FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Nú er tækifærið.

by Eyþór Guðnason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Nú er tækifærið.

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Emil Borg Emil Borg 22 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 23.10.2002 at 21:10 #191736
    Profile photo of Eyþór Guðnason
    Eyþór Guðnason
    Participant

    Nú er tækifærið til að lækka gistigjöld í Setrinu en er þetta lækkun sem borgar sig fyrir okkur félagsmenn, við þurfum jú meiri fatnað til að verjast kuldanum í Setrinu í vetur. Því þegar vetur konungur er kominn æa fullt þá er Setrið að volna þegar maður fer heim. Ég var með Emil Borg og fleirum í Setrinu um síðustu helgi og finnst mér grátur í skálanefnd með ólikindum og fannst mér Emil fara mjög mjúkum höndum um þessa trefla. Svo las ég í pistlinum frá einum að þeim (að ég held) að það þurfi að bregðast við kuldanum með einhverjum máta KAUPA nýjan gasofn eða nýjan olíuofn. En ef þessi mjög svo miður gáfaða skálanefnd hefði fundið sér bara eitthvað annað að gera og látið ofninn vera, Þá væri ekki um nein útgjöld að ræða. Ryð á strompi er ekkert vandamál sem 1 líter af málningu hefði ekki bjargað, líkur á því að rörið hafi verið ryðgað í gegn eru alveg hverfandi. Maður hendir ekki bíl þó að á hann komi ryðbóla. Talandi um að það hafi slegið 2var niður í ofninn í sumar og að það sé ástæðan að ofninn var tekinn úr skálanum, þá ætti að taka ofninn í andyrinu í burtu líka því að það slóg 2var vel niður í ofninum um síðustu helgi. Ekki datt okkur félögunum það í hug að fara út í bíl og ná í verkfæri og fara inn í skála slökkva á heilanum og skrúfa ofninn burt. Það er kannski umhugsunarefni hvort ekki eigi að rispa svolítið eitt borð eða láta sjá á einhverju svo að skálanefndin hafi eitthvað að gera næsta sumar. Annars gæti farið svo að næsta vetur vanti kannski allar hurðir, eða gler jafnvel þak!!!!!!!
    Ef að ykkur finnst þetta full grófur pistill þá hélt ég mjög aftur að mér og ákvað að sleppa t.d gríni eins og að Háskólinn væri að leita að aðilum til að núll stilla greindarvísitölu mælana. Það er spurning hvort senda ætti ónefnda nefnd til að svara nokkrum spurningum!!!!!!!!!!!!
    En sem betur fer sleppti ég því eða hugsaði ég upphátt!!!!!
    P.S
    Er þetta ekki full mikil vinna hjá skálanefndinni til að lækka gistigjöld í Setrinu!!!!!!!!!!!!!!!!!
    Eyþór

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 23.10.2002 at 21:48 #463762
    Profile photo of Theodór Kristjánsson
    Theodór Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1008

    Hvernig er þetta með íslenska víkinga eru þeir búnir að tína hornunum??? Það er nú meira vælið í ykkur Emil og Eyþór. Þið þessir jeppalúðar eigið bara að hafa vit á því að vera ekki að þvælast langt upp á fjöll á veturnar því þar er nefnilega skítkalt. Skúrakveðja, Theodor.

    Það væri ráð að hækka bara almennilega skálagjöldin þannig að það væri ekki svona mikið slit á skálanum.





    23.10.2002 at 22:01 #463764
    Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson
    Eiríkur Þór Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 354

    Maður getur nú ekki orða bundist yfir þessu andskotans bulli í þér. Mennirnir sem nú starfa í skálanefnd eru sennilega þeir ósérhlífnustu sem ég hef séð til í þessum félagsskap frá því að ég gekk til liðs við hann, og hafa gert marga frábæra hluti í Setrinu.

    Hvort sem það var rétt eða rangt að taka þennan ofn (mín skoðun er sú að það hafi fyllilega átt rétt á sér) þá gerir svona málflutningur ekkert annað en að fæla afbragðsfólk frá því að vinna í sjálfboðavinnu að málefnum klúbbsins.

    En sem betur fer eru ekki margir svona hælbítar eins og þú Eyþór, menn sem eru til í að úthrópa aðra en ekki leggja neitt af mörkum sjálfir. Ég legga einfaldlega til að þú gistir annarsstaðar í framtíðinni, t.d. á Hveravöllum þar sem nóttinn kostar nú kr. 1700, auk þess sem það er skítkalt í húsunum að því að manni skilst hér í öðrum þræði á spjallinu.

    Baráttukveðjur til Skálanefndar,
    Eiríkur





    23.10.2002 at 23:18 #463766
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir allir.

    Það er augljóst að við erum slæmir menn, við Eyþór. En reynið að setja ykkur í spor okkar þegar við komum í hóp þar sem voru 6 börn sem ekki gátu farið úr kuldagallanum í 3 tíma.

    Það var svosem ekki ætlun mín að vera upphafsmaður að einhverju skítkasti hér á vefnum, en sú varð greinilega raunin. Því vil ég endurtaka að ég hafði ekki í hyggju að þjófkenna neinn, þó útkoman hafi jú verið þessleg.

    En það er ýmislegt sem mér hefur dottið í hug undanfarna daga í sambandi við málefni Setursins.

