Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Óeðlileg sjón í jeppaferð.
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Hallur Norðdahl 15 years ago.
-
CreatorTopic
-
10.02.2010 at 13:29 #209764
Hver spottar bílinn ? 😆
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
10.02.2010 at 13:52 #682486
Já ég held ég hafi fattað þetta…
Það þykir mjög óvenjuleg sjón að sjá Súkkur utan bæjarmarka og ég tala nú ekki um uppá miðju fjalli með snjóföl yfir…þannig það er um að gera að skjalfesta þetta með myndavél til að geta sannað að þetta hafi farið í fjallaferð!! Það gerist ekki á hverjum degi að svona eðalvagnar yfirgefi elliheimilin og skelli sér í lautarferð:D
10.02.2010 at 14:02 #682488Hahah það er rétt 😉
En mér fynnst það alveg magnað hvað Cayenne fer. Hann elti jeppanna allann tímann, festi sig einusinni í djúpu púðri en losaði sig sjálfur upp. Þar sem hann hefur ekki drifgetuna það fer hann samt …á aflinu
10.02.2010 at 17:22 #682490Er þetta ekki bara svona Subaru færi þarna..
10.02.2010 at 19:25 #682492Ég bendi á að í ferðum Litlunefndar sjáum við flestar tegundir og allar stærðir af jeppum og þetta er alls ekki óeðlileg sjón. Og flestir þeirra drífa mun meira en menn trúa að óreyndu. Þess má geta að næsta Litlunefndarferð er 20. febrúar n.k. og hefst skráning í þá ferð á næstu dögum.
Kv. Óli, Litlunefnd
10.02.2010 at 19:41 #682494Jújú mikið rétt Óli. Þetta dót drífur ótrúlegustu hluti eins og undirritaður hefur nú kynnst sjálfur mætavel.
Enda var orðsendingin nú meira í gamni til félagans á súkkunni frekar en hitt.
Vonandi svo bara að Litludeildarferðin komi vel út með góðri mætingu og vonandi eitthvað af snjónum.
Kv. Davíð Þór
10.02.2010 at 19:51 #682496Þessi mynd er greinilega tekin fyrir vestan.
11.02.2010 at 11:25 #682498Hehe nei þarna var sko ekki subaru færi. Það var bara þannig að þegar við vorum allir stopp þá var lítill snjór á staðnum. Þarna fyrir neðan t.d. var sæmileg brekka sem nokkrir voru í vandræðum með.
11.02.2010 at 18:53 #682500hvar er snjór???
12.02.2010 at 21:55 #682502Alltaf klassi… þetta er fyrir ofan þar sem myndin af jeppunum er tekin. Nokkur ár síðan. Það er bara ekki hægt að gera sér grein fyrir hvað þetta er bratt.
http://www.youtube.com/watch?v=xygJJx5f-i4
Og á svipuðum tíma… fór á sama bíl upp að Glámu.
[img:10rwsc58]http://cs-003.123.is/f96c5451-6486-4487-b088-0c6504c9d6f8.jpg[/img:10rwsc58]
13.02.2010 at 00:44 #682504Hvað er þetta? Hyundai ? Í sömu brekkunni og Cayenne komst svona flott upp?
13.02.2010 at 09:34 #682506Færið er náttúrulega afmörgum gerðum, en aðalatriðið er hvað flinkur bílstjóri sem kann á og gjörþekkir bílinn getur gert ótrúlega hluti. Mér sýnist á YouTube myndinni að þarna séu það ekkert síður hæfileikar bílstjórans, sem vega þungt, en færið og bíllinn.
13.02.2010 at 09:43 #682508Neinei þetta er ekki sama brekkan. Þetta var bara fíflagangur hjá mér… athuga hvað ég kæmist hátt upp hlíðina
Já þetta er ég á gamla skólabílnum mínum . Hommablár Hyundai Pony.
14.02.2010 at 23:00 #682510Málið er að Porche Jepparnir eru svakalega góðir í svona en það tímir enginn að nota þá í að jeppast. það er alveg sorglegt að það sé ekkert um svona breitta bíla. ég allavega hef ekki séð þá fyrr.
15.02.2010 at 08:44 #682512Bílinn fer ekki lengra en það sem bílstjórinn ræður við ( svo er til hunda hepni sem verð ekki leikið aftur) Mður heur farið víða á RAV4 um hálindið og jökul innum stóru bílana á blöðru dekkum. Maður fer bara hægar yfir ófærur og skilar sér á endanum.
KV,,,, MHN
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.