eru orginal gormarnir betri?
    Ég er með orginal 80 gorma að aftan hjá mér og var að setja gorma að framan og fékk með þessa lc80 OME með 50mm lift og ég verð að segja það að ég er ekki alveg nógu sáttur, finnst þeir svo stífir. Er búinn að prófa fjöðrunina og hann leggst aldrei saman, kemur aldrei nálægt samsláttapúðanum, ég set inn myndir til að sýna.
    https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=breytingar/4140/27830
    Jeppinn minn er ekkert léttari en lc80.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 22.01.2006 at 17:55 #539868
    Profile photo of Karl Guðnason
    Karl Guðnason
    Member
    • Umræður: 28
    • Svör: 1154

    eru þeir ekki til mismunandi stífir? ég spyr því að ég hef verið að spá í að setja 50mm lift gorma í pattan minn það væri gaman að heyra í snillingunum.
    Kv:kalli góði.
    Ps:ég vona að enginn verði reiður þó ég nefni Patról á þessum Toyotu þræði.





    22.01.2006 at 21:34 #539870
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Allir OME framgormar fyrir 80-cruiser eru 220 ibs/inch Þjár algengustu gerðirnar eru allar eins, bara mis langar (485-525 mm, lengri gormurinn). Eru hinsvegar seldir fyrir mis mikinn þunga. Hefði haldið að þetta ætti að virka vel undir 60’cruiser einnig.

    OME framgormar fyrir Patrol eru 250-320 ibs/inch. Væntanlega stífari en Cruiserinn þar sem þeir eru svo hlægilega stuttir (370-400 mm). Það skrítna er að allir stífleikarnir eru notaðir fyrir allar gerðir af pöttum, gamla sem og nýja body.

    Þeir sem hafa sett Cruiser gormana í pattana hafa verið mjög ánægðir með þá.

    Alveg rétt OME er töluvert stífari en orginal gormar. Þannig verður liftið í þeim til, þar sem gormarnir eru yfirleitt álíka langir og orginalarnir.

    kv
    Rúnar.





    22.01.2006 at 22:28 #539872
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    Þetta sníst kannski um það hjá mér að hafa hann annhvort mjúkann eða stífann, þýðir lítið að hafa hann mjúkan að aftan og stifan framan. Verð ég ekki að hafa sömu fjöðrun aft/fram?
    Þá er spurnigin hvora leiðina maður ætti að fara, skifta út afturgormunum fyrir OME eða öfugt. Hvað mælið þið með?
    Hef ég nógu þungan bíl til að nýta allt fjöðrunaarsviðið á þessum gormum? hann er allavega ekki að leggjast mikið saman, mundi hann leggjast betur saman ef álíka stífur gormur er að aftan..





    23.01.2006 at 10:50 #539874
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    mér sýnist bara að ég,jói og þú verðum að fara í rúnt hérna í nágrenni rvk. ég veit um nokkuð marga staði sem við getum leift þessu að misfjaðra svoldið . . . þá ættiru að sjá muninn og hvað þú vilt gera





    23.01.2006 at 13:26 #539876
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Ome gormar fyrir Cruiser eru fáanlegir fyrir 10, 50 og 70mm lift.
    50 mm lift eru til í tveimur stífleikum og eru gormar sem hafa númerið 851 gerðir fyri létta hleðslu að 50kg en 850 eru fyrir 50-110 kg. Það er ekki nema í fáum tilfellum þar sem er verið að nota sömu gormana fyrir mismunandi hleðslu og hæð og það er ekki þannig með Cruiser gormana.
    Demparar skipta meira máli í sambandi við stífleika og hvernig bíllinn hagar sér. Gott er að fá sér lengri dempara í takt við lengri gorma og stilla samsláttinn út frá því.

    Kveðja

    HG

    A-111





    23.01.2006 at 13:44 #539878
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    OME 850, 851 og 851J eru allir 220 ibs/inch, samkvæmt OME documentation. Sama vírþykkt, sami fjöldi af snúningum. Gefnir upp eins og Halldór segir fyrir mismikla þyngd og lift (ath, aldrei talað um að þeir séu mis stífir…. :)
    863 (low lift high load) eru einnig 220 ibs/inch, en eru með grennrí vír og fleiri vafningum (væntanlega önnur vírtegund einnig).

    Tvær gerðir af dempurum til, N70 og N73, sá síðarnefndi er stífari. Einnig reyndar til N73J, sem er lengd útgáfa af N73 :)

    spúký.

    kv
    Rúnar.





    24.01.2006 at 01:35 #539880
    Profile photo of Davíð Freyr Jónsson
    Davíð Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 66
    • Svör: 522

    veit að það eru sitthvor stífleiki á svona cruserum að framan því vélin er meir vinstra í bílnum, þ.e. gormurinn vinstramegin er stífari, annars myndi bíllinn halla…… hlýtur að vera eins með ome gormana verða að vera réttu megin.

    hef heyrt góðar sögur af ome, en um að gera prufa að sjá.

    Davíð Dekkjakall





    24.01.2006 at 10:48 #539882
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    Hefur enginn 80 cruiser eigandi prófað þessa gorma?
    Ég fór í gær að prófa þetta aðeins betur og mæla, ég keyrði upp ramp og var hann að fjaðra vel að aftan en að frama var hann að leggjast saman um 2cm og í sundur um 5cm!! Hann ætti að geta lagst saman um 14cm samkvæmt dempurunum sem ég fékk með honum og 10cm í sundur….





    24.01.2006 at 10:59 #539884
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Ég hef ekið heilmikið um á 80-curiser með þessum gormum og kunni bara vel við. Svínvirkaði. Fannst hann þó alltaf frekar stífur á malarvegum (sem eru nú líklega frekar demparanir).

    Spáði þó aldrei í það hvað hann misfjaðraði mikið.

    Athugaðu þó að þessi hefðbunda stífuuppsetning að framan leyfir að öllum líkinum ekki alla þá misfjöðrun sem dempararnir gefa. Til þess þarftu four-link eða sambærilega uppsetningu.

    Hversu mikið leggur bíllinn gormana saman við það eitt að standa á þeim. Myndi telja að lámark væru einir 10 cm, án þess þó að vita það.

    Ein pæling, halla stífurnar mikið?

    Annars, er ég með orginal 80-cruiser gorma sem þú getur fengið lánaða í eina kvöldstund ef þú vilt, svona til að prófa.

    kv
    Rúnar.





    24.01.2006 at 11:51 #539886
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    Mig minnir að hann lagiðst saman um einhverja 10-12cm, stífurnar halla nánast ekkert. Ég er alveg til í að fá gormana lánaða eitt kvöld, þú getur sent mér númerið þitt á emailið mitt:)





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.