Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Nýji jeppakallinn
This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Lárus Rafn Halldórsson 17 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
04.05.2007 at 01:01 #200257
Jæja þar sem ég er loksins búinn að skrá mig í þennan klúbb þá langaði mig bara aðeins að kynna mig.
Ég heiti Brynjólfur Árni. Er búinn að vera með mikla jeppadellu frá því að ég var lítill. Jeppa spólurnar eru að verða ónýtar af notkun og er þar helst að nefna Hveravallaskreppurinn með Bláu 60 Landcruiser.Jeppinn sem ég keypti mér var í eigu eins meðlims hérna hann Gísli R. Fínasta tæki og er ég mjög sáttur með hann.
En mig langaði að skella fram einni spurningu til ykkar varðandi kaðal, ég er búinn að kynna mér þetta nokkuð og er búinn að komast að því að maður á að versla sér svona kaðal hjá Ísfelli. En hvað á hann að vera sver og er ekki 20 metrar lágmarkið
Með von um góðar viðtökur
Brynjólfur -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.05.2007 at 07:25 #590332
‘A að vera um 28m/m og um 15 -20m með auga á allavega öðrum endanum,svokallaður teygjuspotti með c 16,7tonna slitþoli.
Kv Klakinn
04.05.2007 at 09:25 #590334Passaðu þig á því… að Allir jeppar nota ekki sama sverleika á spotta.
T.d. Þarf Patrol allt annan spotta en T.d. Cherokee.
Eða Cherokee.. sem er um 2tonn þarf Stærðina fyrir neðan þann sem Patrol hyggst nota.
Ef spottinn er of sver þá virkar ekki teygjan í honum og þetta verður bara sterkur spotti sem virkar ekkert alltof vel. Þ.e.a.s. teygjist ekki vel og höggið verður of hart þegar togað er. (þá fara allar festingar að slitna)
Með lengdina, þá er mjög gott að ef að tveir félagar eru að ferðast saman, þá ætti annar að vera með 15 – 20 metra.. og hinn 10 metra. Festur eru oft mjög litlar og það er mjög leiðinlegt alltaf að vera gera upp 15 metra spotta… bara smá hint.
kv
Gunnar…(mér sýnist þú vera með l200 pickup, sá bíll viktar ekki nema 1900 kg… sem er töluvert minna en patrol viktar…..fáður þér stærðina fyrir neðan.. )
04.05.2007 at 09:48 #590336Teyjusporttar eru úr Næloni. Ég mæli með 24 eða 28 mm sverleika og lengd a.m.k 12 m, meira er betra. Ég nota sjálfur 24 mm, 15 m langan spotta, með honum hef ég notað Cherokee til þess að losa marga fasta LandCrúsera og Patta og jafnvel Econoline 350 hópferðabíla.
Ég er með splæstar lykkur á báðum endum. Hnútar veikja spottann, og ef tekið er vel á þá, þá er óvíst að hægt sé að losa hnútana, jafnvel þó notað sé pelastikk.
-Einar
04.05.2007 at 09:57 #590338Teygjuspottar eru góðir til síns brúks og margfalda togkraft miðað við venjulegan kaðal. Smá aðvörun samt, þeir margfalda líka slysahættu. Það er gífurlegt afl sem er bundið í stekktum teygjuspotta og í raun er öll notkun á honum stórhættuleg. Hef sjálfur slitið spotta við að draga 4 tonna plús Econaline og er reynslunni ríkari eftir það. Sem betur fer ekki slys á fólki en mörg hundruð þúsunda kr. tjón. Ef spotti slitnar eða slítur festingar eða stuðara af þá þarf ekki um að binda ef slitinn spotti eða festingar slást í höfuð manna. Best er að losa fyrst um illa fastan bíl með skóflu og tjakk til að minnka átökin við dráttinn. Einnig að prófa sig áfram stig af stigi með hvað þarf mikið afl til að losa fastan bíl. Einnig þarf sá sem dregur að gera sér grein fyrir því að hann ber alla ábyrð á mögulegum skemmdum eða slysum.
04.05.2007 at 11:30 #590340Öll ofanskráð ráð eru góð og gild og margsönnuð við hinar ýmsustu aðstæður,en ef þú ættlar að nota lása sem þér ber að forðast í lengstu lög,þá skalt þú fá þér viðurkenndann lás þar sem átaksþol er stimplað á lásinn,en ef lás brotnar eða slitnar,getur teygjuspotti auðveldlega slegið honum í gegnum bílhurð,svo það er margt að varast í þessum átaksmálum.
