Ferðaklúbburinn 4x4Nýja húsnæðið, framkvæmdir. – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/feed/ Thu, 01 Oct 2026 17:01:02 +0000 http://bbpress.org/?v=2.5.10-6063 is-IS https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771444 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771444 Wed, 03 Sep 2014 23:26:51 +0000 Rúnar Sigurjónsson Það var vaskur hópur sem mætti í Síðumúlann í kvöld. Næsta mánudagskvöld verður haldið áfram að hreinsa út og við hvetjum félagsmenn að mæta og taka þátt í vinnunni við að standsetja húsnæðið okkar.

nefndin

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771492 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771492 Sat, 06 Sep 2014 13:49:35 +0000 Vilhjálmur Ég hélt fyrst að þetta væri Pútín þarna við stigaopið (:

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771504 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771504 Sun, 07 Sep 2014 14:13:29 +0000 Logi Már Einarsson Já Vilhjálmur, þegar svona merkisatburðir eins og það að Ferðaklúbburinn kaupi sitt eigið húsnæði eiga sér stað þá flykkjast „stórmennin“ að til þess að komast á spjöld sögunnar :) En að öllu gamni slepptu, þá erum við að fara að halda áfram með niðurrifið á morgun, (mánudaginn 8 sept.) Takmark kvöldsins er að reyna að klára það niðurrif sem þarf að eiga sér stað áður en farið verður í niðurbrot á veggjum og að saga nýtt dyraop milli framhúss og bakhúss. Næstu skref eru svo einmitt að brjóta niður þá hlöðnu veggi sem brjóta þarf niður og saga ofangreint gat, bora fyrir lagnastamma milli húsanna svo hægt verði að koma fyrir klósetti og eldhúsaðstöðu í leigurýminu, hreinsa allt út sem þarf að fara og má þá segja að við getum farið að hefja uppbyggingarstarfið. Við munum hefjast handa þetta á bilinu hálf sjö til sjö og stefnum að því að vinna til tíu. Með góðri mætingu tekst að gera mikið á þessum þremur tímum eins og sást síðasta fimmtudagskvöld. Vonumst eftir góðri mætingu.

Fasteignanefndin.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771511 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771511 Sun, 07 Sep 2014 18:13:00 +0000 Jón G. Guðmundsson

Ég hélt fyrst að þetta væri Pútín þarna við stigaopið (:

Þarna er leiðum að líkjast, en ég gæti kannski gert allt skemmtilega vitlaust með því að labba inn í stjórnarráðið og segja Sigmundi að hypja sig…

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771534 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771534 Mon, 08 Sep 2014 23:31:03 +0000 Rúnar Sigurjónsson Hér eru myndir af afrekum kvöldins

Kv Rúnar

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771544 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771544 Tue, 09 Sep 2014 08:53:28 +0000 Friðrik S. Halldórsson Sæl
Aldeilis flott kvöld í gær. Um 20 manns að vinna og mikið gekk á. Klárað að taka niður timburveggi og glerveggi. Byrjað að brjóta niður hlaðnar geymslur. Ein kerra fyllt af timburdóti og rusli sem fer í Sorpu.
Ekkert smá dugnaðarfólk að störfum.
Takk fyrir flott kvöld.
Kv
Friðrik

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771547 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771547 Tue, 09 Sep 2014 12:57:42 +0000 Gunnar Sigurfinnsson Gaman að sjá hvað vinnan gengur vel,
ekki klára samt allt áður en ég kem heim.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771550 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771550 Tue, 09 Sep 2014 15:38:05 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Sæl.

Það var líf og fjör í Síðumúlanum í gærkvöldi. Ótrúlega mikið hreinsað til, allir timburveggir farnir í burtu og byrjað á að brjóta niður steyptu veggina. Það var ótrúlegt hve brotaviljinn var sterkur hjá okkur þar sem nánast heill veggur var sleginn niður. Verkið miðar vel og verður mikið fjör á miðvikudaginn þegar steyptu veggirnir verða kláraðir og steypubrotunum mokað út í gám. Þá er í raun hægt að hefja uppbygginguna.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771566 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771566 Wed, 10 Sep 2014 16:01:30 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Sæl.
Nú er kominn miðvikudagur og þá er vinnudagur í Síðumúlanum kl. 18:30. Í kvöld á að klára að brjóta niður steypta veggi og henda múrbrotum út í gám. Á staðnum verða sleggjur, grímur og kaffi…… Hlakka til að sjá ykkur. Endilega kíkið við og heilsið upp á mannskapinn.

—
Með kveðju
Sveinbjörn Halldórsson

Kveðja
Sveinbjörn

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771569 <![CDATA[Reply To: Nýja húsnæðið, framkvæmdir.]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/nyja-husnaedid-framkvaemdir/#post-771569 Wed, 10 Sep 2014 17:25:39 +0000 Logi Már Einarsson Nú er tækifærið, nú er tækifærið sem ekki gefst aftur. Að láta reiði sína bitna á steinveggjum með sleggju er góð aðferð til að hleypa uppsafnaðri gremju út úr kerfinu. (Það leyfist að hugsa um einhvern sem þið þolið ekki meðan þið djöflist með sleggjuna) :) Missið ekki af þessu einstaka tækifæri. Skóflur vel þegnar til að moka brotinu í hjólbörur.

Fasteignanefndin.

]]>