FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nýliðafræðsla

by Guðmundur Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Nýliðafræðsla

This topic contains 44 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Stefánsson Stefán Stefánsson 19 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.04.2006 at 22:34 #197816
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant

    Hér á bara að skrifa fræðsluorð til nýliða í 4×4

    Boðorð
    1. Ekki fara á hálendi Íslands einbíla

    2. Skilja áfengið eftir heima. Aldrei að vita nema þú þurfir að hreyfa farartækið hvenær sem er sólahringsins. Aldrei skilið hvers vegna Kóarinn situr með bjór í hendi. Gæti komið til þess að hann þyrfti að taka við!!!!

    3. Hafa og læra á GPS tæki

    4. Hálendiskort, það er þýðingarlaust að hafa GPS tæki án korta, jafnvel þó að um kortatæki sé um að ræða.

    5. Áttaviti á líka að vera með í för.

    6. Hafa og læra á VHF stöð eða CB

    7. Hafa NMT síma

    8. Hafa tappasett og læra að nota það

    9. Hafa verkfærasett í bílnum

    10. hafa sjúkrapúða og slökkvitæki

    11. hafa loft í kút dælu eða komast á einhvern veg í loft ef fara á á jökul eða snjó

    12 hafa skóflu og spotta meðferðis

    13. hafa nóg af nesti og jafnvel svefnpokann ef veðurspáin er óljós……

    14. Hafa heilbrigða skynsemi meðferðis

    15. Og gefa upp ferðaáætlun og halda sig við hana

    16. Hafa nægt eldsneyti, alltaf að gera ráð fyrir smá basli og hafa því aukabirgðir.

    17. Þeir sem eru á díselbílum eigi alltaf að hafa auka hráolíusíu í bílnum.

    18 Ísvari í olíu og bensín svo og smá slurkur af öllum olíum, mótorolíu, gírolíu, frostlegi, bremsuvökva, sjálfskiptivökva, sérstaklega ef farið er í lengri ferðir.

    19. Auka viftureimar, maður veit aldrei hvenær maður lendir í púðri sem veður inná vél hjá manni og rífur reimarnar af hjólunum… þá er gott að hafa auka. reyndar eru nýrri bílar oft betur varðir fyrir þessu en eldri.

    20. Ég bendi á pökkunarlista sem er inni á Litludeildarsíðunni og fenginn var frá Freysa,listinn sá er þarfaþing og hvet ég alla til að prenta hann út og hafa til hliðsjónar,og þar á síðunni er ýmislegt fróðlegt annað sem kemur jeppamönnum til góða.

    21. Eins tek ég undir að hafa með kort og áttavita eins lengdarmælir og æfa sig í notkunn á þeim,og geta fært inn lengdar og breiddar tölur þær sem koma fram á gps,það er ekki svo flókið.
    .
    .
    .. Fylgjast með veðurspá.__

    . Gera ferðaáætlun og varaáætlun.__

    . Láta einhvern vita hvert á að fara og hvenær áætlað__

    er að koma til baka, einnig ef breyting verður á

    ferðaáætlun.__

    . Ef slæmt veður er í byggð er það tvöfalt verra á

    hálendi.

    . Ekki ferðast einbíla.

    Undirbúningur bíls

    ¤ Mjög gott er að byrja á því að láta smyrja bílinn.

    ¤ Staðsetningartæki og kort/tölva – Áttaviti.

    ¤ Fjarskiptabúnaður (NMT,VHF,SSB) (GSM virkar ekki).

    ¤ Skófla og dráttartóg.

    ¤ Loftdæla / loftkútur.

    ¤ Skíðagleraugu / sólgleraugu.

    ¤ Vasaljós / ennisljós.

    ¤ Ísvari.

    ¤ Ruslapokar.

    ¤ Helstu verkfæri.

    ¤ Dekkjaviðgerðasett.

    ¤ Vatn.

    ¤ WC pappír.

    Undirbúningur hópsins

    ¤ Drullutjakkur.

    ¤ Dráttarspil.

    ¤ Startkaplar.

