FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

NMT kerfið

by Einar Lárusson

Forsíða › Forums › Spjallið › Fjarskiptamál › NMT kerfið

This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón Garðar Helgason Jón Garðar Helgason 14 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.08.2010 at 10:57 #214031
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member

    Jæja ætli að þetta sé endanleg ákvörðun http://www.bb.is/?PageID=26&NewsID=152348.

    Það er nú búið að gefa það út nokkrum sinnum áður að NMT kerfinu verði lokað. Það er kannski loksins núna komin forsenda til þess þar sem GSM og 3G samband er orðið mun betra en það var fyrir 2-3 árum

  • Creator
    Topic
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)
  • Author
    Replies
  • 17.08.2010 at 20:35 #700282
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Líklega er þetta endanlegt sbr. frétt á vef símans [url=http://www.siminn.is/um-simann/frettasetur/nanar/item148152/:2v6sc1fa]hér[/url:2v6sc1fa].

    Kv. Óli





    18.08.2010 at 22:27 #700284
    Profile photo of Jökull Einarsson
    Jökull Einarsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 219

    Hvað tekur þá við verðum við að vera með bæði Vodafone og Símann eða verður nóg að vera með Tal sem er með samning við bæði Vodafone og símann. Kv Jökli





    19.08.2010 at 08:39 #700286
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Það eru engir reikisamningar í gildi á milli Vodafone og Símanns í langdræga GSM en það er spurning með Tal, hvort að þeir hafi aðgang að báðum langdrægu kerfunum, veit það einhver ?





    19.08.2010 at 09:02 #700288
    Profile photo of Þorgeir Egilsson
    Þorgeir Egilsson
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 188

    NMT kerfinu verður lokað 1. sept og er sú vinna í fullum gangi að undirbúa það og taka niður stöðvar.
    Síminn er með reikisamning við Vodafone að einhverju leiti þar sem þeir síðarnemdu höfðu betur í útboðinu á þjóðvegaverkefninu á 3G, en Vodafone er alsstaðar með reikisamning við Símann.





    19.08.2010 at 09:37 #700290
    Profile photo of Sigurbjörn Arngrímsson
    Sigurbjörn Arngrímsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 167

    Kannski er það allt í lagi þó maður sé ekki í símasambandi???? Það var víst þannig hérna áðurfyrr. Og allir ánægðir :-)
    Kv.





    19.08.2010 at 10:37 #700292
    Profile photo of Þórður Ámundason
    Þórður Ámundason
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 238

    Ég er bara ekkert sáttur við lokun nmt kerfisins. Það eru allt of margir staðir og/eða punktar þar sem gsm kerfið er ekki að virka. Ég held að nmt kerfið ætti að vera opið…..svona til öryggis ef þannig stendur á. Hef lent í því oft og mörgum sinnum á keyrslu minni um þjóðvegi landsins að það er ekki hægt að treysta á gsm kerfið…og þá er nú gott að hafa nmt símann í bílnum :)





    19.08.2010 at 10:38 #700294
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    [quote="Þorgeire":1zpdovqw]NMT kerfinu verður lokað 1. sept og er sú vinna í fullum gangi að undirbúa það og taka niður stöðvar.
    Síminn er með reikisamning við Vodafone að einhverju leiti þar sem þeir síðarnemdu höfðu betur í útboðinu á þjóðvegaverkefninu á 3G, en Vodafone er alsstaðar með reikisamning við Símann.[/quote:1zpdovqw]

    Það er eitthvað nýtt fyrir mér að það séu reikisamningar í langdræga GSM kerfinu, skyldist að svo væri ekki. Það borgar sig semsagt að vera með Vodafone á fjöllum skv þessu hjá Þorgeiri !





    19.08.2010 at 11:14 #700296
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég fékk mér frelsis símakort hjá Alterna eftir að mér var bennt á að þeir hefðu reikisamninga við bæði símafyrirtækin (Símann og Vodafone). Prófað þetta nýja kort í 1400km. ferð sem ég fór nýlaga á norðausturhornið og var Alterna síminn mun oftar í sambandi við símkerfið en sími með símakort frá Símanum, (ekki var um 3G síma að ræða).

