FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nýliðaferðir – Fréttir

by Benedikt Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Nýliðaferðir – Fréttir

This topic contains 79 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir Helena Sigurbergsdóttir 18 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 24.11.2006 at 16:45 #199039
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant

    Jæja nú eru Lúther og Gundur lagðir af stað með átta bíla. Ekki hefst nú ferðin vel því þeir byrjuðu á að týna einum strax í Reykjavík en sá kemst væntanlega með seinni hópnum.

    Þeir voru komnir austur yfir Hellisheiði og eitthvað var nú sem gleymdist – en ég mátti alls ekki segja frá því…. En velviljaðir menn á Selfossi ætluðu að redda málunum.

    Þannig að ferðin fer af stað eins við var að búast þegar Trúður er í fararstjórn….

    Hvernig verður seinni hópurinn þar sem Báðir fararstjórar eru Trúðar…. Já og þannig er það líka í Litludeildinni…. Eru þessir trúðar allstaðar :-)

    Benni

    P.S.

    Er farinn út að gera bílinn kláran í björgunarleiðangurinn

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 79 total)
← 1 2 3 4 →
  • Author
    Replies
  • 26.11.2006 at 12:32 #569238
    Profile photo of Alma Ágústsdóttir
    Alma Ágústsdóttir
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 91

    Það voru að berast fréttir af hópi 1 sem fór Kerlingarfjöllin. Bjargvætturinn úr Norðri ™ hringdi og sagði að þeir væru lentir í Kerlingarfjöllum eftir flugakstur sem tók einungis 1 klst og 10 mín. Þetta eru 6 bílar og ætlar hópurinn að leggja á Langjökul og setja stefnuna á Borgarfjörðinn. Veðrið mun vera eins og best verður á kosið og góður andi í hópnum.

    Húsfreyjan undir Hlíðarfjalli





    26.11.2006 at 12:33 #569240
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Tryggvi…
    –
    "Touché"
    –
    kv. Stef. ;->
    gagnslaus milliliður





    26.11.2006 at 12:37 #569242
    Profile photo of Hrönn Sigurðardóttir
    Hrönn Sigurðardóttir
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 285

    Eigum við að trúa því að Sigurður Luther hafi ekki gert neitt af sér heila helgi á fjöllum ????

    Kveðja Sæmi og Hrönn





    26.11.2006 at 15:05 #569244
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Bjarki var búinn að gata annað dekk… var því hitt dekkið sem hann var búinn að gata tekið og er nú með haug af "hundaskít" /töppum í því og setti það aftur undir. Snjór mun vera af skornum skammti þarna.
    Pattinn sem Frikki er á er hugsanlega með ónýta heddpakkningu… alla vega blæs hann lofti og má ekki hita sig en keyrir samt fyrir eigin vélarafli.
    Ýtan hans þorgeirs er eins og gelgja… veit ekki hvort hann á að vera kyrr eða fara með hópnum og gengur ekki á öllum. Hjálparsveitin er því bæði í hlutverki þess að draga og vera dregin…(Gundur að draga Þorgeir) ég sagði það áður og segi aftur "Hjálpa-sveit 4×4"
    Alla vega þá munu þau vera komin niður að Kvíslárveituvegi.
    Þau mættu Einari Sól og félögum sem að ætluðu að renna upp í Setur.
    kv. Stef.





    26.11.2006 at 15:05 #569246
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    andsk….





    26.11.2006 at 17:04 #569248
    Profile photo of Alma Ágústsdóttir
    Alma Ágústsdóttir
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 91

    Hópur 1 hefur snúið af jökli sökum erfiðrar færðar á jökli og sprungna sem þeir óku fram á. Bjargvætturinn á Snæfríði sinni mun taka stefnuna norður í fjallaloftið eftir Kjalvegi og hinir í öfuga átt eftir sama vegi.





    26.11.2006 at 17:11 #569250
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Og hvað er búið að skýra gandinn sem stendur upp úr Snæfríði?





    26.11.2006 at 20:57 #569252
    Profile photo of Alma Ágústsdóttir
    Alma Ágústsdóttir
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 91

    Ja, hafa ekki allar drottningar kórónu??? Kannski er þetta bara veldissprotinn hennar, hennar er mátturinn og dýrðin… nú verður bóndinn foj, sumir eru nefnilega ekki alltof hrifnir af því að aðrir hafi "kvengert" LandCruiserinn hans.





    26.11.2006 at 22:19 #569254
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Við mæðgur erum skriðnar í hús, þreyttar en ánægðar með helgina. Þvílíkt stuð. Við skildum hálfúrbræddan Patrol eftir í Hveragerði. Pjattrollan hjá Þorgeiri og Lellu fékk "bland" í Hrauneyjum og við komumst að því að ekki þýðir að bjóða svona rollum hvað sem er að drekka, það er ekki það sama koníak og koníak sko. Hann er allavega í þokkalegum gír eftir sjússinn. Við skiluðum kóara númer tvö heim til sín og hef ég trú á að hann sé sofnaður værum blundi núna. Aumingja Mikki refur er með sár á annarri rasskinninni en nú þarf að hafa hraðar hendur og finna doktor fyrir það. Langar að heyra í eða fá póst frá manninum sem ætlaði að gefa mér upplýsingar um plast doktorinn. Þökkum frábæra ferð.





