FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Ný vefsíða Ferðaklúbbsins 4×4.

by Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060

Forsíða › Forums › Spjallið › Vefsíðan › Ný vefsíða Ferðaklúbbsins 4×4.

This topic contains 53 replies, has 13 voices, and was last updated by Profile photo of Jón G. Guðmundsson Jón G. Guðmundsson 9 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.12.2014 at 18:37 #773631
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster

    Sælir félagsmenn.

    Nú er enn ein vefsíðan komin í loftið. Hún er að við í vefnefnd teljum vera sú sem bestar vonir eru bundnar við. Þar er frábært spjall og póstkerfi. Einnig geta menn hópað sig saman með ýmsu móti. Myndainnsetning er mjög einföld en eftir er að heimfæra þar ýmist að okkar þörfum.

    Fjölmargar lagfæringar og breitingar eru eftir að vinna sem miðast að mestu við það sem við í vefnefnd getum unnið sjálfir. Hafliði, formaður vefnefndar er hjá okkur í forsvari sem kunnáttumaður og reynum við Jón Emil að vera hjálpsamir eftir bestu getu með ýmsa þætti.

    Síðan eruð það þið félagsmenn sem þetta allt er unnið fyrir. Það er að koma með leiðandi gagnrýni á vefsíðuna svo að hún verði þannig að sem flestum líki. Einnig að nota eiginleika hennar til samskipta á áhugamálum og þeim baráttumálum sem klúbburinn stendur fyrir.

    Það er leyfilegt að hrósa, koma með hugmyndir að því sem betur má fara og því sem er vonlaust. Við munum reyna að skrá það niður hjá okkur eins og hægt er.

    Kv. Vefnefnd.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 53 total)
1 2 3 →
  • Author
    Replies
  • 03.12.2014 at 19:33 #773730
    Profile photo of Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Keymaster
    • Umræður: 32
    • Svör: 604

    Athugið að þegar þið viljið stofna spjallþráð undir nefndum eða deildum og viljið fá þráðinn á forsíðuna, þá þurfið þið að smella á spjallborð eftir að þið hafið smellt á viðkomandi nefnd eða deild og stofna þráðinn þar.





    03.12.2014 at 23:00 #773748
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Skilmálar vefsins

    Sælir félagsmenn.
    Samkvæmt skilmálum vefsins eiga félagsmenn og aðrir sem hafa skrifréttindi á vefsíðu klúbbsins að setja inn persónulegar upplýsingar um sig.
    Þær eru: Fullt nafn, kennitala, heimilisfang og tölvupóstfang. Auk þessa er beðið um fleirri atriði í skráninginni.
    Ef skráningin er ekki rétt samhvæmt þessu er vinsamlega beðið um leiðréttinu á skráningu.
    Það er gert þannig að innskráður smellir á „Prófílinn“ sinn og síðan á „Breita“ Birtist þá skráningar-glugginn sem fylla þarf út.
    Það eru vinsamleg tilmæli til allra sem vilja hafa þessi réttindi að ljúka þessum færslum.

    Kv. Vefnefnd.





    04.12.2014 at 07:47 #773791
    Profile photo of Kristján Kristjánsson
    Kristján Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 166

    Í hvaða reit skrifa ég tölvupóstfangið.





    04.12.2014 at 08:40 #773792
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Þetta er rétt hjá þér Kristján. Þetta vantar og þarf að athuga.

    Kv. SBS.





    04.12.2014 at 16:43 #773862
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Hvernig setur maður myndaalbúm inn á þessa síðu?





    04.12.2014 at 17:09 #773943
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sæll Jón.

    Þú smellir á eigin „Prófíl“ og síðan Á „Ljósmyndir“ og þá ert komin rétta leið.

    Þakka þér fyrir að gerast vinur Vefnefndar til að geta svarað þræðinum. Við erum að safna áhagendum. 😉 Þegar við erum komnir í 30.000 þá breitum við þessu. :)

    Annars er verið að lagfæra þetta og kemur fljótt.

    Kv. SBS.





    04.12.2014 at 20:02 #773981
    Profile photo of Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
    Keymaster
    • Umræður: 32
    • Svör: 604

    Það er hægt að breyta tölvupóstfangi, en það er ekki farið í prófil, heldur er valið „Stillingar„. Þá kemur upp form þar sem hægt er að breyta hvort sem er tölvupóstfangi (eða netfangi eins og sumir kalla það) eða skipta um lykilorð.

