This topic contains 106 replies, has 1 voice, and was last updated by Einar Kjartansson 20 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
04.02.2004 at 08:19 #193660
Það stefnir í að það verði skipað í nýliðaferðina í setrið. Eftir fyrsta sólarhringinn voru komnar 17 skráningar á póstlistann. Ég hefði þó gjarnan viljað sjá fleiri bíla á minni en 38″ dekkjum ;-). Vonandi láta menn Emil ekki hræða sig allt of mikið.
Samvæmt þessari mynd er ekki dökkan díl að sjá í nágrenni Setursins.-Einar
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
10.02.2004 at 23:45 #487556
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Gott basl er alltaf ágætt. Hins vegar er snjó búið að taka hratt upp að því er virðist upp í töluverða hæð. Þar að auki var hugmyndin um að fara um frekar viðkvæmt land með allt að 26 bíla hóp og ég held það hefði ekki verið okkur til sóma að standa fyrir því. Eftir þessar leysingar held ég að við hefðum þurft að hafa a.m.k. sólarhrings frost fyrir brottför svo eitthvað vit væri í þessu og þó veðurspá geti breyst er ekkert í kortunum sem gefur von um að eitthvað vit hefði verið í þessu.
Kv – Skúli
10.02.2004 at 23:45 #492119

10.02.2004 at 23:52 #487558Ég er á 8 cyl bensínjeppa á 38" dekkjum og með læsingu. Bíllinn slefar 2000 2100 kg full lestaður með öllum farangri og fólki. Ég er oftast að taka ca 17 ltr á Geysi síðan ekið uppeftir og síðan laugardagurinn, fer með ca 60-80 ltr í þetta. Fer svoldið eftir færi og leikara skap. Lítill leikaraskapur síðast enda tankaði ég innan við 50 ltr eftir að hafa keyrt frá Geysi og síðan rúntað aðeins á laugardeginum. En síðan duga oftast 40-50 ltr í bæinn. Sæmilegur helgar rúntur er ca 100-150 ltr. Ég tek 100 ltr í tanka en er síðan með 120 ltr vara sem eru sjaldan notaðir. Til gaman má geta að ég fór á Skjaldbreið á þarsíðustu helgi, tók 56 ltr eftir þann rúnt. Ekkert ósáttur við það
10.02.2004 at 23:52 #492122Ég er á 8 cyl bensínjeppa á 38" dekkjum og með læsingu. Bíllinn slefar 2000 2100 kg full lestaður með öllum farangri og fólki. Ég er oftast að taka ca 17 ltr á Geysi síðan ekið uppeftir og síðan laugardagurinn, fer með ca 60-80 ltr í þetta. Fer svoldið eftir færi og leikara skap. Lítill leikaraskapur síðast enda tankaði ég innan við 50 ltr eftir að hafa keyrt frá Geysi og síðan rúntað aðeins á laugardeginum. En síðan duga oftast 40-50 ltr í bæinn. Sæmilegur helgar rúntur er ca 100-150 ltr. Ég tek 100 ltr í tanka en er síðan með 120 ltr vara sem eru sjaldan notaðir. Til gaman má geta að ég fór á Skjaldbreið á þarsíðustu helgi, tók 56 ltr eftir þann rúnt. Ekkert ósáttur við það
10.02.2004 at 23:57 #487560Sælir.
Þetta er alveg rétt Skúli. Ég var nú bara svona meira að grínast (ótrúlegt en satt :).
Annars var "Krapi 2000" einhver magnaðasta ferð sem ég hef farið og af henni hefið ég alls ekki viljað missa. Vandamál margra í þeim túr virtist vera sú augljósa hugsanavilla að það væri aðeins ein leið fær: förin eftir síðasta bíl. Í þeirri ferð voru klárlega margir að skemma bílana sína með því að koma 80. bíll í krapapittina sem voru þá orðnir mjög grafnir, í stað þess að aka á snjónum við hliðina eins og 1. bíll gerði…
Annars styð ég heilshugar ýmsa af þeim kostum sem eik nefndi varðandi mögulega heimferð úr Setrinu. Ég held að margir eigi þar ýmislegt óekið…
Ferðakveðja,
BÞV
10.02.2004 at 23:57 #492125Sælir.