    ¤ Mótor-, gír-olíur, frostlögur, ATF olíur.

    ¤ Varadekk, ef því er mögulega við komið.

    Fatnaður í vetrarferðir

    ¤ Kuldagalli / hlífðargalli.

    ¤ Svefnpoki.

    ¤ Flís peysa / lopapeysa.

    ¤ Regnföt.

    ¤ Ullarsokkar.

    ¤ Nærföt- síð.

    ¤ Bómullarbolur.

    ¤ Auka buxur ( ekki nota gallabuxur).

    ¤ Húfa og vettlingar.

    ¤ Stígvél.

    ¤ Gönguskór.

    ¤ Vasahnífur.

    Nestið

    . Borða góðan morgumat.

    . Miða við eina heita máltíð á dag.

    . Borða reglulega og ekki alltaf að maula.

    . Smyrja brauð til dagsins.

    . Eiga súkkulaðistykki.

    . Heitt vatn á brúsa.

    . Drekka kalt vatn.

    Skálar

    . Taka tillit til annarra skálagesta – komin ró kl. 24,00.

    . Ganga snyrtilega um.

    . Ganga frá eftir eldamennsku.

    . Taka allt rusl með sér.

    . Fara vandlega yfir allt þegar húsið er yfirgefið.

    . Skrifa í gestabók.

    . Greiða skálagjöld.

    Ef vandamál koma upp

    . Ef slys verður, hringja þá í 112

    Taka skýrt fram um staðsetningu 112 sér um að

    boða réttu aðilana og getur leiðbeint um fyrstu

    hjálp.

    . Ef menn sjá fram á að þurfa björgun eða ef hætta

    stafar að fólki þá er hringt í 112 og óskað eftir

    aðstoð björgunarsveita.

    Ath. lýsa aðstæðum eins vel og hægt er.

    Hjálparsveit 4×4

    . Ekki útkallssveit / neyðarsveit.

    . Aðallega til að hjálpa ef farartæki hafa verið skilin

    eftir eða ekki liggur á aðstoð.

    . Hlutverk sveitarinnar, skv. lögum félagsins, er að

    vera félagsmönnum innan handar, lendi þeir í vandræðum

    með farartæki sín og þurfi aðstoð.

    Að lokum

    . Í ferðalagi þarf að fylgjast með veðurspá.

    . Það er oft betra að hætta við ferð eða halda til

    baka ef útlit er slæmt.

    . Takið tillit til barna / ferðafélaga með börn.