Kv Kalkinn
04.05.2007 at 13:05 #590342Sæll Brynjólfur..
ég ætla nú ekki að fara út í spottafræðina því þeir eru nokkrir að gefa þér góð ráð nú þegar en kannski til gamans má segja að ég er á 4Runner á 38" og keypti ég mér 20 metra teygjuspotta splæstann í báða enda hjá Ísfelli en svo vinur minn og ferðafélagi (á L-200 á 37") fékk sér alveg sama spotta nema 15 metra langann svo þar með erum við komnir með sitthvora lengdina og notum þá þann kaðal sem hentar betur við aðstæður hverju sinni.
en að öðru þá vill ég bjóða þig velkominn í þann frábæra félagsskap sem Ferðaklúbburinn 4X4 hefur að bjóða en þar innan eru menn af öllum toga og öllum gerðum og ekki hika við að spurja á t,d spjallinu hér á síðunni ef þér vantar ráð með eitthvað tengt bílum (meirasegja kom einn ónefndur af stað umræðu um sjónvarpsfjarstýringuna sína fyrir svolitlu síðan:D)
Svo vil ég bara minna þig á aðalfundinn á laugardaginn sem þú hefur rétt til setu á þar sem þú ert nú orðinn fullgildur félagi (ekki satt??) og einnig þá eru öll fimmtudagskvöld opin hús í risinu okkar að Mörkinni 6 kl 20:30- ca 22 og er mæting þar nokkuð góð og mikið kjaftað og yfirleitt mjög gaman að stoppa þar við og tala um allt frá jeppum til brauðrista en þar er opið fyrir bæði félaga og áhugamenn (held ég:D) og alltaf heitt á könnunni og þar geturu t,d fengið 4X4 vörur eins og límmiða á bílinn og flr
en já þetta er bara orðin ritgerð svo ég held að ég segi þetta gott en velkominn í félag allra helstu dellu og öfgamanna landsinns:D og ekki hika við að spurja eða hvað sem er
Kv Davíð Karl Davíðsson
megapóstari:D
04.05.2007 at 13:11 #590344Fyrir nokkru skráði ég mig í klúbbin sem gekk eins og í sögu og er farinn að fá blöð og bensínkort inn um lúguna hjá mér.
Mig langar að vita hvernig ég kemst inná innanfélgasumræðurnar, eða er það kannski bara fyrir einhverja gamlar sleggjur með koppafeiti í eyrunum 😉
04.05.2007 at 13:17 #590346Sæll Baddim
Sendu kennitöluna og félagsnúmerið þitt á vefnefnd@f4x4.is og þá getum við smurt koppafeiti í eyrun á þér þeas opnað aðgang fyrir þig að innanfélagsmálunum.
kv. Ólafur, vefnefnd
04.05.2007 at 13:28 #590348Ég bjó til öryggisbelti á kaðalinn minn því ég vill nota lása. Það er ekkert vit í öðru en að hafa svona kerfi, og sér í lagi ef maður er að nota lása.
hér er hægt að sjá hvernig ég gerði það:
[url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=skyrinarmynd/4811:3q4gnyp3][b:3q4gnyp3]öryggisbelti á kaðal[/b:3q4gnyp3][/url:3q4gnyp3]
04.05.2007 at 13:32 #590350Takk fyrir þetta Davíð. Jú jú ég er orðinn fullgildur félagsmaður með. Varðandi fundinn og opið hús þá er ég eins og er á fullu í prófum núna og út næstu viku (á að vera að læra stærðfræði núna). En ég mun kíkja opið hús eitthvern tímann seinna.
Og já ég er á L-200. Þannig að ég á þá að fjárfesta í 24 mm kaðli 15-20m löngum og auðvitað splæstum báðumegin. Já ég var búinn að sjá þetta öryggisbelti, mjög sniðugt. Er komin eitthver reynsla á þetta?