    Til að skipta um tölvupóstfang eða lykilorð þá þarf að gefa upp núverandi lykilorð. Síðan þarf að staðfesta breytinguna með þvi að svara staðfestingarpósti sem kemur í tölvupósti. Athugið að tölvupósturinn getur lent í rusl síu hjá mörgum og nauðsynlegt að skoða SPAM eða rusl póst listann upp á það. Í þessum tölvupósti er þá staðfestingarlinkur sem þarf að smella á.

    Ef þetta klikkar allt saman, þá er hægt að hafa samband við Vefnefnd.

    Kv hsm





    06.12.2014 at 17:28 #774473
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.

    Ég var að setja inn á Vefnefndarsíðuna okkar skýringar í myndrænu formi hvernig helstu leiðir eru framkvæmdar til að lesa og setja efni á vefsíðuna.

    https://old.f4x4.is/hopar/vefnefnd/media/photo/

    Kv. SBS





    09.12.2014 at 11:14 #774544
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.

    Ég vil taka fram að til að geta tekið þátt í þessum umræðu verða menn að smella á „Gerast meðlimur“ á síðu vefnefndar.

    Ef menn vilja skrá sig út sem meðlimir verður að smella á „Hætta í hóp“. Það er sami hnappur en hann breitist þegar menn gerast meðlimir.

    Nú er að koma með tuð eða tillögur um úrbætur. Menn verða úrillir og koma aldrei á síðuna aftur ef þeim líkar ekki hér. Tíminn er knappur.

    Ég veit svo sem um helling af atriðum sem má bæta og ég á niðurskrifað.

    Kv. SBS





    10.12.2014 at 08:36 #774623
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Hvað er eiginlega að smáauglýsingunum? Þær eru allar horfnar! Allavega fæ ég bara 404 villu þegar ég reyni að skoða þær.





    10.12.2014 at 09:48 #774625
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Já ég veit Jón. Ég er að reyna að vera rólegur. :(





    11.12.2014 at 02:28 #774653
    Profile photo of Trausti Gylfason
    Trausti Gylfason
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 67

    Ég vill koma með eina tillögu sem ég varpaði fram á gömlu síðunni líka.

    Ég eins og líklega margir aðrir eru orðnir þreyttir á þessum endalausu tölvupóstum sem maður er að fá. Sem dæmi þá var einhver sem sendi tölvupóst varðandi nýju síðuna sem svo allir fóru að svara. Sem verður til þess að maður er að fá suma daga nokkra tugi pósta og stundum erfitt að ná samhenginu í umræðunni þegar maður þarf alltaf að vera opna póstana aftur til að sjá hverju var verið að svara.

    Er ekki nær að menn noti heimasíðuna til að ræða saman en ekki tölvupóstinn. Skil vel ef þetta er eitthvað sem utanaðkomandi eiga ekki að sjá.

    Þetta gerir síðuna líka líflegri og verður meiri virkni á henni. Væri nær að setja inn þráð á síðuna og svo senda kannski einn tölvupóst á alla og þeim bent á að ræða tiltekið málefni á síðunni.

    Sem dæmi þegar nefndir eru að senda póst þá frekar að nota þeirra svæði hérna inni og hafa svo hnapp sem maður ýtir á sem sendir tilkynningu í pósti á viðkomandi nefndarmenn að það sé kominn þráður þar inn.

    Vona að þið áttið ykkur á því hvað ég er að fara með þessu.





    12.12.2014 at 17:28 #774715
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir.

    Trausti. Þetta er rétt hjá þér. Menn eru dálítið að ræða saman á Gmail grúbbum klúbbsins. Það er svo sem þeirra val hvar þeir eru með spjallþræðina en þetta er hálf fátæklegt hérna.

    Það er svo sem eðlilegt að menn séu orðnir dálítið þreittir að koms með tillögur að lagfæringum á vefnum okkar þegar við endalaust þurfum að byrja upp á nýtt.

    Þetta er nú í þriðja skiptið sem ég tek þátt í að taka saman atriði til að betur-um-bæta nýjan vef svo eitthvað er til af pungtum til lagfæringar. Þetta er um 40 atriði bæði frá félagsmönnum og það sem mér hefur dottið í hug.

