FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nýliðaferð á Hveravellir

by Guðmundur Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Nýliðaferð á Hveravellir

This topic contains 26 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðmundur Guðmundsson Guðmundur Guðmundsson 20 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 05.11.2004 at 18:41 #194799
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant

    Sælt veri fólkið

    Hverjir ætla á Hveravelli?

    Hver verður dagskráin?

    Eitt er víst að þetta verður gaman!

    kveðja gundur

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 26 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 05.11.2004 at 20:11 #508116
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Sæll Guðmundur

    Ég ætla að fara og konan með,við erum búin að senda umsókn-gerðum það í gærkvöldi,

    þetta verður bara gaman,ég fæ spilbita á bílinn um miðja næstu viku-þannig að ég fæ kannski að draga þig eins og þegar þú dróst mig forðum daga á skjaldbreið er það ekki hehe.
    Mikið gaman mikið fjör

    kv
    Jóhannes





    05.11.2004 at 22:26 #508118
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sæll Jóhannes

    Það kostar ekkert að láta sig dreyma 😛

    Á hálendi Íslands, á miðjum Kjalvegi, er að finna óspillt og friðað náttúrusvæði sem nefnist Hveravellir. Ferðamenn, jafnt íslenskir sem erlendir, sækja mikið þangað allt árið um kring. Ekið er eftir Kjalvegi sem liggur um miðbik landsins, ein elsta og fjölfarnasta alfaraleið hálendisins. Hann opnar yfirleitt upp úr miðjum júní og er fær eins lengi og veður leyfir.

    Hveravellir eru ein af mörgum náttúruperlum landsins, en svæðið liggur á milli Hofsjökuls og Langjökuls. Hverasvæði, heit laug og jöklar í stórkostlegu umhverfi draga alla náttúruunnendur að svæðinu.

    Á Hveravöllum er að finna heita hveri, bæði vatns- og gufuhveri. Þeirra á meðal eru m.a. Eyvindahver, Öskurhóll og Bláhver.
    Eyvindarhver dregur nafn sitt af Fjalla-Eyvindi, en talið er að hann hafi dvalið á Hveravöllum í um tvö ár, ásamt ástkonu sinni Höllu, útlægur frá samneyti við aðra menn, lög og rétt. Enn er að finna merki um búsetu þeirra, þeirra á meðal eru Eyvindarhellir og
    Eyvindarrétt.

    Eftir langan dag á hálendinu er notalegt að stinga sér í náttúrulega heita laug sem staðsett er við annan skálann á svæðinu og láta þreytuna líða úr sér.

    Heimild:
    http://www.hveravellir.is





    05.11.2004 at 23:06 #508120
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Sælir, kútarnir mínir…

    Við verðum alla vegana 3 bílar að norðan, 2 Patrolar og einn 120 LandCruiser, allir vel græjaðir að sjálfsögðu og í þetta skiptið erum við betur undir það búnir að sjóða saman hásingar í massavís ef svo ber undir. Svo er aldrei að vita nema að frúin skelli sér með á Svaðilfara ef hann verður ekki seldur þá þ.e.a.s?

    Þeir sem ætla með fyrir víst eru:

    Skjöldur, Patrol 38" Mudder eða GH?
    Elli, Patrol 39,5 Irok.
    Benni, Toyota 39,5 Irok.

    Kv.
    Benni





    06.11.2004 at 13:01 #508122
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Sæll Benni

    Ég sá mynd af Svaðifara í fréttablaðinu í morgun og mikið rosaleg græja er þetta,það er ekki laust við að maður hafi fengið fiðring í fótinn-glæsilegur bíll.

    kv
    Jóhannes





    06.11.2004 at 13:09 #508124
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það liggur við að það þurfi að gera út sér ferð núna, til að setja niður rafsuðuvélar og járnadrasl út allt hálendið, fyrst þú hefur hugsað þér að mæta. Svo verður þú líka að þekkja þín takmörk, td ef þú sér hvítan Patrol þá er best fyrir þig að vera ekki fyrir. Ef þú sérð Patrol, þá ekki reyna að hafa við honum, við vitum það báðir að þú getur það ekki. Og reglan nr.1, ekki fara í kapp við Patrol, því þegar hann er búinn að stínga þig af og þú orðin frávita af niðrlægingu, áttu það til að keyra á mjög stóra steina og brjóta framhásinguna í sundur, og láta svo Patrol draga þig til byggða.

    Góðar stundir :-)





    06.11.2004 at 21:31 #508126
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Þakka þér fyrir, Jóhannes. Annars á konan jeppann, ekki ég, ég fæ varla að prufa hann nú í seinni tíð og skil bara ekkert í því???

    Hlynur lúðuhaus!

    Reyndu nú að sjá jákvæðu hliðina á þessu öllu saman. Hugsaðu þér t.d. ef þú hefðir lent á grjótinu á Patrollunni þinni værum við líklega ennþá þarna að tína upp járnadrasl og brak um allt miðhálendið þannig að í raun var það lán í óláni að það var alvöru trukkur sem fékk á sig höggið. Það var alla vegana hægt að koma honum til byggða eftir "smá" suðuvinnu.

    Batnandi mönnum er best að lifa…

    Kv.
    DanaBani





    09.11.2004 at 00:07 #508128
    Profile photo of Hlynur Þorsteinsson
    Hlynur Þorsteinsson
    Member
    • Umræður: 5
    • Svör: 18

    ???????????
    ???????
    ?????’





