FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nýtt Íslandskort!

by Pálmi Benediktsson

Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Nýtt Íslandskort!

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Agnar Benónýsson Agnar Benónýsson 16 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.03.2009 at 23:49 #204028
    Profile photo of Pálmi Benediktsson
    Pálmi Benediktsson
    Participant

    Eða réttara sagt ný útgáfa. Fannst þetta bara áhugaverðari titill.
    Mig langar til að benda ykkur á útgáfu Íslandskortsins frá Samsýn / Garmin sem er nýkomin út. Útgáfan heitir v.2009
    Sjá meira hér:
    http://www.garmin.is/product/kort/islandskort.shtml

    Svo langaði mig til þess að spyrja ykkur Ozi snillingana – hvernig setjið þið kortin upp í forritinu?
    Hvernig kort notar maður. Get ég notað Visit kortin og/eða loftmyndir?

    kv. Pálmi

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 13.03.2009 at 23:58 #643488
    Profile photo of Jóhann Davíð Barðarson
    Jóhann Davíð Barðarson
    Member
    • Umræður: 27
    • Svör: 154

    Keypti nýtt Garmin 276C og kort v3.5 fyrir um hálfu ári og finnst full mikið að fara að borga 8.900 fyrir uppfærlsu á því alveg strax.





    16.03.2009 at 09:07 #643490
    Profile photo of Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Keymaster
    • Umræður: 32
    • Svör: 604

    Er einhver búinn að bera nýja kortið saman við útgáfu 3.5? Mér brá þegar ég sá hvað uppfærslan kostar, og er mjög efinn um að þessi uppfærsla sé peninganna virði, en endilega þeir sem hafa skoðað uppfærsluna og eru annarrar skoðunar, látið okkur sem efast vita hvað ykkur finnst um nýju útgáfuna. Síðsta uppfærsla kostaði eitthvað í kringum 3 þ.kr. man ekki nákvæmlega hvað það var, og ég er tilbúinn að borga 3-4 þ.kr. fyrir svona uppfærslur.





    16.03.2009 at 09:57 #643492
    Profile photo of Kristján K. Kolbeinsson
    Kristján K. Kolbeinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 170

    Ástæðan fyrir þessum mikla verðmun á uppfærslum gæti verið sú að R Sigmundsson átti leyfin fyrir gömlu kortunum en eins og menn vita er þeir ekki lengur með umboðið fyrir Garmin.
    Þannig að nýju kort eru líklega eign Garmin á Ísland. Í því gæti munurinn legið annars veit ég ekkert um þetta mál bara svona hugdetta hjá mér :-)
    Annars hlítur að vera eðlileg skýring á þessu verði, ég er nú ekki vanur því að Rikki sé að svína á manni.





    16.03.2009 at 13:01 #643494
    Profile photo of Hafsteinn Sigmarsson
    Hafsteinn Sigmarsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 119

    Sæll Pálmi.

    Þú notar þessi kort ekki með Ozi. Hægt er að nota gömlu Nobeltek kortin með þeim og jafnvel hægt að skanna inn kort til að nota í Ozi.
    Þessi nýju kort eru bara til að nota með Garmin græjunum og svo í nRoute forritinu. Ég væri alveg til í að heyra skýringar á þessum 8900 kr verðmiða.





    16.03.2009 at 13:20 #643496
    Profile photo of Pálmi Benediktsson
    Pálmi Benediktsson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 219

    Sæll Hafsteinn og takk fyrir svarið. Ég sé núna að þetta var ekki nógu skýrt orðað hjá mér…
    Ég átti nefnilega við einmitt það hvernig þið Ozi menn notið skönnuðu kortin í Ozi Explorer. Ég veit að þetta gengur ekki saman enda annað format á gögnunum.
    Mér finnst Mapsource gps kortin ekki alveg nógu skemmtileg og langar að prófa hitt. Þessvegna var ég að velta fyrir mér hvernig maður "kalibrerar" skönnuð kort og ef það er hægt að nota skönnuð kort (jpeg, gif eða annað myndaformat) hlýtur að vera hægt að nota loftmyndir. Eða hvað? Vill einhver deila þessu með okkur?





    16.03.2009 at 13:26 #643498
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Calibrationið er fremur einfalt og er gert innan úr ozi síðast þegar ég gáði.

    Þetta er tiltölulega auðvelt ef þú ert með skannað kort sem er með lengdar og breiddar baugum á sér. Þá beisiklí notarðu punktana sem baugarnir skerast sem calibrationpunkta. Etv. þarf ozi líka að vita vörpunina sem kortið notar.

    Málið flækist með loftmyndir held ég því þú þarft að vera með mælda punkta, nema myndin sé með það innbyggt.

    -haffi





    16.03.2009 at 14:52 #643500
    Profile photo of Guðni Þór Björgvinsson
    Guðni Þór Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 236

    En er hægt að nota kortin frá LMI sem hægt er að skoða í Visit í einhverju öðru forriti. Visit er frekar takmarkað og leiðinlegt forrit að nota nema bara í það að skoða kortin.





    16.03.2009 at 22:21 #643502
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    sælir
    ég er kannski að segja þér eitthvað sem þú veist nú þegar en þú þarft ekki að calibrera sjálfur LMI kortin til að nota þau, þú afritar einfaldlega þau kort sem nú þegar er búið að calibrera inn (skönnuð LMI kort í nokkrum mælikvörðum).
    Allir sem nota Ozi eru með þennan kortapakka og geta látið þig fá. Þetta eru .PNG myndir og .MAP format sem fylgir hverri mynd en Ozi notar það til að lesa skannaða kortið (.PNG).
    kveðja
    AB





    17.03.2009 at 00:19 #643504
    Profile photo of Pálmi Benediktsson
    Pálmi Benediktsson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 219

    Sæll Agnar og takk fyrir upplýsingarnar. Ég vissi að það væri svona pakki til, með calibreruðum kortum, en ég vissi ekki hvar ég gæti nálgast þau eða á hvaða formati þau væru.
    Ég er búinn að vera að dunda mér sjálfur með skönnuð kort og reyna að calibrera þau sjálfur, svo næst er að prófa loftmyndirnar og þarf ég að verða mér úti um innmæld kennileyti til þess.
    Calibreruðu LMI kortin á .map formati eru frekar stór er það ekki? Eru þau of stór fyrir tölvupóst? Ég þekki engan sem er að nota Ozi svo að… einhverjir sjálfboðaliðar?





    17.03.2009 at 00:35 #643506
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    sælir
    Ég á þetta allt saman til, er að nota Ozi. Sendu mér bara línu ef þú vilt fá þetta.

    kveðja
    Agnar
    agnarben@hotmail.com





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.