11.02.2004 at 00:02 #487562ég gleymdi líka að taka undir með Hlyni. Mér finnst það býsna langsótt að láta selja sér aðgang að snjóakstri á Hellisheiðinni…
Í mínum huga hóa menn sér einfaldlega saman annað hvort á netinu eða á fundum. Fimmtudagsfundirnir eru kjörinn vetvangur til að hitta aðra jeppamenn og skipuleggja ferðir. In the end snýst þetta allt um mannleg samskipti – maður er manns gaman og það allt. Ef þú nennir ekki að leggja rækt við slíkt, þá er kannski bara leiðin að draga upp þúsundkall og láta selja sér… allt spurning um áherslur í lífinu.
Ferðakveðja,
BÞV
11.02.2004 at 00:02 #492128ég gleymdi líka að taka undir með Hlyni. Mér finnst það býsna langsótt að láta selja sér aðgang að snjóakstri á Hellisheiðinni…
Í mínum huga hóa menn sér einfaldlega saman annað hvort á netinu eða á fundum. Fimmtudagsfundirnir eru kjörinn vetvangur til að hitta aðra jeppamenn og skipuleggja ferðir. In the end snýst þetta allt um mannleg samskipti – maður er manns gaman og það allt. Ef þú nennir ekki að leggja rækt við slíkt, þá er kannski bara leiðin að draga upp þúsundkall og láta selja sér… allt spurning um áherslur í lífinu.
Ferðakveðja,
BÞV
11.02.2004 at 01:19 #487564Ég tek undir að menn ættu að kalla sig saman á vefnum,en mér finnst þessi þúsund kall ekki skipta máli hvort sem það er á hellisheiði eða hvort að maður eyði honum í aðra vitleysu.
Svo ég taki undir með guðmundi,þá var það ákveðið 2 febrúar á skjaldbreið að þeir sem hefðu áhuga á að koma í þessa ferð á hellisheiði yrðu látnir vita hvenær yrði farið og að það yrði hóað í þá hér á þessum vef.
Þar sem við erum í þessum klúbb f4x4 erum við akkúrat að gera það sem mælst er fyrir að hóa okkur saman hér á vefnum,en ekki beint að auglýsa fyrir útivist frekar en að menn séu að auglýsa fjallasport eða aukaraf´og önnur fyrirtæki hér í pistlum sínum.
Dæmi það hver fyrir sig!!!
kveðja Jóhannes
R-3257
11.02.2004 at 01:19 #492131Ég tek undir að menn ættu að kalla sig saman á vefnum,en mér finnst þessi þúsund kall ekki skipta máli hvort sem það er á hellisheiði eða hvort að maður eyði honum í aðra vitleysu.
Svo ég taki undir með guðmundi,þá var það ákveðið 2 febrúar á skjaldbreið að þeir sem hefðu áhuga á að koma í þessa ferð á hellisheiði yrðu látnir vita hvenær yrði farið og að það yrði hóað í þá hér á þessum vef.
Þar sem við erum í þessum klúbb f4x4 erum við akkúrat að gera það sem mælst er fyrir að hóa okkur saman hér á vefnum,en ekki beint að auglýsa fyrir útivist frekar en að menn séu að auglýsa fjallasport eða aukaraf´og önnur fyrirtæki hér í pistlum sínum.
Dæmi það hver fyrir sig!!!
kveðja Jóhannes
R-3257
11.02.2004 at 10:29 #492135Góð Helgi er frá 110 lítrum upp í 160 lítra.
