Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Ódýrustu Glóðakertin
This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Páll K Kristófersson 13 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
04.05.2011 at 10:33 #218877
Hæ.
Hvar eru ódýrustu glóðakertin í LC90?
kV. Atli E.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.05.2011 at 12:05 #729549
Ég hef nú keypt glóðarkertin fyrir 2.4D bara hjá umboðinu. Endast í ca 10 ár og á góðu verði (allavega það góðu að ég nennti að eyða tíma í að leita annarsstaðar).
Þekki ekki big-block mótorinn en hefði haldið að það væri svipað.kv
Rúnar.
04.05.2011 at 14:37 #729551Eigum við ekki bara að fara í það saman Rúnar að svera þetta upp?
Getum kannski mixað í þetta Trooper-kerti.
Þau eru svo skemmtilega stór og hljóta því að hita heilan helling…Annars er umboðið því miður ekki ódýrast þegar kemur að þessum málum, annars hefði ég örugglega keypt þetta þar.
kv.
Atli E.
04.05.2011 at 15:13 #729553Mig vantar í Pattann hjá mér. Ég er að hugsa um að setja bara sprittkerti í staðin fyrir glóðakerti. Hvar fær maður rokeldspítur á góðu verði í dag ?
Fullt verð hjá IH er 8.683.- pr.stk
04.05.2011 at 16:06 #729555Gott ef það er ekki álíka mikið og ég borgaði í toyota fyrir nýju kertin mín, öll fjögur.
kv
R.
04.05.2011 at 16:24 #729557Það er þá orðið langt síðan.
Verðimiðin á 1stk glóðarkerti í dag er um 9000kr. +/-
Því miður er umboðið ekki ódýrast
Kv. Atli E.
04.05.2011 at 21:05 #729559Velti fyrir mér hvort verið geti að glóðarkerti séu mjög frábrugðin milli vélargerða í japönsku dísilvélunum, þ.e. milli framleiðenda, svo enginn misskilji hvað ég meina. Mig minnir að í bensínmótorum séu flest original kerti frá NGK í japönskum bílum. Það er hinsvegar hægt að fá passleg kerti frá öðrum stórum framleiðendum. Þá spyr maður sig hvort þetta geti verið eitthvað svipað hvað glóðarkertin varðar?
04.05.2011 at 21:40 #729561Það er mun meiri munur á glóðarkertum milli vélargerða,heldur en í svipuðum bensínvélum.Það skýrir kannske að hluta til hátt verð þeirra. NGK, Nippon Denso og
margir fleiri kertaframleiðendur framleiða glóðarkerti.Fyrir nokkrum árum var "Blossi Framtak" með gott verð á glóðarkertum en ég veit ekki hvernig það er í dag.
04.05.2011 at 22:55 #729563það getur verið dýrt að spara veit um nokkur dæmi þar sem að nipparts kerti frá N1 entust bara í einn og hálfan mánuð þá held ég að það sé hagkvæmara kaupa original kertin.
04.05.2011 at 23:18 #729565Svo má oft finna góð verð á orginal hlutum hjá mr Google.
04.05.2011 at 23:29 #729567prófaðu kistufell og velaland
05.05.2011 at 00:49 #729569Ég er búinn að finna í Patrol NGK kerti í englandi sem kosta ca 4.200.- þar. Síðan bætist við flutningur og VSK. Giska á að stikkið losi ca 6.000.- komið til landsins. Ég held að það séu ekki vörugjöld af þessu, án þess að vera viss.
05.05.2011 at 09:04 #729571Þar með er það staðfest, borgaði 13.874 fyrir Glóðarkertin í Toyota þann 15 mars síðasta, eða 3.468 kr per stykki. þau sem úr fóru voru sett í líklega 2002.
Kannski gamallt verð, sem þíðir þá að verðlistinn hjá þeim er ekki í Evrum eins og sumum öðrum umboðum.kv
Rúnar.
05.05.2011 at 09:15 #729573Ha? fékkst þú glóðakerti fyrir 13.000kr?
Á hvaða sér díl ert þú?
Skilst að það séu sömu kerti í LC90 og Hilux.
kv.
05.05.2011 at 20:39 #729575ég keypti öll fjögur í hiluxinn hjá mér um daginn frá bretlandi í gegnum Ebay og þau kostuðu heimkominn með öllum gjöldum 5600 kr
08.05.2011 at 23:18 #729577Hér er gott verð fyrir patrol
NISSAN PATROL 3.0TD INTERSTAR 3.0TD GLOW PLUG S X4
Item condition: New HKT Japan
Quantity:
More than 10 available
£44.90
Approximately EUR 50.83Buy it now Ebay newtechnology2008
09.05.2011 at 00:24 #729579Sælir, ég er búsettir í Noregi og var að skipta um glóðakerti í wv caravellu og keypti þau í Biltema á 99 kr stk sem samkvæmt mbl eru 2070 kr ísl. Man nú ekkert hvaða týpa þetta er, en þeir selja kertin í alla bíla á sama verði og þar sem fleiri þúsund íslendingar eru nú farnir að búa hér þá ætti ekki að vera mikið mál að fá eitthvern til að kippa þessu með sér.
Kv Palli kristó
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.