    .
    .
    Mikilvægi fjöldi Varahlutir

    1 -:::::::- 1 Elsneytissía

    3


    4 12mm boltar ,rær og kónar , liðhús

    2


    6 Felguboltar aftan

    2


    -6 Felguboltar framan

    2


    -6 Felgurær

    3


    6 8mm boltar rær og kónar f. Öxla

    3


    1 Hjöruliðskross

    3


    4 Boltar í hjöruliðsflangs

    3


    2 Spindillegur

    3


    2 tappar í styristjakk

    2


    1 Gamlar hjóllegur m. Pakkdós

    2


    1 Pinionpakkdós

    2


    1 Turbo hosa 90°

    2


    0,3 Turbo hosa bein 30cm

    3


    1 Drifhlutfall 4.88

    3


    1 6Kúluliður með splitti pakkdós ogfóðringu

    1


    10 Hosuklemmur 10mm- 73mm

    1


    Mism. Boltar

    1


    1 Mism. Rær

    1


    1 Mism. Skífur

    1


    10 plastbensli

    2


    1 Mism slöngubútar

    3


    1 Boltalím

    1


    1 Silikon fljótandi pakkning

    1


    1 Einangrunarlímband

    1


    1 Mannræningjateip

    2 —1 Rafmagnskitt(öriggi, tengi,relay og rofar, vír) Verkfæri

    3


    1 toppur 54mm á framhjóllegu

    3


    1 Toppur á afturhjóllegu

    1


    1 Topplyklasett 1/2″ sem inniheldur:

    Toppar :10,11,12,13,14,17,19,21,22,24.30.32

    Skrall,4 og 10cm.framlengingar,hjöruliðog skaft

    1


    1 Topplyklasett 1/4″ sem inniheldur:

    Toppa :3.5.4.4.5.5.5.5.6.7.8.9.10.11,12,13,14,1/4″

    Skrall,4og 15cm.Framlengingar, hjörulið

    1


    1 Síutöng

    2


    1 Járnsög

    2


    5 Járnsagarblöð

    2


    1 10cm meitill

    2


    1 Rörtöng millistærð

    1


    1 Skiftilykill 12″

    2


    1 Lítil vise grip

    1


    1 Stór vise grip

    2


    1 Vatnspíputöng

    2


    1 Bítari

    2


    3 Stjörnuskrúfjárn ph 3 stærðir

    2


    3 Skrúfjárn venjul. 3 stærðir

    1 –12 Fastlyklar: 7,8,9,10,11,12,13,14,17,19,22,24

    1


    1 Hamar 500gram

    1


    1 Felgujárn 40cm
    .
    .
    .
    Olíur og vökvar

    2


    1 Koppafeitistúpa

    1


    1 4liter Mobil 1 motor oil

    2


    1 ATF olía á stýri eða skiftingu

    2


    1 gírolía

    3


    1 bremsuvökvi

    2


    1 Kreistibrúsi f oliu

    1


    0,5 Steinolía eða gas
    .
    .
    .
    Undirbúningur

    1


    1 Laga það sem var í ólagi eftir síðasta túr

    1


    10 Smyrja í koppa

    1


    Ath smurbók smyrja eða fara í þjómn.