Reykjavík – Geysir – (smá upp upp á kjöl 5 tímar) – Hrauneyjar – Sóleyjarhöfði – Setur – Kerlingarfjöll – Geysir – Rvík
uþb 130 lítrar
Frá Setrinu í geysi var druslan staðin eins og hún dróg.
bíllinn stóð í gangi í 6 tíma við að reyna að bjarga Lúther.Fyllti jeppann í Hrauneyjum og setti síðan lögg á hann hjá geysi.
Kveðja Fastur
ps. Ég hef aldrei séð jafn þungann bensín fót og hjá honum föður mínum.
11.02.2004 at 10:29 #487566Góð Helgi er frá 110 lítrum upp í 160 lítra.
Reykjavík – Geysir – (smá upp upp á kjöl 5 tímar) – Hrauneyjar – Sóleyjarhöfði – Setur – Kerlingarfjöll – Geysir – Rvík
uþb 130 lítrar
Frá Setrinu í geysi var druslan staðin eins og hún dróg.
bíllinn stóð í gangi í 6 tíma við að reyna að bjarga Lúther.Fyllti jeppann í Hrauneyjum og setti síðan lögg á hann hjá geysi.
Kveðja Fastur
ps. Ég hef aldrei séð jafn þungann bensín fót og hjá honum föður mínum.
13.02.2004 at 20:27 #49213914. febrúar. Jepparæktin – Fellur niður
Því miður þarf að fella þessa ferð niður sökum snjóleysis!
kveðja Guðmundur
13.02.2004 at 20:27 #48756814. febrúar. Jepparæktin – Fellur niður
Því miður þarf að fella þessa ferð niður sökum snjóleysis!
kveðja Guðmundur
27.02.2004 at 00:24 #492143[url=http://www.klaki.net/~um44/setur04/gps.html:3pl6xq75]GPS upplýsingar[/url:3pl6xq75] eru komnar á vefinn. Það lítur út fyrir úrkomu og hlýindi í byrjun næstu viku, vonandi lægir og kólnar þegar líður að helginni. Ætlunin er að þátttakendur greiði þátttökugjaldið n.k. þriðjudag (2/3), þá kemur í ljós hversu margir af þeim sem eru á biðlista komast með.
-Einar
27.02.2004 at 00:24 #487570[url=http://www.klaki.net/~um44/setur04/gps.html:3pl6xq75]GPS upplýsingar[/url:3pl6xq75] eru komnar á vefinn. Það lítur út fyrir úrkomu og hlýindi í byrjun næstu viku, vonandi lægir og kólnar þegar líður að helginni. Ætlunin er að þátttakendur greiði þátttökugjaldið n.k. þriðjudag (2/3), þá kemur í ljós hversu margir af þeim sem eru á biðlista komast með.
-Einar
27.02.2004 at 09:42 #492147Nú er hægt að [url=http://um44.klaki.net/tengsl.html:1xrpk5g7]sjá[/url:1xrpk5g7] röð manna á biðlista vegna [url]Nýliðaferðar í Setrið[/url]. Miðað að þeir sem eru með raðnúmer 24 eða lægra, komist með.
-Einar
27.02.2004 at 09:42 #487572Nú er hægt að [url=http://um44.klaki.net/tengsl.html:1xrpk5g7]sjá[/url:1xrpk5g7] röð manna á biðlista vegna [url]Nýliðaferðar í Setrið[/url]. Miðað að þeir sem eru með raðnúmer 24 eða lægra, komist með.
-Einar
27.02.2004 at 11:39 #492151Það er nokkur hreyfing á listanum, það er því ekki vonlaust að þú komist með. En þetta getur reyndar líka farið eftir fjölda farþega í bílum.
-Einar
27.02.2004 at 11:39 #487574Það er nokkur hreyfing á listanum, það er því ekki vonlaust að þú komist með. En þetta getur reyndar líka farið eftir fjölda farþega í bílum.
-Einar
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.