FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nýliðafræðsla

by Guðmundur Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Nýliðafræðsla

This topic contains 44 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Stefánsson Stefán Stefánsson 19 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.04.2006 at 22:34 #197816
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant

    Hér á bara að skrifa fræðsluorð til nýliða í 4×4

    Boðorð
    1. Ekki fara á hálendi Íslands einbíla

    2. Skilja áfengið eftir heima. Aldrei að vita nema þú þurfir að hreyfa farartækið hvenær sem er sólahringsins. Aldrei skilið hvers vegna Kóarinn situr með bjór í hendi. Gæti komið til þess að hann þyrfti að taka við!!!!

    3. Hafa og læra á GPS tæki

    4. Hálendiskort, það er þýðingarlaust að hafa GPS tæki án korta, jafnvel þó að um kortatæki sé um að ræða.

    5. Áttaviti á líka að vera með í för.

    6. Hafa og læra á VHF stöð eða CB

    7. Hafa NMT síma

    8. Hafa tappasett og læra að nota það

    9. Hafa verkfærasett í bílnum

    10. hafa sjúkrapúða og slökkvitæki

    11. hafa loft í kút dælu eða komast á einhvern veg í loft ef fara á á jökul eða snjó

    12 hafa skóflu og spotta meðferðis

    13. hafa nóg af nesti og jafnvel svefnpokann ef veðurspáin er óljós……

    14. Hafa heilbrigða skynsemi meðferðis

    15. Og gefa upp ferðaáætlun og halda sig við hana

    16. Hafa nægt eldsneyti, alltaf að gera ráð fyrir smá basli og hafa því aukabirgðir.

    17. Þeir sem eru á díselbílum eigi alltaf að hafa auka hráolíusíu í bílnum.

    18 Ísvari í olíu og bensín svo og smá slurkur af öllum olíum, mótorolíu, gírolíu, frostlegi, bremsuvökva, sjálfskiptivökva, sérstaklega ef farið er í lengri ferðir.

    19. Auka viftureimar, maður veit aldrei hvenær maður lendir í púðri sem veður inná vél hjá manni og rífur reimarnar af hjólunum… þá er gott að hafa auka. reyndar eru nýrri bílar oft betur varðir fyrir þessu en eldri.

    20. Ég bendi á pökkunarlista sem er inni á Litludeildarsíðunni og fenginn var frá Freysa,listinn sá er þarfaþing og hvet ég alla til að prenta hann út og hafa til hliðsjónar,og þar á síðunni er ýmislegt fróðlegt annað sem kemur jeppamönnum til góða.

    21. Eins tek ég undir að hafa með kort og áttavita eins lengdarmælir og æfa sig í notkunn á þeim,og geta fært inn lengdar og breiddar tölur þær sem koma fram á gps,það er ekki svo flókið.
    .
    .
    .. Fylgjast með veðurspá.__

    . Gera ferðaáætlun og varaáætlun.__

    . Láta einhvern vita hvert á að fara og hvenær áætlað__

    er að koma til baka, einnig ef breyting verður á

    ferðaáætlun.__

    . Ef slæmt veður er í byggð er það tvöfalt verra á

    hálendi.

    . Ekki ferðast einbíla.

    Undirbúningur bíls

    ¤ Mjög gott er að byrja á því að láta smyrja bílinn.

    ¤ Staðsetningartæki og kort/tölva – Áttaviti.

    ¤ Fjarskiptabúnaður (NMT,VHF,SSB) (GSM virkar ekki).

    ¤ Skófla og dráttartóg.

    ¤ Loftdæla / loftkútur.

    ¤ Skíðagleraugu / sólgleraugu.

    ¤ Vasaljós / ennisljós.

    ¤ Ísvari.

    ¤ Ruslapokar.

    ¤ Helstu verkfæri.

    ¤ Dekkjaviðgerðasett.

    ¤ Vatn.

    ¤ WC pappír.

    Undirbúningur hópsins

    ¤ Drullutjakkur.

    ¤ Dráttarspil.

    ¤ Startkaplar.

    ¤ Mótor-, gír-olíur, frostlögur, ATF olíur.

    ¤ Varadekk, ef því er mögulega við komið.

    Fatnaður í vetrarferðir

    ¤ Kuldagalli / hlífðargalli.

    ¤ Svefnpoki.

    ¤ Flís peysa / lopapeysa.

    ¤ Regnföt.

    ¤ Ullarsokkar.

    ¤ Nærföt- síð.

    ¤ Bómullarbolur.

    ¤ Auka buxur ( ekki nota gallabuxur).

    ¤ Húfa og vettlingar.

    ¤ Stígvél.

    ¤ Gönguskór.

    ¤ Vasahnífur.

    Nestið

    . Borða góðan morgumat.