    ÓE





    19.08.2010 at 11:37 #700298
    Profile photo of Sigurður Már Olafsson
    Sigurður Már Olafsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 160

    Hér stendur að Alterna sé bara með reikisamning við símann.

    Tekið af heimasíðu þeirra.

    "Hvernig er dreifikerfi Alterna?

    Alterna rekur sína eigin símstöð og dreifikerfi en er þar að auki með reikisamning við Símann um not á samnýtingu á fjarskiptamöstrum út um land allt. Þetta þýðir að þjónustusvæðið er að minnsta kosti jafn stórt og þjónustusvæði Símans."

    http://www.alterna.is/

    Kv Siggi

    P.s Alterna er ekki með 3G





    19.08.2010 at 12:23 #700300
    Profile photo of Sigurður Már Olafsson
    Sigurður Már Olafsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 160

    Ef að þessi 2 kort eru borin saman af dreifikerfi Símans og Vodafone er ekki spurning hvort fyrirtækið er með betri dreifingu á hálendi Íslands.

    http://www.siminn.is/servlet/file/Kort_ … _ID=132597

    http://www.vodafone.is/images/thjonustu … 010feb.jpg

    Svo sá ég á heimasíðu Tals að þeir eru með reikisamning við Símann og Vodafone, spurning hvort það sé bara 2g reikisamningur eða 3G ??

    Af heimasíðu Tals

    "GSM samband Tals er eins og best verður á kosið því Tal nýtir sér dreifisvæði Vodafone og Simans. Tal býður því jafn góða þjónustu og aðrir en á lægra verði."

    Kv Siggi Már





    19.08.2010 at 13:15 #700302
    Profile photo of Ólafur A. Hallgrímsson
    Ólafur A. Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 385

    Samskonar kort frá símanum, 2G. og vodafone kortið.
    http://www.siminn.is/servlet/file/Kort_ … _ID=132596





    19.08.2010 at 13:51 #700304
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    [quote="Danfox":2h1t4dkb]Ef að þessi 2 kort eru borin saman af dreifikerfi Símans og Vodafone er ekki spurning hvort fyrirtækið er með betri dreifingu á hálendi Íslands.

    http://www.siminn.is/servlet/file/Kort_ … _ID=132597

    http://www.vodafone.is/images/thjonustu … 010feb.jpg

    Kv Siggi Már[/quote:2h1t4dkb]

    Símakortið sýnir aðeins 3G dreifingu, ekki 2G (hefðbundið) þannig að það er ekki hægt að bera þessi tvö kort saman.





    19.08.2010 at 14:20 #700306
    Profile photo of Sigurður Már Olafsson
    Sigurður Már Olafsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 160

    [quote="AgnarBen":3rqllm46][quote="Danfox":3rqllm46]Ef að þessi 2 kort eru borin saman af dreifikerfi Símans og Vodafone er ekki spurning hvort fyrirtækið er með betri dreifingu á hálendi Íslands.

    http://www.siminn.is/servlet/file/Kort_ … _ID=132597

    http://www.vodafone.is/images/thjonustu … 010feb.jpg

    Kv Siggi Már[/quote:3rqllm46]

    Símakortið sýnir aðeins 3G dreifingu, ekki 2G (hefðbundið) þannig að það er ekki hægt að bera þessi tvö kort saman.[/quote:3rqllm46]

    Sé það núna, var ekki búinn að reka augun í það, en þetta þýðir að það er best að vera með gsm frá Tal, þarf ekkert frekar að vera 3G





    20.08.2010 at 08:41 #700308
    Profile photo of Sigurbjörn Arngrímsson
    Sigurbjörn Arngrímsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 167

    "Kirkjugarðarnir eru fullir af fólki sem hélt að það væri ómissandi"

    Það saknar þess engin þó þú hringir ekki af fjöllum …….sorry 😉

    Kv.





