This topic contains 52 replies, has 1 voice, and was last updated by Bjarki Clausen 18 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
06.11.2006 at 23:41 #198906
Sælir félagar
.
Helgina 24. – 26. nóvember verður nýliðaferð farin í Setrið á vegum Hjálparsveitar 4×4.
Kynning á þessari ferð verður á Miðvikudag 8/11 kl. 20:30 í Mörkinni. Einnig verður fulltrúi frá Hjálparsveit í Mörkinni öll fimmtudagskvöld fram að ferð.fh. Hjálparsveitar gundur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.11.2006 at 19:07 #567046
Nú eru þið búinn að gera mig alveg ruglaðan og eflaust nafna líka, hvaða Benna er verið að tala um ?
23.11.2006 at 19:24 #567048já það er góð spurning..
en sá hinn sami var búin að viðurkenna að þetta hafi verið sagt í fljótfærni. Og hann er búin að sjá Amerískaljósið
Amen
23.11.2006 at 20:06 #567050Hvar ætla Gljúfurleitarmenn að tanka?
Á að stoppa í Árnesi eða Hrauneyjum?
kv Jói er orðin spenntur.
23.11.2006 at 20:24 #567052Gljúfurleitarhópur keyrir sem leið liggur í Árnes þar sem stoppað verður til að fylla á tanka, og til að þétta hópinn.
Svo menn þurfa ekki að keyra sem óðir séu austur fyrir heiði. Við hinkrum eftir öllum í Árnesi.
Kveðja
Flottustu strákarnir í klúbbnum.Lúther
Gundur (sem keypti sér 3 mótorhjól í dag)
23.11.2006 at 21:26 #567054Djöfull er Gundur skynsamur… Ætlar hann að hafa öll þrjú hjólin með til vara þegar Toyotan bilar ?
Og Gústi – ég get svo sem rennt inn í Landmannahelli með dót til þín ef vantar… Svona bara til að þakka fyrir farið hérna um daginn…
Nei en að öllu gamni slepptu þá er allt í lagi með þessar toyotur…. Ég vill bara ekki svoleiðis….
Og Barbara – Það vitkast sumir með árunum og ég virðist vera einn þeirra… En svo er ekki sama usa og USA …. Við vorum þarna að tala um svona ameríska tannstönglabíla en ekki alvöru……
Jæja nú hætti ég áður en ég kem mér í meiri vandræði….
Benni
23.11.2006 at 22:19 #567056Þar sem Lúter er búinn að ákveða að fara inn með Þjórsá vestanverði, er ekki úr vegi að láta ferðalanga hans vita af neyðarskýlum og athvörfum ef illa fer. En hér eru nokkrir góðir gisti kostir á leiðinni.
Fyrsti skáli sem notaður var í leitum á Gljúfurleitum og inn með Þjórsá, var í Gjánni. Það var hellir sem byggt var fyrir með timbri.
Síðan var Gljúfurleitaskáli og síðan þrír skálar sem voru eins, Fitjarskógarskáli, Dalsárkofi og Kjálkaverskofi 6425073-1908176 WGS 84 vestan Kisu, allt voru þetta skálar fyrir 3 menn og 3 hesta.
Í Fitjarskógarskála var draugur. Draugur hafði átt að halda til í Fitjarskógarskála, meinleysisgrey, gjörði engum illt. Sjónskarpir menn sáu hann steypa sér kollhnís í Þjórsá. Nú verður enginn var við hann. Þjórsá hefur sjálfsagt séð fyrir honum.
Ársáll félag formaður Unnsteinn Hermannsson í Langholtskoti styrkti af pokasjóði og þjóðhátíðarsjóði og Hrunamannahreppi.
Skógskofi í Skúmstungum, þar er gamall hellukofi og þakið úr stórum hellum sem nú eru fallnar niður. Hann var með palli og rúmaði allan mannskapinn í eftirleitum, átta manns. Í þessum kofa svaf Kristinn Jónsson 1 október 1989 er hann gekk í villu sinni suður yfir Sprengisand.
Innan við Dalsá við hina fornu Sprengisandsleið stendur gangnamannakofinn í Loðnaveri, byggður 1946 en nú aflagður. Þar töldu sumir sig verða vara við reimleika.