    . Miða við eina heita máltíð á dag.

    . Borða reglulega og ekki alltaf að maula.

    . Smyrja brauð til dagsins.

    . Eiga súkkulaðistykki.

    . Heitt vatn á brúsa.

    . Drekka kalt vatn.

    Skálar

    . Taka tillit til annarra skálagesta – komin ró kl. 24,00.

    . Ganga snyrtilega um.

    . Ganga frá eftir eldamennsku.

    . Taka allt rusl með sér.

    . Fara vandlega yfir allt þegar húsið er yfirgefið.

    . Skrifa í gestabók.

    . Greiða skálagjöld.

    Ef vandamál koma upp

    . Ef slys verður, hringja þá í 112

    Taka skýrt fram um staðsetningu 112 sér um að

    boða réttu aðilana og getur leiðbeint um fyrstu

    hjálp.

    . Ef menn sjá fram á að þurfa björgun eða ef hætta

    stafar að fólki þá er hringt í 112 og óskað eftir

    aðstoð björgunarsveita.

    Ath. lýsa aðstæðum eins vel og hægt er.

    Hjálparsveit 4×4

    . Ekki útkallssveit / neyðarsveit.

    . Aðallega til að hjálpa ef farartæki hafa verið skilin

    eftir eða ekki liggur á aðstoð.

    . Hlutverk sveitarinnar, skv. lögum félagsins, er að

    vera félagsmönnum innan handar, lendi þeir í vandræðum

    með farartæki sín og þurfi aðstoð.

    Að lokum

    . Í ferðalagi þarf að fylgjast með veðurspá.

    . Það er oft betra að hætta við ferð eða halda til

    baka ef útlit er slæmt.

    . Takið tillit til barna / ferðafélaga með börn.

    .
    .
    Mikilvægi fjöldi Varahlutir

    1 -:::::::- 1 Elsneytissía

    3


    4 12mm boltar ,rær og kónar , liðhús

    2


    6 Felguboltar aftan

    2


    -6 Felguboltar framan

    2


    -6 Felgurær

    3


    6 8mm boltar rær og kónar f. Öxla

    3


    1 Hjöruliðskross

    3


    4 Boltar í hjöruliðsflangs

    3


    2 Spindillegur

    3


    2 tappar í styristjakk

    2


    1 Gamlar hjóllegur m. Pakkdós

    2


    1 Pinionpakkdós

    2


    1 Turbo hosa 90°

    2


    0,3 Turbo hosa bein 30cm

    3


    1 Drifhlutfall 4.88

    3


    1 6Kúluliður með splitti pakkdós ogfóðringu

    1


    10 Hosuklemmur 10mm- 73mm

    1


    Mism. Boltar

    1


    1 Mism. Rær

    1


    1 Mism. Skífur

    1


    10 plastbensli

    2


    1 Mism slöngubútar

    3


    1 Boltalím

    1


    1 Silikon fljótandi pakkning

    1


    1 Einangrunarlímband

    1


    1 Mannræningjateip

    2 —1 Rafmagnskitt(öriggi, tengi,relay og rofar, vír) Verkfæri

    3


    1 toppur 54mm á framhjóllegu

    3


    1 Toppur á afturhjóllegu

    1


    1 Topplyklasett 1/2″ sem inniheldur:

    Toppar :10,11,12,13,14,17,19,21,22,24.30.32

    Skrall,4 og 10cm.framlengingar,hjöruliðog skaft

    1


    1 Topplyklasett 1/4″ sem inniheldur:

    Toppa :3.5.4.4.5.5.5.5.6.7.8.9.10.11,12,13,14,1/4″

    Skrall,4og 15cm.Framlengingar, hjörulið

    1


    1 Síutöng

    2


    1 Járnsög

    2


    5 Járnsagarblöð

    2


    1 10cm meitill

    2


    1 Rörtöng millistærð

    1


    1 Skiftilykill 12″

    2


    1 Lítil vise grip

    1


    1 Stór vise grip

    2


    1 Vatnspíputöng

    2


    1 Bítari

    2


    3 Stjörnuskrúfjárn ph 3 stærðir

    2


    3 Skrúfjárn venjul. 3 stærðir

    1 –12 Fastlyklar: 7,8,9,10,11,12,13,14,17,19,22,24

    1


    1 Hamar 500gram

    1


    1 Felgujárn 40cm
    .
    .
    .
    Olíur og vökvar

    2


    1 Koppafeitistúpa

    1


    1 4liter Mobil 1 motor oil

    2


    1 ATF olía á stýri eða skiftingu

    2


    1 gírolía

    3


    1 bremsuvökvi

    2


    1 Kreistibrúsi f oliu

    1


    0,5 Steinolía eða gas
    .
    .
    .
    Undirbúningur

    1


    1 Laga það sem var í ólagi eftir síðasta túr

    1


    10 Smyrja í koppa

    1


    Ath smurbók smyrja eða fara í þjómn.