    20.08.2010 at 09:13 #700310
    Profile photo of Sigurður Már Olafsson
    Sigurður Már Olafsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 160

    [quote="SBA":g82vzhkm]"Kirkjugarðarnir eru fullir af fólki sem hélt að það væri ómissandi"

    Það saknar þess engin þó þú hringir ekki af fjöllum …….sorry 😉

    Kv.[/quote:g82vzhkm]

    Sagði mamma þín þetta ??





    20.08.2010 at 15:30 #700312
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Sælir

    Ég get ekki fundið muninn á kúk og skít (síminn/Vodafone) hvað varðar útbreiðslu en ég er þó alltaf að verða meira og meira hissa á hvað gsm dekkun er mikil. Ég er hjá Vodafone og þannig lagað sáttur.

    Annar póll í þessu málefni er ferðamaðurinn sem kallaði eftir aðstoð í gegnum Spot kerfið. Það tilvik sýndi og sannaði að það apparat virkar þó að boðin fari um langann veg en þegar hann ýtir á sos takkan kemur það upp hjá neyðarþjónustu í Texas minnir mig og í þeirra valdi að framsenda til Íslands. Þetta virkaði í þetta sinn og gæti verið vísbending um að ferillinn sé í lagi svo að treysta megi á þetta.

    Ég væri sáttur með svona tæki og ömurlegt gsm kerfi, svosum ekki verra að setja upp VHF stöð í eldhúsinu ef maður er einn á ferð, það gæti líka komið sér vel.

    Kv Jón Garðar





    20.08.2010 at 21:07 #700314
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Er með Spot og hefur reynst vel. Eina að hnettir eru fyrir sunnan land svo ef vantar sjónlínu suðurhimin er samband ekki tryggt en ekki svo að ég hafi orðið svo mikið var við það.

    Á ekki von á öðru en að neyðarhjálparbeiðni yrði send áfram til Íslands. Þar að auki er aðrir fídusar á tækinu eins og ferilvöktun. Einnig helpfídus sem sendir hjálparbeiðnir sjálfvirkt með SMS í tvo valda síma sem eigandi tækisins velur fyrirfram. Svo aðaltakkinn sem krefst viðbragða starfsmanna Spot og áframbeiðni frá þeim til 112 í viðkomandi landi.

    Held að þetta sé málið til að styðja GSM síma fyrir utan kannski gerfihnattasíma.





    21.08.2010 at 12:48 #700316
    Profile photo of Ágúst Þór Guðbergsson
    Ágúst Þór Guðbergsson
    Participant
    • Umræður: 71
    • Svör: 702

    Hvað með þetta, sjá http://www.wilsonelectronics.com , s.s. gsm endurvarpa í bílinn.





    21.08.2010 at 13:19 #700318
    Profile photo of Jón Garðar Helgason
    Jón Garðar Helgason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 638

    Ef það er ekkert samband þar sem þú ert getur þú ekki búið að til, endurvarpi verður að hafa eitthvað til að endurvarpa.

    Samskipti gsm síma gengur út á að bæði síminn nái til sendisins og sendirinn til símans. Í viðbót við þetta fléttast tímafaktor sem er gersamlega ósigrandi með hverskyns loftneti eða sendi/móttökubúnaði. Gengur út á ákveðna fjarlægð frá sendi og þegar þú ert kominn ákveðið langt frá honum er sending og svar í símann á sama tíma og þá er ekkert samband. Langdrægari sendar hafa lengri tíma milli sendingar og svars.

    Ég prófaði gsm símann minn með stóru loftneti uppi á bíltopp og með honum höndlar hann pínulítið betur misfellur í landslaginu, allavega sem nemur hæðamismun á standandi manni og loftnetinu. Gerir lítið meira.

    Kv Jón Garðar





  • Author
    Replies
Viewing 19 replies - 1 through 19 (of 19 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.