FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nýja húsnæðið, framkvæmdir.

by Logi Már Einarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Nýja húsnæðið, framkvæmdir.

This topic contains 63 replies, has 14 voices, and was last updated by Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson Sveinbjörn Halldórsson 10 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 01.09.2014 at 23:47 #771294
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant

    Eins og fram kom á félagsfundinum 1. september erum við að fara af stað með framkvæmdir í nýja húsnæðinu okkar í Síðumúlanum. Þessi spjallþráður er settur af stað í þeim tilgangi að miðla upplýsingum um framgang mála og svara fyrirspurnum ef einhverjar eru. Það kom fram á fundinum að við ætlum að hafa vinnukvöld á mánudags og miðvikudagskvöldum frá ca. hálf sjö til tíu. Núna á miðvikudaginn þriðja september ætlum við að hefjast handa. Farið verður í að skrúfa niður hillur, opna stigaop á milli hæða, taka niður þá gifsveggi og plexiglersveggi sem ekki eiga að standa og koma öllu því efni sem í þessu er niður á neðri hæðina til geymslu og síðari nota. Við þurfum aðstoð ykkar félagsmanna og gott væri ef þið gætuð komið með einhver verkfæri svo sem hamra, kúbein, skrúfvélar, sagir og þess háttar. Ef einhverjir eru með tröppur eða stiga væri gott að fá slíkt. Þetta verður svona til að starta framkvæmdinni og byrja að þreyfa á verkinu og sjá hvernig það fer af stað og síðan verður sett upp nýtt prógram fyrir næsta mánudag. Hlökkum til að sjá ykkur.

    Fasteignanefndin.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 41 through 60 (of 63 total)
← 1 2 3 4 →
  • Author
    Replies
  • 29.01.2015 at 00:08 #776366
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Miðvikudagskvöldið 28.01. Þessar framkvæmdir mjakast áfram með samhentu átaki.

    Viðhengi:
    1. 018
    2. 020
    3. 016
    4. 0181
    5. 019
    6. 021
    7. 023
    8. 024
    9. 017




    30.01.2015 at 00:21 #776389
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Á laugardaginn er vinnudagur í Síðumúlanum, mæting kl 10. Fyrirhugað er að vinna í leigurýminu og helst að reyna að klára sem mest í því. Nú er um að gera að mæta og leggja okkur lið við að klára leigurýmið . Þegar leigurýmið er klárt heldur  áfram vinna við  skrifstofan, salernin uppi og fundarherbergið.

     

    kv nefndin

     

     

    Viðhengi:
    1. DSCF8070
    2. DSCF8074
    3. DSCF8076
    4. DSCF8077
    5. DSCF8078
    6. DSCF8082




    01.02.2015 at 17:52 #776439
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Það gekk vel um helgina þrátt fyrir fámenni. Myndinar segja það sem segja þarf.

    kv Nefndin

    Viðhengi:
    1. DSCF8083
    2. DSCF8084
    3. DSCF8085
    4. DSCF8086
    5. DSCF8087
    6. DSCF8088
    7. DSCF8089
    8. DSCF8090




    04.02.2015 at 00:24 #776515
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Þá er komið að enn einu vinnukvöldi í Síðumúlanum í kvöld miðvikudag. Stemt er að því að klár leigurýmið.

     

    Kv nefndin

    Viðhengi:
    1. DSCF8091
    2. DSCF8092
    3. DSCF8093
    4. DSCF8094




    06.02.2015 at 11:37 #776646
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Jæja, við ætlum að taka vinnudag á laugardaginn sjöunda febrúar og sjá hvort við náum ekki að hnýta endahnútinn á framkvæmdir er tengjast leigurýminu. Það er orðið aðkallandi að klára þær framkvæmdir svo að við getum farið að koma skrifstofunni á staðinn og halda áfram að vinna í félagsrýminu. Allar hendur vel þegnar. L.M.





    06.02.2015 at 19:51 #776650
    Profile photo of Hjörtur Sævar Steinason
    Hjörtur Sævar Steinason
    Participant
    • Umræður: 89
    • Svör: 1242

    Góðan daginn Logi og þið,

    klukkan hvað ert þú að hugsa um að mæta ??