    1


    Ath olíu á vél og hæð á vökvum

    2


    Skoða loftsíu

    2


    Ath loftþrysting í dekkjum

    1


    Prófa GPS

    1


    Prófa NMT síma

    1


    Prófa loftdælu

    2


    Lifta bílnum upp og prófa hjóllegur

    1


    1 Athuga sjúkrakassa og slökkvitæki

    1


    Næjanlegt eldsneyti
    .
    .
    .
    Matur og tilheyrandi

    1


    1 Kælikassi

    1


    Sviðasulta

    1


    Huggulegur kvöldmatur t.d skaflasteik m. Öllu

    1


    Brauð

    1


    álegg

    1


    Smjör

    3


    Bjór

    3


    Gos

    3


    Snakk

    1


    1 Neyðarmatur t.d umslög

    1


    2 Bolli

    1


    2 Diskur

    1


    2 Hnífapör

    1


    1 Hitabrúsi

    1


    1 Pottasett

    1


    1 Ruslapokar

    1


    1 Tröllaskeinir
    .
    .
    .
    Fatnaður og svefnbúnaður

    1


    1 Svefnpoki

    1


    1 Einangrunardyna

    1


    1 Jöklasólgleraugu

    1


    1 Skíðagleraugu

    1


    1 Snjóbomsur

    2


    1 Gönguskór

    1


    1 Inniskór

    1


    1 Peningaveskið

    1


    1 Lyklar af skálum, bíl og heima

    1


    1 Letherman fjöltól

    1


    1 Fatapokinn

    1


    4 Ullarsokkar

    1


    2 Ullarnærbolir

    1


    2 Síðar ullarnærbuxur(föðurland)

    1


    2 Nærbuxur

    1


    1 Vatns og vindheld húfa

    1


    1 ullarlambhúsetta

    1


    1 hlýju vetlingarnir

    1


    1 Vinnuvetlingar

    1


    1 Snjósleðasamfestingur

    1


    1 Gamli samfestingur till viðgerða

    1


    1 Flísbuxur

    1


    1 Utanyfirbuxur, goretex

    1


    1 Vindstopper flís

    1


    1 Lopapeisa

    1


    1 Goretexúlpa

    1


    1 Vöðlur

    1


    1 Sundföt

    1


    1 Handklæði

    1


    1 Snyrtituðra

    1


    1 Tannbursti og tannkrem

    1


    1 Showergel

    1


    1 Sunblock
    .
    .
    .
    .
    Annar búnaður

    2


    1 Spil á skúffu

    2


    1 Spilfjarstyring

    2


    1 Blökk og lás

    1


    1 GPS tæki

    3


    1 VHF aukahandstöð

    1


    1 Fartölva eða kort og vegpunktabók

    2


    Myndavél

    1


    1 Olíu eða gasprímus

    1


    1 Eldspítur

    2


    1 Dynex tog

    2


    1 gaslóðbolti

    1


    5 Farangursstrekkjarar

    2


    1 Affelgunartöng

    2


    1 ohm and volt mælir

    1


    1 Skófla

    1


    1 HiLift 60″

    1


    1 Tappasett

    2


    1 bætur f. Stór göt á dekki

    1


    1 Loftmælir 0-20psi

    3


    20 Suðuvírar í vatnsheldu hulstri

    3


    1 Rafsuðugler

    2


    1 Álkall

    2


    1 Startkaplar

    1


    1 Rúðuskafa

    1


    1 Tegjuspotti

    1


    1 Loftslanga

    1


    1 Vasaljós …

    Þessi listi er tekin af http://litladeildin.a47.net/

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 44 total)
1 2 3 →
  • Author
    Replies
  • 21.04.2006 at 23:02 #550302
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    nr 5

    hafa verkfærasett í bílnum

    nr 6

    hafa sjúkrapúða og slökkvitæki

    nr 7

    hafa loft í kút dælu eða komast á einhvern veg í loft ef fara á á jökul eða snjó





    21.04.2006 at 23:13 #550304
    Profile photo of Andri Buchholz
    Andri Buchholz
    Member
    • Umræður: 5
    • Svör: 42

    nr 8
    hafa skóflu og spotta meðferðis

    nr 9
    hafa nóg af nesti og jafnvel svefnpokann ef veðurspáin er óljós……





    22.04.2006 at 00:13 #550306
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    nr.10
    Hafa heilbrigða skynsemi meðferðis
    nr.11
    Og gefa upp ferðaáætlun og halda sig við hana





    22.04.2006 at 00:19 #550308
    Profile photo of Björn Oddsson
    Björn Oddsson
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 279

    nr. 1 Skilja áfengið eftir heima. Aldrei að vita nema þú þurfir að hreyfa farartækið hvenær sem er sólahringsins. Aldrei skilið hvers vegna Kóarinn situr með bjór í hendi. Gæti komið til þess að hann þyrfti að taka við!!!!