    26.11.2006 at 22:43 #569256
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Áhöfnin á Xstream þakkar fyrir flotta helgi.
    Vonum að nýliðarnir hafi haft gang og gaman af og að sófariddararnir hafi getað skemmt sér eitthvað á okkar kostanað :-)
    Búin að henda inn nokkrum myndum.
    Sjáumst á fjöllum !
    Kveðja Lella, Þorgeir og börn





    26.11.2006 at 23:14 #569258
    Profile photo of Frank Höybye Christensen
    Frank Höybye Christensen
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 112

    Takk innilega fyrir góða og skemmtilega ferð, þetta var bara gaman enda frábær hópur þarna á ferð :-)
    Kveðja Frank og Ásrún





    27.11.2006 at 09:29 #569260
    Profile photo of Jóhann Þröstur Þórisson
    Jóhann Þröstur Þórisson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 579

    Við feðgarnir þökkm fyrir frábæra helgi og frábærum hóp. Við skemmtum okkur mjög vel og var það ánæjulegt að xstream patta líkaði sopin sem við skildum eftir í hrauneyjum.
    Kv Jóhann og Þórir á Pajero.





    27.11.2006 at 09:40 #569262
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Þetta var hin fínasta helgi. Toppurinn í ferðinni var að sjálfsögðu að fara Kerlingafjöllin. Þeas léttu leiðina sem var erfiðari leiðin.
    Þetta gekk bara þrælvel allt saman veðrið frábært.
    Smá svekkelsi var nú í sumum sem ekki fóru kerlingafjöllin
    Hver vill ekki smá vesen ;)..
    En við skiluðum öllum í bæin, þrátt fyrir miklar hrakspár hjá merkum mönnum. En Trúðar og hjálparsveit skila sínum á endanum…. Þó þeir komi á 3 hjólum
    með patrol í spotta.
    Jamm bullandi hamingja þar til í næstu ferð…;)





    27.11.2006 at 10:09 #569264
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Ágætu ferðalagar

    Takk fyrir góða helgi á fjöllum, veðrið var meiriháttar og góður hópur.

    Besta var að hafa pattana í togi allan tímann.

    Tog kveðjur gundur





    27.11.2006 at 11:33 #569266
    Profile photo of Gunnar Smári Eggertsson
    Gunnar Smári Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 26
    • Svör: 222

    ég þakka líka fyrir almennilega ferð og vona ég í framtíðinni að ég fæ að fara með ef það er pláss 😉
    Kveðja Gunnar Smári





    27.11.2006 at 12:21 #569268
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Ég bætti myndatökumetið mitt og tók 129 myndir um helgina. Fyrra met var 122 myndir. Tók saman nokkuð úrval og setti í myndasafnið mitt ásamt ferðasögu.

    [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/4955:3w44x3rj][b:3w44x3rj]Hjálparsveitaferð – myndir[/b:3w44x3rj][/url:3w44x3rj]





    27.11.2006 at 14:50 #569270
    Profile photo of Ármann Þór Guðmundsson
    Ármann Þór Guðmundsson
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 102

    mussó á fjöll og kona við stýrið það kann ekki góðri lukku að stýra (hvað þá ef bílstjórinn er þunglindur að eðlisfari :) og veit ekki munin á afturábak og áfram upp og niður Barbabrella hvað ? Takk annars fyrir góða ferð og mæli með léttleika og grín námskeiði fyrir suma sem kunna ekki að taka gríni og skemmta sér og öðrum eini brandarinn sem maður heyrir eru gamlir patrol brandarar ? legg til að það fólk fái sér bíl til að byrja með ekki er ég þá að tala um fólksbíl sem einhver afglapinn hefur blásið of miklu lofti í dekkin heldur JEPPA kveð að sinni enn og aftur takk fyrir góða ferð ps chance engine ljósið kom bara einu sinni í 30 min og lét sig svo hverfa talandi um góðan túr





    27.11.2006 at 15:00 #569272
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    ertu sár?





    27.11.2006 at 15:04 #569274
    Profile photo of Ármann Þór Guðmundsson
    Ármann Þór Guðmundsson
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 102

    neibb en þú ?





    27.11.2006 at 15:07 #569276
    Profile photo of Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Barbara Ósk Ólafsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 775

    Var að skemmta mér við tilhugsunina um að þú hefðir orðið fúll :-)

    En hafi það einhverntímann verið í boði hjá mér að breyta textum við myndir þá verður það ekki þetta skiptið, það er á hreinu að sárir sem ósárir sitja uppi með þessa texta. :-)





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 79 total)
← 1 2 3 4 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.