    10.11.2004 at 22:01 #508130
    Profile photo of Magnús Tómasson
    Magnús Tómasson
    Member
    • Umræður: 2
    • Svör: 80

    Er leyfilegt að koma með börn og gæludýr í ferðina á Hveravelli?





    10.11.2004 at 22:17 #508132
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Sælt veri fólkið

    Ég skráði tvö börn með okkur í þessa ferð
    og var ekki gerð athugasemd við það.

    Þegar við förum td. með "Litludeildinni"
    þá mætti ætla að það væri skilda að vera með
    hund og ekki hefur stjórnin gert neina athugasemd við það.

    Enn er ekki rétt að heyra frá stjórn félagsins og eða
    ferðarinnar.

    kveðja gundur





    11.11.2004 at 09:59 #508134
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Sælir
    Hundar og önnur gæludýr eru oftast ekki leyft í skálum, það er æskilegt að það sé virt.

    Elvar





    11.11.2004 at 11:45 #508136
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    En börn eru leifð í ferðum og skálum.

    😉

    Kveðja Fastur





    11.11.2004 at 13:01 #508138
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Fastu minn það hlýtur að vera.
    Mér sýnist þetta vera allt einhverjir fermingadrengir sem sjá um þessa ferð.

    Og miklu nær að kalla þetta Haustferð grunnskólanema, enn nýliðaferð.





    11.11.2004 at 15:20 #508140
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    já .. það er Seturs þráðurinn sem er fermingaþráður skv. skilgreiningu margra hér.

    Það getur alveg verið að hér séu allir með staf.

    Kveðja Fastur





    11.11.2004 at 19:32 #508142
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hvernig er það annars Benedikt, hvað vill frúin fá fyrir Blazerinn?

    kv. Stefán.





    11.11.2004 at 19:51 #508144
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Sæll.

    Hún ættlar að fá fyrir hann krónur 1500Þ og þá á nýjum 44" dekkjum.

    Kv.
    Benni





    11.11.2004 at 19:57 #508146
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Fylgir Alma með líka fyrir 1500þús ????

    Patrolkveðja





    11.11.2004 at 20:09 #508148
    Profile photo of Elvar Níelsson
    Elvar Níelsson
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 649

    Er Lúther fermdur eða gamalmenni?
    Lúddi reynslubolti skutlar kannski inn trúarjátningunni hér á vefinn, til að sanna sjálfan sig :)

    Fermingkveðja
    Elvar





    12.11.2004 at 03:35 #508150
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Það má ræða allt fyrir réttar upphæðir hlynur sko ha…

    Kv.
    Benni





    17.11.2004 at 15:01 #508152
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir verið þið
    Skráning er í fullum gangi í ferðina og búið er að panta matinn.Svo er fundur hjá Artic Truck á þriðjudag fyrir þá sem fara í ferðirnar 3. kl.20 um kvöldið.Snjóafæri lofar góðu svo það verður bara gaman………….
    Kveðja Matti
    muh@simnet.is
    og simi-8619187





    17.11.2004 at 22:32 #508154
    Profile photo of Guðmundur Guðmundsson
    Guðmundur Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 1091

    Kjölur er háslétta sem liggur á milli Langjökuls og Hofsjökuls á 30 km breiðu svæði. Þar blasir við víðáttumikið land. Greinileg vatnaskil eru þar og má sjá vötn renna annars vegar til suðurs en hins vegar til norðurs. Hveravellir liggja í um 650 metra hæð yfir sjávarmáli í kvos milli norðurjaðars Kjalhrauns og Breiðamels. Hveravellir eru eitt af háhitasvæðum landsins og einnig eitt stærsta hverasvæðið. Þar er að finna vatnshveri sem eru þó ólíkir hver öðrum að gerð og lögun til dæmis eru þar gufuhverir og goshverir. Þeir bera nöfn eins og Bláhver, Eyvindarhver, Rauðihver, Grænihver og Öskurhóll sem lætur í sér heyra úr mikilli fjarlægð þegar hljóðbært er á svæðinu. Gufustrókar standa upp úr hverunum og má sjá þá víða að. Við eldri skálann á Hveravöllum er lítil laug þar sem hægt er að baða sig en hitanum er stjórnað með því að veita í hana heitu vatni.

    Á góðum degi má sjá yfir stærsta hluta Kjalarsvæðisins frá tveimur stöðum. Annars vegar frá hæð sem liggur norðan við Seyðisá en hins vegar frá norðanverðum Bláfellshálsi við stóra vörðu sem þar er (sjá kort). Á þessum tveimur stöðum er nær ekkert sem skyggir á útsýnið. Þar er að finna margslungið landslag sem á sér langa sögu allt aftur til ísaldar þegar landmótum átti sér stað. Stórir jöklar skarta sínu fegursta bæði sumar og vetur.
    Fjöll, klettar, grjót, sandur, hraun og jökulár prýða landslagið. En þar er einnig að finna gróðursæla dali, lindar, vötn stór sem smá, og fjölskrúðugt fuglalíf. Á veturna ráða rjúpur og snjótittlingar ríkjum á Kili, en þegar líða tekur á apríl bætast álftir, heiðagæsir og endur við. Þegar kemur fram á sumar hefst umferð farfugla um hálendið.

    Náttúran, kyrrðin og friðsældin er einstök á svæðinu, hennar má njóta á marga vegu, sérstaklega í gönguferðum um þetta einstaka og sögufræga svæði.

    Heimild: http://www.hveravellir.is





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 26 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.