    1


    Ath olíu á vél og hæð á vökvum

    2


    Skoða loftsíu

    2


    Ath loftþrysting í dekkjum

    1


    Prófa GPS

    1


    Prófa NMT síma

    1


    Prófa loftdælu

    2


    Lifta bílnum upp og prófa hjóllegur

    1


    1 Athuga sjúkrakassa og slökkvitæki

    1


    Næjanlegt eldsneyti
    .
    .
    .
    Matur og tilheyrandi

    1


    1 Kælikassi

    1


    Sviðasulta

    1


    Huggulegur kvöldmatur t.d skaflasteik m. Öllu

    1


    Brauð

    1


    álegg

    1


    Smjör

    3


    Bjór

    3


    Gos

    3


    Snakk

    1


    1 Neyðarmatur t.d umslög

    1


    2 Bolli

    1


    2 Diskur

    1


    2 Hnífapör

    1


    1 Hitabrúsi

    1


    1 Pottasett

    1


    1 Ruslapokar

    1


    1 Tröllaskeinir
    .
    .
    .
    Fatnaður og svefnbúnaður

    1


    1 Svefnpoki

    1


    1 Einangrunardyna

    1


    1 Jöklasólgleraugu

    1


    1 Skíðagleraugu

    1


    1 Snjóbomsur

    2


    1 Gönguskór

    1


    1 Inniskór

    1


    1 Peningaveskið

    1


    1 Lyklar af skálum, bíl og heima

    1


    1 Letherman fjöltól

    1


    1 Fatapokinn

    1


    4 Ullarsokkar

    1


    2 Ullarnærbolir

    1


    2 Síðar ullarnærbuxur(föðurland)

    1


    2 Nærbuxur

    1


    1 Vatns og vindheld húfa

    1


    1 ullarlambhúsetta

    1


    1 hlýju vetlingarnir

    1


    1 Vinnuvetlingar

    1


    1 Snjósleðasamfestingur

    1


    1 Gamli samfestingur till viðgerða

    1


    1 Flísbuxur

    1


    1 Utanyfirbuxur, goretex

    1


    1 Vindstopper flís

    1


    1 Lopapeisa

    1


    1 Goretexúlpa

    1


    1 Vöðlur

    1


    1 Sundföt

    1


    1 Handklæði

    1


    1 Snyrtituðra

    1


    1 Tannbursti og tannkrem

    1


    1 Showergel

    1


    1 Sunblock
    .
    .
    .
    .
    Annar búnaður

    2


    1 Spil á skúffu

    2


    1 Spilfjarstyring

    2


    1 Blökk og lás

    1


    1 GPS tæki

    3


    1 VHF aukahandstöð

    1


    1 Fartölva eða kort og vegpunktabók

    2


    Myndavél

    1


    1 Olíu eða gasprímus

    1


    1 Eldspítur

    2


    1 Dynex tog

    2


    1 gaslóðbolti

    1


    5 Farangursstrekkjarar

    2


    1 Affelgunartöng

    2


    1 ohm and volt mælir

    1


    1 Skófla

    1


    1 HiLift 60″

    1


    1 Tappasett

    2


    1 bætur f. Stór göt á dekki

    1


    1 Loftmælir 0-20psi

    3


    20 Suðuvírar í vatnsheldu hulstri

    3


    1 Rafsuðugler

    2


    1 Álkall

    2


    1 Startkaplar

    1


    1 Rúðuskafa

    1


    1 Tegjuspotti

    1


    1 Loftslanga

    1


    1 Vasaljós …

    Þessi listi er tekin af http://litladeildin.a47.net/

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 41 through 44 (of 44 total)
← 1 2 3
  • Author
    Replies
  • 24.04.2006 at 16:03 #550382
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Núna eftir þennann vetur er má segja komið fast form á ferðir Litludeildar og má segja að það sé ein 2 daga ferð í sept og svo dagsferðir í hverjum mán nema des og svo ein 2 daga um Páska(hef enga hugmynd um hvað verður um Slúttið)Þetta ferðamunstur virðist vera það sem fólk sækist eftir,og sé ég fyrir mér að næsta vetur mætti byrja með fræðslu í 2 dagaferðinni og svo má stoppa 1-1/2 tíma í dagsferðum og fara yfir grundvallaratriði í jeppamensku,tel ég það vera góðann kost og fólk hefur áhuga á svona fræðslu ekki síst ef lent hefur verið í festum eða affelgunum í ferðinni.
    Það mætti líka alveg eins gera sér ferð 2 daga þar sem farið verður veklega í fræðsluna,allavega sýndi það sig í Slúttferðinni í Þórsmörk,er við kenndum splæs og hnýtingar ásamt því að fólk fékk að tappa í dekk,það var lifandi áhugi á þessu og bara gaman.Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni spurning er hversu langt eigum við að ganga í að ná til fólks,En mín persónulega skoðun er að gera það í ferðum þar er áhugin mestur.
    Kv Klakinn





    24.04.2006 at 19:16 #550384
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Næsta fimmtudag á opnu húsi og vera með spottaspeki,toppun á dekki og kaffi með því.
    :-)
    Annars er olían orðin svo dýr að maður fer ekkert á bílnum og verður bara heima.





    24.04.2006 at 21:18 #550386
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég held að menn séu eitthvað komnir framúr sér núna. Einn verkfærakassi með héðan og þaðan samtíning af dóti hefur dugað mér ágætlega hingað til, fyrir utan þann venjulega búnað sem græjaður fjallajeppi er venjulega með. Miðað við þessa upptalningu mæli ég með bílalifta verði líka sett á listan, eða menn séu bara heima, enda eru þessi ferðalög greinilega alveg stórhættuleg og menn í lífshættu á hverri stund. Fyrr má nú rota en dauðrota.

    Góðar stundir





    24.04.2006 at 23:27 #550388
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Er ekki verið að setja upp lista fyrir litlu deildina ??????

    Mér er spurn hvert á að fara og hvaða heimsmet á að slá?

    Svo finst mér relga 1. vera eins og dregin út úr rassgatinu á kú. Ekki fara á hálendi Íslands einbíla, þetta gera hundruðir túrista á bílaleigubílum á hverju ári og kemur bróðurparturinn af þeim heill til byggða. Ef það er ekki hægt að gera það sem heimamaður á jeppa þá er jafngott að hætta þessu bara.





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 41 through 44 (of 44 total)
← 1 2 3

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.