    Vefsíðan eins og hún er í dag þá vantar allt kjöt á krókinn. Hún er eins og öngull án beytu. Á þannig færi veiðist ekkert. Það mætti kanski biðja ykkur að koma með hugmynd að eitthverju girnilegu sem bitið er á.

    Ég er sannfærður að þetta vefumhverfi henti klúbbnum vel en það er eftir að vinna hann að þörfum okkar sem er mikil vinna og yfirlega og tekur tíma.

    Kv. SBS Vefnefnd.





    13.12.2014 at 10:32 #774716
    Profile photo of Einir Guðjón Kristjánss Normann  R-2930
    Einir Guðjón Kristjánss Normann R-2930
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Kanski hefði átt að setja upp heimasíðu með spjallborði ?

    Kv Einir





    13.12.2014 at 17:01 #774718
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Sælir Einar

    Er þetta rétt hjá þér? Er þetta ekki spjallborð? Ég sem hélt að þetta væri einn þráðurinn í spjallborðinu. 😉

    Kv. SBS.





    13.12.2014 at 22:36 #774726
    Profile photo of Einir Guðjón Kristjánss Normann  R-2930
    Einir Guðjón Kristjánss Normann R-2930
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Heimasíða er forsíða eins og þessi og sumar heimasíður eins og bjóða uppá spjallborð sem addon við heimasíðuna og jú það er hægt að skrifa á sumum heimasíðum lika eins og við erum að gera

    Kv Einir





    13.12.2014 at 23:39 #774730
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Einar!

    Væri hægt að fá þig til að lesa textan vel yfir og setja orð þar inn sem vantar. Eins á ég sem íslendingur á mjög erfitt með að sætta mig við enskuslettur. :(

    Kv. SBS.





    13.12.2014 at 23:49 #774731
    Profile photo of Einir Guðjón Kristjánss Normann  R-2930
    Einir Guðjón Kristjánss Normann R-2930
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Heimasíða er forsíða eins og þessi og sumar heimasíður bjóða upp á spjallborð sem viðbót við heimasíðuna. Það er hægt að skrifa á sumum heimasíðum lika eins og við erum að gera núna.
    Því miður fyrir okkur íslendinga þá fer forritum að mestu fram á ensku
    Og að lokum : ‘Eg heiti Einir ekki Einar! 😉





    14.12.2014 at 00:33 #774732
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster
    • Umræður: 244
    • Svör: 1204

    Æ já. Einir afsakaðu þetta.

    Þegar þú ert að tala um spjallborð. Þá er ekkert mál að búa til spjallborð um ákveðin málefni.
    Innan klúbbsins eru deildir og nefndir hver með sitt spjallborð. Innan klúbbsins eru líka grúbbur. Yfirfullar af þekkingu og reynslu. Mjög lokaðar. ;( Svo eru líka ýmis málefni og áhugamál. Málefnin eru ferðafrelsi, fylgjast með framkomu ferðamanna um viðkvæma náttúru og m. fl. Áhugamál eru breitingar á jeppum, áhugi á gömlum bílum, og einnig margt fleirra.
    Með þessari stuttu upptalningu vil ég benda á að okkur vantar eins og ég tók fram á þræði hér fyrir ofan. Það vantar kjét á krókinn.

    Kv. SBS.





    14.12.2014 at 00:49 #774733
    Profile photo of Einir Guðjón Kristjánss Normann  R-2930
    Einir Guðjón Kristjánss Normann R-2930
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Sæll Sigurður

    Ef þú skoðar erlendar 4×4 síður þá eru margar með svona uppsetningu þar sem er heimasíða og spjallborð á bakvið sem gerir einfaldara að að skipuleggja og setja réttindi á notendur af stjórnendum.
    Er þetta skipulag notað af mörgum sem sem eru með heimasíðu og spjall.

    Það er sjálfsagt að leifa þér að sjá svona umhverfi sem stjórnanda.
    Þetta er allt vel meint og ég er bara að benda á leið sem ég tel vænlega til árángurs.
    Því miður er heimasíðan eins og er ekki mjög notendavæn, jú að eru ekki góðir í tölvum.

    ‘Eg veit að það getur verið erfitt með gamlan gagnagrunn sem þarf að setja inn í nýjan grunn, og þið eigið þakkir fyrir.

    Kær kveðja Einir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 53 total)
1 2 3 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.