    Kveðja Hjörtur og JAKINN.is





    06.02.2015 at 19:56 #776651
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Verðum komnir svona hálf tíu til tíu. L.M.





    08.02.2015 at 18:48 #776693
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Gekk þokkalega á laugardaginn og erum nú tilbúnir í það að loka leigurýminu af. Stór áfangi. Næst er að einbeita sér að því að gera skrifstofurýmið klárt og verður haldið áfram með það á mánudagskvöldið. L.M.





    10.02.2015 at 19:00 #776727
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Þær voru vel þegnar vöflunar frá Baldri og Berglindi á síðasta vinnukvöldi, fyrir það eiga þau þakkir fyrir. Nú erum við að halda áfram af fullum krafti með skrfistofuna og salernisaðstöðuna. Byrjað er að sparsla fundarherbergi og vinna við að fjarlæga súluna í salnum og fljótlega verður stálbitinn settur upp. Næsta vinnukvöld er á morgun miðvikudag og það er heitt á konnuni hjá Einari Sól fyrir þá sem vilja líta við.

     

    kv Nefndin

    Viðhengi:
    1. DSCF8123
    2. DSCF8126
    3. DSCF8128
    4. DSCF8130
    5. DSCF8134
    6. DSCF8136
    7. DSCF8137
    8. DSCF8139




    11.02.2015 at 11:18 #776744
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Í kvöld verður haldið áfram með píulögn á klósettum uppi, byrjað verður að taka punkta í skrifstofugólfið vegna flotunar og já, Einar, þú verður með kaffistofuna á hrakhólum í kvöld  :)  .   Byrjað verður einnig að undirbúa að koma stálbitanum í salnum upp.  Sandur á að vera kominn í kvöld og þá þarf að sanda undir frárennsli í kjallaranum þannig að eitthvað verður að starfa í kvöld.  Ætli það verði ekki fastir liðir hjá Bjössa og Jóa að halda áfram með veggjavinnuna í fundarherberginu  :)   Vonandi verður kaffi á könnunni því kaffistofa á hrakhólum er ekki til margs líkleg….  :)   L.M.





    14.02.2015 at 09:31 #776792
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Hvað er í gangi?!

    Það eru allar myndir og umræður horfnar af þræðinum





    14.02.2015 at 12:33 #776793
    Profile photo of Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Keymaster
    • Umræður: 32
    • Svör: 604

    [quote=776792]Hvað er í gangi?! Það eru allar myndir og umræður horfnar af þræðinum [/quote]

    Sæll Jón,

    Það er ekkert horfið, en við breytingarnar í gær, þá kom upp böggur sem virðist vera þannig að ef magnið er á síðuskilum, þá sést þráðurinn ekki nema notandi sé loggaður inn. Við erum enn að finna útúr þessari villu. En, eftir innlegg þitt, þá sést þráðurinn þó þú sért ekki innskráður. Þegar smellt er á mynd í þráðum, þá er hægt að fletta í gegnum þær myndir sem eru á þeirri blaðsíðu, til að skoða myndir á annari blaðsíðu, þá þarf að færa sig.

    Kveðja, Hafliði





    14.02.2015 at 12:44 #776794
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Um leið og við minnum á vinnukvöldið á mánudaginn eru hér myndir frá afrekum síðasta vinnukvölds.

     

    kv nefndin

    Viðhengi:
    1. DSCF81361
    2. DSCF81371
    3. DSCF8138
    4. DSCF81391




    14.02.2015 at 14:31 #776801
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Það vantar alveg myndir af aðal afreksmanni miðvikudagskvöldsins

    Viðhengi:
    1. DSC_0004
    2. DSC_0009
    3. DSC_0010




    14.02.2015 at 14:35 #776805
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    …en þær eru víst aðeins skárri svona!