04.05.2007 at 17:34 #590352Kraftur
^
|+—————————————*——————————o
|+———————————*—————————o
|+—————————-*———————-o
|+———————-*——————o
|+—————-*————–o
|+———-*———o
|+—-*— o
|*o_____________________________
Vegalengd >Þetta mjög svo frumstæða graf sýnir að ég held nokkurn veginn það sem er að gerast hjá "óteygjanlegum spotta", merkt með "+", sverari eða styttri spotta merkt með *, og lengri/grennri spotta merkt með o.
Í raun er þetta að öllum líkindum ekki línulegt, en við gefum okkur það til einföldunar.
Orkan sem safnað er upp, er flöturinn undir ferlunum. Þar af leiðandi er orkan=(vegalengd x lokakraftur) / 2.
Þetta segir okkur að lokakrafturinn er mikilvæg breyta, en það er einmitt að hluta háð tog-getu bíls sem aftur ræðst af þyngd, færi, dekkjum o.s.frv.
Þetta er hins vegar breyta sem við fáum litlu um ráðið þegar á hólminn er komið. Hins vegar getum við notað grennri kaðal, sem aftur takmarkar lokakraft vegna hættu á að slíta.Það sem eftir stendur er að ná að auka ,,virka orkusöfnunarvegalengd" ef svo má að orði komast, með því að hafa lengri spotta. Of langur spotti hefur samt mjög takmarkað notagildi, þar sem hann þarf jafnframt lengri vegalengd til að skila orkunni til baka með því að draga hið farlama ökutæki úr festunni….
Hvernig ætli það kæmi út að splæsa lykkjur inn á ca. 25 metra kaðal í t.d. 15 og 20 metrum?
Þá væri hægt að nota 25metrana þegar léttur bíll dregur(mýkra og lengra átak, minni hætta á slitum og djöfulgangi), en t.d. 15 metrana þegar þyngri bíll tekur í, sem þarf ekki eins mikinn hraða til að ná fullnægjandi krafti…?…bara svona vangaveltur úr sófanum…hvað finnst ykkur? Er þetta kannski bara algert bull?
kv
Grímur
04.05.2007 at 17:58 #590354Meikar alveg sense…
Langur og grannur spotti myndi örugglega virka betur heldur en aðeins sverari og styttri. Átakið yrði mun mýkra en auðvitað eru takmörk fyrir því hvað má toga.
T.d. Er vita vonlaust fyrir Wrangler að Toga í fastan Ford… Svoleiðis bílar eiga enga samleið í þeim málum jú nema þveröfugt.
Eftir því sem spottinn lengist þeim mun mýkra verður átakið.
kv
Gunnar
04.05.2007 at 18:46 #590356Já þetta er nokkuð góð útskýring hjá þér Grímur.
En Lárus, ég sé að þú ert með gúmmí klæddar lykkjurnar á kaðlinum hjá þér. Er þetta bara reiðhjólasklanga hituð utanum eða hvað.
04.05.2007 at 23:43 #590358er þetta ekki bara herpihólkur…
05.05.2007 at 00:01 #590360Vertu velkomin í þennan klúbb og láttu ekki vondu kallana trufla þig, því engin klúbbur er svo sætur að að hann hafi ekki einn eða tvo vonda.
kv:Kalli aðreynaaðveragóður
05.05.2007 at 01:09 #590362Ég skal passa mig á vondu köllunum (trúi ekki að þeir séu hér).
En eru herpihólkarnir nógu sterkir fyrir þessi átök
05.05.2007 at 11:53 #590364það getur nú verið nokkuð seigt í þessum herpihólkum, auðvitað er það ekki nein eilífðarlausn þannig lagað.
Það besta er náttúrulega svona nælonslíf(kannski ekki nælon endilega).
05.05.2007 at 18:02 #590366Sæll Brynjólfur.
"gúmmíið" á kaðlinum mínum er nú bara rafmagnsteip sem límt var á af félaga mínum sem splæsti lykkjurnar á hjá mér.
Ég sé það núna að svona teip á ekki heima á kaðli sem þessum því þetta verður bara klístrað og ógeðslegt og límið skemmir kaðalinn með tímanum…. næst mun ég nota slöngubút þegar splæsa á lykkju á kaðal hjá mér.
Varðandi öryggisbeltið þá er komin á það góð reynsla, ég er búinn að spara mér í það minnsta einn afturhlera eftir að krókur gaf sig í togi. Bjargaði þá "öryggisbeltið" því að kaðallinn þrumaðist í afturdyrnar hjá mér.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.