    Svo ég haldi mig við ofnamálin, þá getum við örugglega allir verið sammála um að það er fátt ömurlegra en að vera í köldum skála. Og auðvitað þarf jafn stórt hús og Setrið, mikla kyndingu.
    Ofninn góði var settur upp fljótlega eftir að húsið var byggt. Reyndar mynnir mig að í upphafi hafi verið notast við gamlan garm sem fljótlega var skipt út. Í eitt af fyrstu skiptunum sem ofninn var notaður sviðnaði bitinn aftan við hann eins og glöggt má sjá í dag. Þá var bitinn vafinn með asbestmottu sem þar hefur verið síðan, og eftir það var hitinn ekki meiri en það að hægt var að stinga hendi milli bita og mottu.
    Það vita allir sem reynt hafa að ofninn hitaði húsið á rúmum klukkutíma, og það hlítur að vera mikill kostur. En þið nefnið gas. Hvað gera gasofnar í frosti? Ekki hita gasprímusar mikið við þær aðstæður. Og hvort er dýrara í rekstri, gas eða olía?
    Mér finnast þær ástæður fyrir niðurtekt ofnsins sem fram hafa komið heldur klénar. T.d. sokkur bakvið hann. Common…….
    En vonandi kemur það í ljós næstu helgar hvort við séum bara fífl og fávitar (ekki dettur mér svosem í hug að þræta fyrir það), eða hvort þarna hafi verið tekin röng ákvörðun.

    En það eru fleiri málefni í sambandi við Setrið.
    Fyrir nokkru síðan fór fram umræða hér á spjallinu um brunavarnir þarna uppfrá.
    M.a. var stungið uppá að fá Brunamálastofnun til að gera úttektir. Það gera þeir ekki. En reglur eru til um brunavarnir, en ég held ekki að þær nái yfir þessa gerð af húsum.
    Slökkvitæki eru vissulega í húsinu, en ég er ekki frá því að þeim hafi fækkað frá því sem var í upphafi. Svo þarf náttúrulega að yfirfara þau árlega. Ég geri nú ráð fyrir að það sé gert. En svo eru það skynjarar. Ef við lítum þannig á að Setrið flokkist sem gistihús ætti að vera sjálfvirkt brunaviðvörunarkerfi í því. Samkv. reglum Brunamálastofnunar um þannig kerfi ættu að vera 2 – 4 reykskynjarar á efri hæð, og 3 á neðri auk eins handboða. Í fremra húsinu þyrfti 2 reykskynjara og einn handboða. Setja þyrfti upp 2 bjöllur í húsinu.
    Mín skoðun er sú að svona kerfi ætti að setja upp. Kostnaður við það er undir kr. 100.000.- ef undanskilin er vinna, en hún er jú alltaf sjálfboðavinna, ekki satt?
    Kerfi af þessari gerð gerir að sjálfsögðu ekki gagn nema ef einhver er í húsinu, en þá er hættan á eldi mest.
    Hættan við að nota hefðbundna reykskynjara með rafhlöðum er sú að rafhlöðurnar geta klárast án þess að nokkur taki eftir. Geta t.d. klárast í miðri viku, og þá er enginn sem tekur eftir pípi öðru hverju.
    Mér eru mynnisstæð tvö atvik varðandi reyk í Setrinu. Annað er þegar fyrir mistök, ágætur maður reyndi að þvo pönnu með ljósaolíu, en hún var í samskonar brúsa og vatnið. Þá var snarræði nærstadds félaga okkar sem bjargaði húsinu frá bruna, en eldtungurnar sleiktu loftið. Hitt er að eina nótt sló hraustlega niður í ofninum og húsið fylltist af reyk. Þetta gerðist að nóttu til og allir voru í svefni. Við vöknuðum við skynjara sem þá var virkur, en vorum öll þung og sljó af reyknum.

    En það þarf fleira en brunaviðvaranir og slökkvitæki.
    Frágangur raflagna og annars sem getur valdið eldi þarf jú að vera í góðu lagi. Ég er ekki alveg viss um að svo sé í öllum tilfellum hjá okkur. T.d. í sambandi við 12v. kerfið sem er í fjarskiptaskápnum. Það mætti að skaðlausu yfirfara.

    Einhver nefndi þann möguleika að setja upp myndavél til að fylgjast með mannaferðum. Það er vel framkvæmanlegt. Myndavélar með innbyggðum hörðum disk til upptöku við hreyfiskynjun eru hér á markaðnum, en ég sé ekki að það sé raunhæfur kostur fyrir okkur. Þessar vélar kosta um kr. 160.000.- og það þarf að fara á staðinn og sækja efnið í þær. Reyndar væri hægt að gera það um NMT síma. En ég hefði mestar áhyggjur af því að vélinni væri stolið. Þá væru ekki allir hrifnir af því að vera í stöðugri upptöku, auk þess að það stæðist tæplega lög.

    Mín skoðun er sú að til að innheimta gistigjalda batni þurfi að gera okkur félögunum betri grein fyrir reksturskosnaði Setursins. Hvað kostar t.d. olía á ársgrundvelli? Eða gas? Við þurfum líka að geta treyst því að ekki sé verið að bruðla með þá peninga sem inn koma. Ég er ekki að halda því fram að svo sé gert, en mér var sagt um daginn að litla, nýjasta andyrið hefði kostað 2 milljónir í byggingu. Getur það verið?

    Ég vona að okkur takist að halda áfram að reka þarna uppfrá besta fjallahús á landinu, og það verði okkur til sóma eins og verið hefur hingaðtil.

    Sérstakur áhugamaður um málefni Setursins,
    Emil Borg





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.