FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Öflugasta Loftdælan

by Einar Kjartansson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Öflugasta Loftdælan

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 23 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.03.2002 at 16:53 #191411
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant

    Hefur einhver prófað að nota túrbínuna sem er dælir lofti inn á flestar díselvélar nú til dags, til þess að koma lofti í dekkin? Ég hef ekki mælt þrýstinginn hjá mér, en ég held að hann sé um 12 psi, afköstin á 2000 snúningum á mínútu ættu að vera 2500 lítrar +a mínútu. Þar sem eitt 38″ dekk inniheldur innan við 200 lítar af lofti, er þetta nóg af loft til að fara með 4 dekk í c.a. 10 pund í nokkrum sekúndum, ef slöngur eru nógu sverar.

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 26.03.2002 at 08:33 #460016
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Svona í fyrstu virðist þetta ekki vera alvitlaus hugmynd, allavega ef maður tengir túrbínuna við pílulausan ventil.
    Og 12 pund eru nóg til að bjarga sér niður að efstu bensínstöð.
    Maður man líka eftir pumpunum sem voru í gömlu rússajeppunum, þar var bara eitt kerti tekið úr og slöngutengi skrúfað í staðinn.
    En talandi um sverar slöngur, hefur einhver prófað að bora út úrhleypingarventlana? það er bara 2mm. gat á þeim flestum og þar sem þeir eru yfirleitt pílulausir ætti það að vera hægt.





    26.03.2002 at 12:19 #460018
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Hvernig hefur þú hugsað þér að tengja þetta saman? Ertu að spá í að nota túrbínuna eingöngu sem loftdælu? Ef svo er finnst mér þetta frekar dýr dæla. Eða er hugmyndin að blása pústi í dekkin?

    Ég sé ekki í fljótu bragði hvernig þetta er gerlegt á hagkvæman hátt, en gaman væri að heyra þínar hugmyndir.





    26.03.2002 at 12:48 #460020
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Einfaldast væri að setja té "T" á lögnina inn á blæðiportið (waste gate)og lítinn loka þar. Um að gera að prófa allavega hvort þetta virkar! Á venjulegri díselvél og bensínvélum með beinni innspýtingu og spíssum nálægt inntaksventlum þá er maður ekki að blása öðru en hreinu lofti í dekkinn.





    26.03.2002 at 14:19 #460022
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég myndi tengja við lögnina frá túrbínu að soggrein, helst milli millikælis og soggrreinarinnar. Ég hef verið að hugsa um að gera gat á millikælinn, við úttakið og setja einstefnuloka þar og síðan slöngur að dekkjunum, gjarnan með smá kút eitthversstaðar. Ég er með "Big Red" dælu sem ég myndi láta dæla á sama kútinn til að fá loft fyrir læasingu og til að geta sett meira en 12 psi í dekkin. Hjá mér er millikælirinn fyrir framan vatnskassann, það eru langar og sverar slöngur til og frá millikælinum.





    26.03.2002 at 14:21 #460024
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég boraði út úrhleypingaventlana með 6 eða 8 mm bor man ekki hvort, allavega komst borinn inn í ventilinn. Hef ekki lent í neinum vandræðum út af því.

    Kveðja Toppen





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.