    Viðhengi:
    1. DSC_00091
    2. DSC_00101




    14.02.2015 at 17:18 #776810
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Jón,aldrei þessu vant ætlaði ég að setja mynd inn af mér. Hef verið að setja inn 4-8 myndir en í dag tók síðan bara við 3 myndum en ætlaði að setja 8 myndir og þar á meðal mynd af mér að berjast við súluna.

    kv Rúnar

    Viðhengi:
    1. DSCF81441
    2. DSCF81451
    3. DSCF81491




    15.02.2015 at 00:55 #776816
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæll Rúnar náðir þú að setja inn þrjár myndir og enga af mér ég sem var svo duglegur á kústinum.

    Stjórn fór í dag upp á Eyrhöfða og tók þar til jhendinni pakkaði helling niður í kassa og fór eina ferð með rusl og það helling af því. Einhvernveginn er það þannig að þó að við séum búnir að setja helling í kassa þá er hellingur eftir. Einnig er hellingur í geymslunni upp á Höfða þannig að nóg er eftir að gera þar.

    Mér skildist á Rúnari að hann og Logi Már ætluðu að flota gólfið í skrifstofunni í Síðumúlanum á morgun þannig að hægt yrði að byrja að parketleggja á miðvikudaginn þá fer nú að stittast í flutning á skrifstofunni sem verður að vera farinn af Höfðanum í þessum mánuði. Við erum að renna út á tíma með ýmis verkefni þannig að allar vinnufúsar hendur verða vel þegnar í næstu viku.

    Kveðja
    Sveinbjörn





    18.02.2015 at 00:22 #776855
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæl.

    Það var heljarinnar fjör á Bolludeginum í Síðumúlanum, margt var gert og mikið unnið. Skrifstofan er tilbúin til parketlagningar og verið er að taka til í kjallaranum og einangra veggina í fundarherberginu í kjallaranum. Búið er að vinna kraftaverk á veggjunum og verið að gera gluggana klára fyrir smá yfirhalningu. Á miðvikudaginn verður byrjað að parketleggja og gera klárt fyrir flutningana, því á laugardaginn verður farið upp á Höfða, pakkað og farið með dót niður í Síðumúla.

    Endilega kíkið við og komið þó ekki sé nema í kaffi því það verður ekki opið hús upp á höfða á fimmtudaginn þannig að kaffiþyrstir félagsmenn verða bara að kíkja við á miðvikudaginn. Þeir sem ekki komu á Bolludeginum misstu af heljarinnar BOLLUVEISLU sem Berglind töfraði fram að sinni alkunnu snilld.

    kv.
    Sveinbjörn





    20.02.2015 at 20:48 #776924
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Það gekk vel í „Múlanum“ á síðasta vinnukvöldi.Byrjað var að parketleggja,búið að leggja fyrstu borðin. Klárað var að brjóta niður súluna,fundarherbergið grunnað og í dag búið að mála fyrstu umferð . Ull var sett í veggina á stóra salerninu. Árni Bergs heldur áfram að vinna í rafmagninu sem engin væri morgundagurinn, lamparnir komnir upp í skrifstofunni. Tvær kerrur af rusli bíða eftir að fara í Sorpu,fara á morgun.Ekki má gleyma uppáhellaranun Einari Sól sem stóð vaktina að vanda. Sérstakt eftirlit var haft með Friðrik „henda öllu“ Halldórs af gefnu tilefni. Það stendur til að klára að parketleggja skrifstofuna á morgun laugardag. Á MORGUN LAUGARDAG STENDUR TIL AÐ BYRJA AÐ PAKKA OG FLYTJA NIÐUR Í SÍÐUMÚLA. MÆTING ER UPP Á EIRHÖFÐA KL.1300.

     

    KV Nefndin

    Viðhengi:
    1. DSCF8166
    2. DSCF8169
    3. DSCF8171
    4. DSCF8173
    5. DSCF8177




    22.02.2015 at 01:08 #776940
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Ég vil þakka stjórn og öðrum aðstandendum fyrir kvöldið og loka veilsluna á Eirhöfðanum, Gott og skemmtilegt kvöld fyrir okkur vinnendur á nýja húsnæðinu.  Nú er bara að samhendast í það að flytja endanlega um næstu helgi. :)     Sjáumst hressir

     





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 41 through 60 (of 63 total)
← 1 2 3 4 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.