    22.04.2006 at 00:34 #550310
    Profile photo of Ingimundur Bjarnason
    Ingimundur Bjarnason
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 110




    22.04.2006 at 00:51 #550312
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    mikið er ég hjartanlega sammála bjornod, áfengi og fjallaferðir eiga aldrei saman, hvort sem menn eru gangandi eða akandi. Og það á líka við um það að drekka á kvöldin og nóttunni, bara merkilegt að það hafi ekki orðið fleiri slys út af drykkju á fjöllum.





    22.04.2006 at 06:21 #550314
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Fer aldrei saman hvort sem er verið á fjöllum eða láglendi.
    En hóflega drukkið vín gleður mansins hjarta og geð og tek ég ekki undir að banna eigi það í ferðum ef menn vilja hafa það með.
    Klakinn





    22.04.2006 at 08:04 #550316
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Það vantar inn í númer 2
    KORT
    það er þýðingarlaust að hafa GPS tæki á korta, jafnvel þó að um kortatæki sé um að ræða.
    Äattaviti á líka að vera með í för.





    22.04.2006 at 08:18 #550318
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    12. Hafa nægt eldsneyti, alltaf að gera ráð fyrir smá basli og hafa því aukabirgðir.

    13. og ég er þeirrar skoðunar að þeir sem eru á díselbílum eigi alltaf að hafa auka hráolíusíu í bílnum.

    14. Ísvari í olíu og bensín svo og smá slurkur af öllum olíum, mótorolíu, gírolíu, frostlegi, bremsuvökva, sjálfskiptivökva, sérstaklega ef farið er í lengri ferðir.

    15. Ég hef líka alltaf auka viftureimar, maður veit aldrei hvenær maður lendir í púðri sem veður inná vél hjá manni og rífur reimarnar af hjólunum… þá er gott að hafa auka. reyndar eru nýrri bílar oft betur varðir fyrir þessu en eldri.

    Kv. Axel Sig





    22.04.2006 at 08:31 #550320
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Ég bendi á pökkunarlista sem er inni á Litludeildarsíðunni og fenginn var frá Freysa,listinn sá er þarfaþing og hvet ég alla til að prenta hann út og hafa til hliðsjónar,og þar á síðunni er ýmislegt fróðlegt annað sem kemur jeppamönnum til góða.
    Eins tek ég undir að hafa með kort og áttavita eins lengdarmælir og æfa sig í notkunn á þeim,og geta fært inn lengdar og breiddar tölur þær sem koma fram á gps,það er ekki svo flókið.
    Kv Klakinn





    22.04.2006 at 09:11 #550322
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    =====





    22.04.2006 at 09:21 #550324
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Þurftir þú nú endilega að vakna við glamrið í lyklaborðinu mínu.

    Við þurfum að fara og innheimta ofgoldin kamargjöld hjá Bílasalanum og Úlfinum,en þeir munu sitja og laxera í Siggubúð sem mun vera staðsett í Breiðholti.

    Klakinn





    22.04.2006 at 09:22 #550326
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    .





    22.04.2006 at 09:23 #550328
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Þurftir þú nú endilega að vakna við glamrið í lyklaborðinu mínu





    22.04.2006 at 09:24 #550330
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    .





    22.04.2006 at 09:33 #550332
    Profile photo of Magnús Sigurðsson
    Magnús Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 430

    það er eitt sem mér finnst þurfa, að men fari í galan í uppaf ferðar og vera vel klættir. Ef eithvað skeður, velta eða eithvað, erfit að koma manni í föðulandið klemdur inn í bíl.
    Kveðja Magnús.





    22.04.2006 at 09:44 #550334
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Já kallinn minn





    22.04.2006 at 09:49 #550336
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælir félagar

    Vinsamlegast þurkið út texta sem ekki tilheyrir markmiði þessar spjallaþráðar:

    Hér á bara að skrifa fræðsluorð til nýliða í 4×4





    22.04.2006 at 10:12 #550338
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Hjá þeim í fjallasport er hægt að nálgast tékklista sem gæti líka verið gott að hafa við höndina við undirbúning ferðar.





    22.04.2006 at 10:30 #550340
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    [url=http://www.f4x4.is/new/files/archive/ofkaeling.pdf:2596t1or][b:2596t1or]Hér[/b:2596t1or][/url:2596t1or]
    Prentið út í lit og setjið í plast,hafa skal þennan lista í bílnum.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 44 total)
1 2 3 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.