Forsaga gangnamannaskálans í Gljúfurleit var sá að lítil torfkofi inn við Geldingará gegndi hlutverki gangnamannaskála. Skálinn eða leifar hans stóðu sunnan við fossinn í Geldingará þar sem heitir á Tranti. Hausti 1929 lentu gangnamenn þar í hrakningum og þar sem skálinn er nærri hættulegu gili var ákveðið að byggja skála við Gljúfraá. Og var þar byggður skáli 1930 úr torfi og grjóti, og var skálinn 3 manna. Hann stendur bein niður af núverandi skála, 6417732-1920576 WGS 84 og er varðar fyrir ofan hann. Þessi kofi dugði til 1956, en þá var byggður annar kofi úr torfi og grjóti og aðeins bætt við hann nýmóðins bárujárni. Þessi kofi dugði í 22 ár eða til 1978. Að núverandi skáli leisti hann af hólmi. Höfundur hefur einnig heyrt að skálinn hafi verið kallaður Lönguhlíðarskáli.Ferðakveðjur Ofsi
24.11.2006 at 00:46 #567058Ég ætla að vona að fólk hræðist ekki þessar draugasögur hans Ofsa þó ábyggilega sannar séu. Við reynum bara að keyra hratt fram hjá þessum draugabælum, ég get að minnsta kosti lofað að það hefur ekki orðið vart við draugagang í Setrinu.
Ágæt er að miða við 50 Lítra eldsneytisnotkun á dag og eiga svo smá vara. sem sagt ca 200 Lítrar.
Ekki gleyma að setja Ísvara á tankana.
Skófla, teyguspotti í öllum bílum.
Ef einhverjar spurningar vakna fyrir brottför hjá Gljúfurleitarförum er síminn hjá flottustu strákunum í klúbbnum:
Lúther 822-1701
Gundur 862-8511 (sem á 3 mótorhjól)
24.11.2006 at 12:19 #5670604. tímar í fyrstu brottför
24.11.2006 at 13:43 #567062Lúther…..
Hvernig ætlar þú að láta pajeró eyða 50 lítrum á dag ? Á bara að standann flatan alla leið uppeftir….
Það er víst draugagangur í Setrinu – það er einhver óværa í fjórða bæli vinstra megin á svefnloftinu, ég vaknaði allavega með rosalegan hausverk eftir að ég svaf þar…. Svo hef ég oft séð vofur á sveimi í Setrinu á morgnana.
Við Ofsi, betur þekktir sem Draugabanarnir, (Ghostbusters) komum svo og reddum ykkur ef þið lendið í útistöðum við púka og forynjur á leiðinni – bara að hringja. Ofsinn er þó reyndar að kljást við einhvern draugagang í Runner og því ekki víst að hann verði klár….
Benni
24.11.2006 at 14:36 #567064Sæll Benni formaður vor.
Ef Lúddi á að geta haldið í við LC80 bíl þá hefur eyðslan yfirleit verið 58 lítrar/per ….
Benni hvernig er það með Stebba litla trúð, mér skilt að hann sé skógsveinn þinn, ég held þú ættir að láta mæla hann, hann virðist vera með hita.
kv gundur
24.11.2006 at 15:07 #567066Sæll gundur félagi .
Það er allveg rétt hjá þér ég er vel volgur og velgir mig andskotans vitleisan sem á manni dinur annars lagið.
En vita skaltu það að ég er enginn skósvein eins eða neins og það er ekki í verkahring formannsins að frammmkvæma á mér einhverjar hita mælingar.
En ef þú hefur eitthvað við orð mín að athuga skalt þú koma því rétta boðleið en ekki að vera með athuga semdir hér á opnum vef.
Þú veist síma númerið mitt og hefðir geta hringt í mig first
Kv. Úlfurinn
24.11.2006 at 16:29 #567068Nú er fyrri hópurinn að byrja að safnast saman
var myndarlegt að keyra framhjá öllum trukkunum á
planinu hjá Select…..Þetta verður tóm hamingja vesen og vandræði.
eins gott að menn séu klárir í bænum.
Enda meðlimir hjálparsveitar þekktir fyrir allskyns
já segji ekki meir
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.